Ríkisstjórnin á endastöð - Kosningar í kortunum

Hröð atburða­rás í gær­kvöldi og nótt leiddi til þess að rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar komst á enda­stöð. Formlega hefur rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu ekki verið slitið, en Viðreisn vill kosn­ingar sem fyrst og Björt fram­tíð hefur slitið sig frá rík­is­stjórn.

Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar á tröppum Bessastaða í janúar.
Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar á tröppum Bessa­staða í jan­úar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar er komin á enda­stöð. Stjórn Bjartrar fram­tíðar sleit sig frá rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu skömmu eftir mið­nætti, en 87 pró­sent full­trúa í stjórn flokks­ins vildu hætta sam­starfi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Viðreisn, og varð það nið­ur­staðan.

Þá hefur þing­flokkur Við­reisnar sent frá sér yfir­lýs­ingu, þar sem hvatt er til þess að boðað verði til kosn­inga sem fyrst.

Þetta var kvöld merki­legra tíma­móta í íslenskum stjórn­málum, og nóttin var örlaga­rík.

Lygileg atburðarás

Atburða­rásin var hröð í gær. Eftir að Vísir greindi frá því að Benedikt Sveins­son, faðir Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra og for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefði verið meðal með­mæl­enda Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar, barn­a­níð­ings, vegna umsóknar hans um upp­reista æru, þá sendi Benedikt frá sér yfir­lýs­ingu.

Í henni sagð­ist hann hafa talið sig vera að vinna góð­verk fyrir þennan mann, en svo baðst hann einnig afsök­unar á því að hafa valdið þolendum brota hans tjóni. „Ég hef aldrei litið svo á að upp­reist æru væri annað en laga­legt úrræði fyrir dæmda brota­menn til að öðl­ast að nýju til­tekin borg­ara­leg rétt­indi. Sá hugur bjó ekki að baki að rétta stöðu Hjalta gagn­vart fórn­ar­lambi hans. Hjalta hef ég sagt að horfast í augu við gjörðir sínar og iðr­ast þeirra. Það sem átti hér að vera lítið góð­verk við dæmdan mann hefur snú­ist upp í fram­hald harm­leiks brota­þola. Á því biðst ég enn og aftur afsök­un­ar,“ sagði Benedikt.

Upplýsti forsætisráðherra

Eftir þetta tók við kafli þar sem þetta nýja púsl í mynd, sem teikn­að­ist upp í gegnum umræðu um það ferli sem fer í gang þegar mönnum er veitt upp­reist æra, leiddi til spurn­inga sem beindust að dóms­mála­ráð­herra, Sigríðar Á. Andersen.

Hún upp­lýsti um það í við­tali við Stöð 2 að hún hefði í júlí sagt Bjarna Bene­dikts­syni frá því að faðir hans væri meðal með­mæl­enda Hjalta Sig­ur­jóns, um upp­reista æru. „Hann kom af fjöllum,“ sagði Sigríður.

Þessar upp­lýs­ingar voru strax ræddar innan sam­starfs­flokka Sjálf­stæð­is­flokks­ins í rík­is­stjórn, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar.

Mikil óánægja var með stöðu mála, enda hafði umfjöllun um ferlið, upp­reista æru, verið mikið til umræðu á þingi og í fjöl­miðlum, ekki síst eftir að mál Roberts Downey komst í hámæli.

Dóms­mála­ráðu­neytið neit­aði að afhenda gögn um þá sem vott­uðu góða hegðun hans í því ferli, og skaut frétta­stofa RÚV neit­un­inni til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mála.

Nið­ur­staða lá ekki fyrir í því máli fyrr en nokkru eftir að Sigríður hafði upp­lýst Bjarna um að faðir hans væri meðal með­mæl­enda Hjalta Sig­ur­jóns.

Dóms­mála­ráðu­neyt­inu var með úrskurð­inum gert að upp­lýsa um hverjir væru vottar í umsóknum um upp­reista æru, og er ráðu­neytið nú að vinna að því að gera upp­lýs­ing­arnar opin­berar aftur í tím­ann.

Þessi staða skap­aði mikla tor­tryggni í garð Sjálf­stæð­is­flokks­ins í bak­landi Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar.

Trúnaðarbrestur

Þessum upp­lýs­ingum, um sam­skipti Sigríðar og Bjarna, var hins vegar ekki deilt með neinum innan rík­is­stjórn­ar­innar, eða stjórn­ar­flokk­anna. Eins og áður segir var mikil óánægja með þessa stöðu á stjórn­ar­fundi Bjartrar fram­tíðar sem hald­inn var seint í gær­kvöldi og stóð fram á nótt. Skila­boðum var í kjöl­far fund­ar­ins komið til for­ystu­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Við­reisnar, að Björt fram­tíð hefði ákveðið að slíta sig frá rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu. Innan flokks­ins var það metið svo að um alvar­legan trún­að­ar­brest hefði verið að ræða. Leyni­makk um með­mæl­enda­bréf fyrir barn­a­níð­ing var kornið sem fyllti mæl­inn.

Fundað í nótt

Frá Sjálf­stæð­is­flokknum heyrð­ist ekk­ert. Engin við­töl eða yfir­lýs­ingar.

Funda­höld stóðu yfir fram eftir nóttu, þar sem ræddir voru kostir í stöð­unni og hvernig væri best að halda á spil­unum. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans kom útspil Bjartrar fram­tíðar eins og köld vatns­gusa framan í flokk­inn.

Hann var ekki undir það búinn að svona gæti farið, að rík­is­stjórnin myndi ein­fald­lega lið­ast í sundur vegna þessa máls.

Hjá Viðreisn var staðan rædd á fundi, og voru þing­menn sam­mála um að í kort­unum væri það helst að boða til kosn­inga sem fyrst. Þing­flokk­ur­inn ræddi það með hrein­skiptum hætti að málið sýndi glögg­lega að fara þyrfti að öllu með gát í málum þar sem upp­reist æra væri til með­ferðar, og í þessu til­viki hefði það ekki verið gert. Beindust spjótin ekki síst að dóms­mála­ráð­herra, Sigríði Á. Andersen.

Ákvörðun Bjartrar fram­tíðar kom líka á óvart hjá Viðreisn, en umræðan innan flokks­ins var þó fremur á þeim nótum, að þetta mál sýndi mik­il­vægi þess að vanda til verka og ástunda góð vinnu­brögð í við­kvæmum málum í stjórn­sýsl­unni.

Á fjórða tím­anum í nótt var síðan birt yfir­lýs­ing frá þing­flokki Við­reisnar, þar sem lagt var til að boðað yrði til kosn­inga sem fyrst.

Í dag má gera ráð fyrir að staða mála skýrist enn frekar, ekki síst þegar Bjarni Bene­dikts­son ákveður að stíga út úr þagn­ar­múr­num og tjá sig um stöðu mála og það sem fram hefur komið á und­an­förnum sól­ar­hring. Rík­is­stjórn hans er á enda­stöð og leiðin fram á við á þessum kross­götum er ekki aug­ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnarkreppa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár