Rannsókn á Íslendingum vísar á lykilinn að hamingju og betri heilsu

Samkvæmt nýrri heil­brigðiskönnun Gallup telur tæp­lega helm­ingur Íslend­inga lifn­að­ar­hætti sína hafa breyst til hins betra und­an­farið ár. Þrátt fyrir það sefur um þriðj­ungur Íslend­inga of lítið. Of lít­ill svefn er alvar­legt lýð­heilsu­vanda­mál sem hefur marg­vís­leg nei­kvæð áhrif á heilsu okkar og lífs­gæði.

Tæpur helm­ingur Íslend­inga telur sig hafa bætt lifn­að­ar­hætti sína með auk­inni hreyf­ingu og breyttu matar­æði und­an­farið ár. Mikið mis­ræmi er hins vegar á milli þess sem talið er einn mesti und­ir­liggj­andi heilsu­far­svand­inn og svo áform Íslend­inga um umbætur, en þar er um að ræða of lít­inn svefn.

Í heil­brigðiskönnun Gallup, sem kynnt var í síð­asta mán­uði, kom fram að 48 pró­sent telur lifn­að­ar­hætti sína hafa breyst til hins betra und­an­farið ár, 11 pró­sent lands­manna telja lifn­að­ar­hætti sína hafa breyst til hins verra og 41 pró­sent telur þá ekk­ert hafa breyst.

Af þeim breyt­ingum á lifn­að­ar­háttum sem lands­menn nefndu voru aukin hreyf­ing, 47 pró­sent, og betra/breytt matar­æði, 46 pró­sent, langal­gengastar. 

Á meðal ann­arra jákvæðra breyt­inga sem þátt­tak­endur nefndu, en þó í tals­vert minna mæli, voru það að neyta minna áfengis, borða minna, betri svefn eða meiri hvíld, að létt­ast, minnka eða hætta að reykja, hug­leiðsla og breytt hug­ar­far. Einnig var nefnt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár