Magnús Már sækist eftir fjórða sæti hjá Samfylkingunni

Tveir hafa gefið kost á sér í fjórða sæti í flokksvali Sam­fylk­ing­ar­innar vegna borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna sem fram fara í vor.

Magnús Már Guð­munds­son, for­maður borg­ar­stjórn­ar­flokks Sam­fylk­ing­ar­innar, býður sig fram í 4. sæti í flokksvali Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík sem fram fer 9.-10. febr­úar næst­kom­andi.

Í til­kynn­ingu segir Magnús að hann hafi verið „kjör­inn vara­borg­ar­full­trúi í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2014 og hafa verk­efnin á kjör­tíma­bil­inu verið fjöl­breytt en umfram allt skemmti­leg. Í um eitt og hálft ár sinnti ég störfum borg­ar­full­trúa en þar fyrir utan hef ég setið í vel­ferð­ar­ráði, mann­réttinda­ráði, for­sætis­nefnd og gegnt for­mennsku í borg­ar­stjórn­ar­flokki Sam­fylk­ing­ar­innar sem og í ferlinefnd borg­ar­innar. Að auki hef ég tekið þátt í störfum stýri­hópa, þar á meðal um stefnu Reykja­vík­ur­borgar í mál­efnum eldri borg­ara og gerð aðgeng­is­stefnu fyrir borg­ina, en ég hef leitt þá vinnu.“

Áður hafði Sabine Leskopf vara­borg­ar­full­trúi gefið það út að hún bjóði sig fram í 3.-4. sæti í próf­kjör­inu. Hún hefur verið vara­borg­ar­full­trúi frá árinu 2014, setið fyrir hönd Sam­fylk­ing­ar­innar í skóla- og frí­stunda­ráði og mann­rétt­inda­ráði, verið for­maður heil­brigð­is­nefndar og vara­maður í inn­kaupa­ráði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sveitastjórnarkosningar

Mest lesið undanfarið ár