Elon Musk: Hröð innreið gervigreindar kallar á betra regluverk

Frum­kvöð­ull­inn Elon Musk heldur áfram að vara við því, ef reglu­verk um gervi­greind verður ekki unnið nægi­lega vel og af nákvæmni, áður en hún fer að hafa enn meiri áhrif á líf okkar.

Frum­kvöð­ull­inn Elon Musk, sem meðal ann­ars er stofn­andi Pay Pal, Tesla Motors (Solar City dótt­ur­fé­lag), og SpaceX, var­aði rík­is­stjóra í Banda­ríkj­unum við því, ef reglu­verk um gervi­greind yrði ekki búið til með nægi­lega vönd­uðum hætti, áður en hún færi að hafa enn meira afger­andi áhrif á sam­fé­lög.

Á ráð­stefnu í Rhode Island sagði hann að með­höndlun á gervi­greind­inni, og þeim miklu tækni­fram­förum sem hún myndi leysa úr læð­ingi, fæli í sér „mestu áhættu sem við stæðum frammi fyrir“, að því er fram kemur í frá­sögn Wall Street Journal.

Musk end­ur­flutti við­var­anir sínar, um að stjórn­mála­menn þyrftu að hraða vinnu sinni við að setja betri og nákvæm­ari lög og reglur varð­andi gervi­greind­ina. Hann hefur beitt sér fyrir því að hugað sé sér­stak­lega að öryggi, þegar kemur að gervi­greind­inni, þar sem um við­kvæma tækni er að ræða sem geti bein­línis verið hættu­leg.

„Eins og staða mála er núna þá hefur rík­is­valdið ekki einu sinni inn­sýn í stöðu mála[...] Um leið og fólk áttar sig, þá verður það hrætt, eins og það ætti að vera,“ sagði Musk í ræðu sinni.

Hann sagði margar hættur leyn­ast í þróun gervi­greind­ar­innar, og að hún geti, í versta falli, skapað mik­inn ófrið og jafn­vel leitt til stríðs­á­taka, ef ekki er vandað til verka við gerð reglu­verks og laga.

Hann sagð­ist vera bjart­sýnn að eðl­is­fari og að hans köllun væri sú að hafa góð áhrif á sam­fé­lagið, og sjá fyrir breyt­ingar í fram­tíð­inni. Hann sagði tím­ana sem framundan væru, með til­komu meiri gervi­greindar, væri sér­stak­lega spenn­andi, ekki síst fyrir Banda­ríkin. Það væri þjóð sem ætti rætur hjá land­könn­uðum, sem leit­uðu nýrra tæki­færa. Þetta væri það sem mynd­aði „sjálf“ Band­ríkj­anna, og að hluta mætti líkja þessu saman við þá tíma sem framundan væru, með gríð­ar­legum breyt­ingum sem gervi­greind muni leysa úr læð­ingi.

(Musk ræddi um stöðu mála í við­tals­formi. Hann byrjar að tala á 43. mín­útu í mynd­band­inu hér að ofan).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár