Iceland Seafood stefnir á aðalmarkað

Fyr­ir­tækið Iceland Seafood hyggst kanna mögu­leik­ann á skrán­ingu á aðal­markað Kaup­hall­ar­innar. For­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins segir nýlega stækkun þess gefa því mögu­leika á að eiga heima þar.

Forstjóri fyrirtækisins telur 7,8 milljarða kaup fyrirtækisins á Solo Seafood gera því kleift á að vera á aðalmarkaði
For­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins telur 7,8 millj­arða kaup fyr­ir­tæk­is­ins á Solo Seafood gera því kleift á að vera á aðal­mark­aði Mynd: Úr safni.

Stjórn fyr­ir­tæk­is­ins Iceland Seafood International íhugar mögu­leik­ann á skrán­ingu á aðal­markað Kaup­hall­ar­innar. Þetta kemur fram í frétt á vef Frétta­blaðs­ins í morgun.

Iceland Seafood er nú þegar skráð á First North-markað Kaup­hall­ar­innar, en for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, Helgi Anton Eiríks­son, segir nýlega stækkun þess gefa því mögu­leika á að eiga heima á aðal­mark­að­inum.

Stækkun fyr­ir­tæk­is­ins fól í sér kaup þess á Solo Seafood síð­ast­lið­inn þriðju­dag, en bæði sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin skrif­uðu undir samn­ing um kaupin, sem nema að and­virði 7,8 millj­örðum króna og eru greidd með útgáfu nýrra hluta­bréfa.

Samkvæmt síð­asta árs­reikn­ingi sínum námu tekjur Icelandic Seafood um 30 millj­örðum íslenskra króna í fyrra og hefur fyr­ir­tækið 287 starfs­menn. Allt frá skrán­ingu þess á First-North markað Kaup­hall­ar­innar í maí árið 2016 hefur hluta­bréfa­verð fyr­ir­tæk­is­ins hækkað um rúm 44%.

Solo Seafood er eig­andi spænsku félag­anna Icelandic Iberica, Ecomsa og argent­ínska félags­ins Achernar. Með kaup­unum munu eig­endur fyr­ir­tæk­is­ins eign­ast um 44 pró­senta hlut í Iceland Seafood.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár