Konur í fjórum efstu sætunum hjá Pírötum í Reykjavík

Dóra Björt Guð­jóns­dóttir mun leiða fram­boðs­lista Pírata í Reykja­vík í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum.

Dóra Björt Guð­jóns­dóttir mun leiða fram­boðs­lista Pírata í Reykja­vík í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum sem fram fara í lok maí. Þetta varð ljóst þegar próf­kjöri Pírata í höf­uð­borg­inni lauk klukkan 15 í dag.

Hægt er að lesa um Dóru Björt og helstu áherslu­mál hennar hér. Alls voru greidd 284 atkvæði í próf­kjör­inu en 19 manns gáfu kost á sér í því.

Í öðru sæti á list­anum verður Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir og Alex­andra Briem situr í þriðja sæti list­ans. Í fjórða sæti er Rannveig Ernu­dóttir og Bergþór H. Þórð­ar­son situr í því fimmta.

Píratar eru sem stendur með einn borg­ar­full­trúa, Halldór Auðar Svansson. Hann hafði þegar gefið út að hann sækt­ist ekki eftir end­ur­kjöri og var því ekki í fram­boði í próf­kjör­inu. Flokk­ur­inn fékk 5,9 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2014.

Samkvæmt síð­ustu birtu skoð­ana­könnun um fylgi flokka í borg­inni, sem Gallup vann fyrir Við­skipta­blaðið, mæld­ist fylgið 13 pró­sent. Það myndi skila Pírötum þremur borg­ar­full­trúum, en slíkum verður fjölgað úr 15 í 23 eftir næstu kosn­ingar.

Listi Pírata í Reykjavík:

1. Dóra Björt Guð­jóns­dóttir

2. Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir

3. Alex­andra Briem

4. Rannveig Ernu­dóttir

5. Bergþór H. Þórð­ar­son

6. Val­gerður Árna­dóttir

7. Kjartan Jónsson

8. Arnaldur Sig­urð­ar­son

9. Þórgnýr Thorodd­sen

10. Elsa Nore

11. Þórður Eyþórs­son

12. Salvör Krist­jana Giss­ur­ar­dóttir

13. Svafar Helgason

14. Ævar Rafn Haf­þórs­son

15. Helga Völ­und­ar­dóttir

16. Þórlaug Ágústs­dóttir

17. Birgir Þröstur Jóhanns­son

18. Ólafur Jónsson

19. Elías Halldór Ágústs­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Reykjavík2018

Mest lesið undanfarið ár