Klikkið er nýr þáttur í Hlaðvarpi Kjarnans

Nýr þáttur um geð­heil­brigði og geð­heil­brigð­is­þjón­ustu hefur hafið göngu sína í Hlað­varpi Kjarnans.

Klikkið er nýr þáttur í Hlaðvarpi Kjarnans þar sem fjallað er um geðheilbrigði, geðheilbrigðismál og áskoranirnar sem bíða neytendum geðheilbrigðisþjónustu.
Klikkið er nýr þáttur í Hlað­varpi Kjarnans þar sem fjallað er um geð­heil­brigði, geð­heil­brigð­is­mál og áskor­an­irnar sem bíða neyt­endum geð­heil­brigð­is­þjón­ustu.

Nýr hlað­varps­þáttur, Klikkið, hefur göngu sína í Hlað­varpi Kjarnans um þessar mundir. Þátt­ur­inn mun birt­ast reglu­lega í hlað­varps­straumi Kjarnans í sumar. Notendur sam­tak­anna Hug­arafls hafa umsjón með þætt­inum.

Hugarafl er vett­vangur fyrir not­endur geð­heil­brigð­is­kerf­is­ins og fag­fólk til þess að koma saman á jafn­ingja­grund­velli og vinna í bata­ferli með sjón­ar­mið vald­efl­ingar að leið­ar­ljósi.

Í Klikkinu er skjól­stæð­ingum Hug­arafls gefið tæki­færi til þess að deila reynslu­heimi sínum og skoð­unum. Við að koma þátt­unum á fót naut Hugarafl aðstoðar nem­enda í meist­ara­námi í verk­efna­stjórnun (MPM) við Háskól­ann í Reykja­vík, en liður í öðru miss­eri náms­ins er að nem­enda­hópar vinna raun­hæft verk­efni að eigin vali í þágu sam­fé­lags­mál­efna.

Klikkið verður þannig liður í fræðslu- og kynn­ing­ar­starfi Hug­arafls. Mark­miðið þátta­gerð­ar­innar er sam­hljóða mark­miðum sam­tak­anna en það er að vera sýni­leg í gegnum alls konar verk­efni og opinni þátt­töku í sam­fé­lags­um­ræðu í því skyni að draga úr for­dómum, stuðla að auk­inni þekk­ingu um bata og bata­ferli, efla sam­starf not­enda og fag­fólks og stuðla að breidd í þjón­ustu við fólk með geð­rask­anir og auknum mann­rétt­indum þeirra. Hugarafl hefur farið mjög vax­andi á und­an­förnum miss­erum og hefur fjölgun félags­manna verið mest í yngsta ald­urs­flokknum.

Í fyrsta þætt­inum er fjallað um batann og spurt: Hvað er bati? Hvað tekur við? Einnig er rýnt í bata­ferlið sjálft og spjallað um bata, lífið, geð­veiki og allt þar á milli.

Þáttinn má heyra í spil­ar­anum hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár