Kókaínhagkerfið komið fram úr stöðunni árið 2007

Fram­leiðsla á kóka­íni í Kólumbíu hefur vaxið hratt að und­an­förnu. Mikil eft­ir­spurn er eftir þessu fíkni­efni ríka fólks­ins, og ýtir hún undir vax­andi fram­leiðslu og útflutn­ing.

Barátta yfir­valda í Kólumbíu, Banda­ríkj­unum og öðrum sam­starfs­ríkjum, í hinu svo­nefnda stríði gegn fíkni­efnum, hefur væg­ast sagt gengið illa. Þrátt fyrir að vitað sé nán­ast alveg upp á fer­metra, hvar kóka­lauf eru ræktuð, þá hafa yfir­völd í Kólumbíu ekki náð að sporna gegn því að fram­leiðslan fari fram og úr lauf­unum unnið kókaín sem síðan er flutt til Banda­ríkj­anna, að stærstu leyti, og síðan einnig til Afríku og þaðan inn á mark­aði í Evrópu og Asíu.

Framleiðslusvæðin þekkt

Samkvæmt upp­lýs­ingum sem fram koma í árs­skýrslu INCS (International Narco Control Strategy) þá hefur land­svæði sem fer undir kóka­ín­fram­leiðslu í Kólumbíu - sem er eins konar hjarta­vöðvi í hinu risa­vaxna kóka­ín­hag­kerfi heims­ins - stækkað umtals­vert að und­an­förnu og fram­leiðsla auk­ist mikið.

Svæði undir kóka­ín­fram­leiðslu stækk­aði um 39 pró­sent árið 2014 og 42 pró­sent árið 2015. Það er mesta aukn­ing sem orðið hefur í sögu mæl­inga á þessum hlutum í land­inu. Sér­stak­lega hefur aukn­ingin orðið mikil á þekktum kóka­laufs­rækt­un­ar­svæðum í Suð­vest­ur­hluta lands­ins.

Mikil aukning

Í umfjöllun Business Insider kemur fram, að yfir­völd í Kólumbíu telji að aukn­ingin í útflutn­ingi kóka­íns sé gríð­ar­lega mikil miðað við fyrri ár. Talið er að hún hafi verið 495 tonn árið 2015 en hafi auk­ist veru­lega í fyrra. Svo virð­ist sem eft­ir­spurn eftir kóka­íni í heim­inum hafi farið hratt vax­andi, en það er helst árið 2007 sem er sam­an­burð­ar­hæft við það sem fram kemur í skýrslu INCS.

Í gegnum sög­una hefur eft­ir­spurn eftir kóka­íni oft hald­ist í beinu sam­hengi við efna­hags­lega vel­sæld á helstu mörk­uðum heims­ins. Því meiri vel­sæld og hag­vöxtur, því meiri eft­ir­spurn eftir kóka­íni. Sé mið tekið af þessum upp­lýs­ingum frá INCS þá er tölu­verð spenna í heims­bú­skapnum um þessar mundir, og greini­legt að efna­hags­legur upp­gangur er það sem helst ein­kennir stærstu mark­aði. Hugs­an­lega má einnig lesa út úr þessu að nýjir mark­aðir séu að koma inn í sölu­netið í svarta hag­kerf­inu, meðal ann­ars í Asíu.

Enginn árangur

Þrátt fyrir hert landmæra­eft­ir­lit, sam­starf yfir­valda í Banda­ríkj­unum með ríkjum Suður-Ameríku, og mark­viss­ari kort­lagn­ingu á fram­leiðslu og dreifi­leiðum fíkni­efna, þá hefur fíknefna­vandi í Banda­ríkj­unum sjaldan verið meiri en nú. Gíf­ur­lega hröð aukn­ing í notkun lækna­dóps af ýmsum toga, og verk­smiðju­fram­leiddra efna, hefur leitt til þess að þess að dauðs­föllum vegna of stórs skammts af efnum hefur fjölgað hratt.

Í fyrra dóu 64 þús­und manns vegna of stórs skammts og hefur Banda­ríkja­for­seti, Donald Trump, lýst því yfir að stjórn­völd muni vinna náið með borgum og sveit­ar­stjórnum að því að hjálpa fíklum og reyna að draga úr vand­anum.

Sér­stak­lega hefur dauðs­föllum vegna lækna­dóps fjölgað, og má þar sér­stak­lega nefna dauð­daga vegna notk­unar á Fentanyl efn­inu, en á þremur árum hefur aukn­ing dauð­daga vegna þess verið 540 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár