Það er pólitískt val að halda hugvitsiðnaði á Íslandi

Nox Medical hagn­ast á því að greina svefn. Og það er mjög arð­bært. Fyr­ir­tækið sér tugum vel mennt­aðra Íslend­inga fyrir atvinnu og skilar miklum gjald­eyr­is­tekjum. Og þótt það vilji byggj­ast áfram upp hér þá er það ekki víst að fyr­ir­tækið geti það.

Pétur Már Halldórsson og gínan Bob, með búnað frá Nox Medical tengdan við sig.
Pétur Már Hall­dórs­son og gínan Bob, með búnað frá Nox Medical tengdan við sig. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Er svefn arð­væn­legur? Já, hann getur heldur betur verið það. Eða rétt­ara sagt þá getur verið mjög arð­væn­legt að greina hann til að bæta lífs­gæði fólks. Það gerir íslenska hug­vits­fyr­ir­tækið Nox Medical. Eftir að hafa verið stofnað upp úr þró­un­ar­deild land­flótta fyr­ir­tækis fyrir tæpum ára­tug þá hefur það skilað hagn­aði frá því að fyrsta vara þess var sett á markað. Veltan hefur tífald­ast frá árinu 2011 og í fyrra nam fjár­fest­ing í rann­sóknum og þróun um 300 millj­ónum króna, eða um fimmt­ungi af veltu Nox Medical.

Pétur Már Hall­dórs­son, fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, segir samt sem áður að það blasi við að Ísland sé ekki sam­keppn­is­hæft eins og er þegar kemur að upp­bygg­ingu fyr­ir­tækja eins og Nox Medical. Hvat­arnir og tæki­færin séu ein­fald­lega meiri ann­ars staðar. Það þurfi þó ekki að vera þannig. Ákvörð­unin sé ein­fald­lega póli­tísk og snú­ist um vilja. Hvernig atvinnu­líf og sam­fé­lag viljum við byggja upp á Íslandi?

Sprottið upp úr Flögu

Nox Medical er sprottið uppúr öðru frægu íslensku fyr­ir­tæki, Flögu. Flaga var stofnuð árið 1993 út frá hug­mynd Helga Krist­bjarn­ar­sonar, læknis á Kar­ólínska sjúkra­hús­inu í Stokk­hólmi, sem hafði helgað sig svefn­rann­sóknum. Á þeim tíma voru allar svefn­rann­sóknir gerðar með síritum sem skrif­uðu út papp­írs­lengjur. Afrakstur einnar nætur var um 800 blað­síður af pappír, sem rann­sak­endur þurftu svo að fletta í gegnum og merkja inn við­eig­andi atvik og grein­ingar á svefni.

Helgi vildi hins vegar fram­kvæma þessar rann­sóknir með tölvum. Hann safn­aði hópi af verk­fræð­ingum í kringum eld­hús­borðið heima hjá sér og hófst handa.

[adspot]

Flögu óx fiskur um hrygg og varð stórt fyr­ir­tæki í sínum geira, og ekki síður á íslenskan mæli­kvarða. Þegar sem mest var, árið 2005, störf­uðu um 130 manns hjá fyr­ir­tæk­inu hér á landi. Blikur voru hins vegar á lofti á þeim tíma. Helgi hafði dregið sig út úr rekstr­inum vegna veik­inda nokkrum árum áður og nýr for­stjóri var ráð­inn innan úr íslenska banka­kerf­inu. Rekst­ur­inn hafði heldur ekki verið mjög ábata­samur og var fyrst og síð­ast knú­inn áfram af nýju hlutafé frá banda­ríska fyr­ir­tæk­inu ResMed. Aðrir sem komu að fyr­ir­tæk­inu sem hlut­hafar voru þá stærsti banki lands­ins Kaupþing, Bogi Pálsson kenndur við Toyota og Bakka­var­ar­bræð­urnir Lýður og Ágúst Guð­munds­son. Flaga réðst á þessum tíma í skrán­ingu á hluta­bréfa­markað, fór í skuld­setta yfir­töku á keppi­naut í Banda­ríkj­unum fyrir tugi millj­óna dala og á árinu 2005 var kom­inn inn banda­rískur for­stjóri sem vildi fara í algjöra upp­stokkun á rekstr­inum. Honum þótti glóru­laust að fyr­ir­tæki eins og Flaga, sem væri leið­andi á sínu sviði í alþjóð­legum geira, væri rekið á úthjara ver­aldar, Íslandi.

Á þessum tíma var íslenska krónan orðin mjög sterk og laun hér­lendis almennt hærri en gerð­ist víða ann­ars staðar í heim­inum. Það varð því úr að stór hluti starf­semi Flögu var flutt til Kanada, þar sem voru til staðar skattaí­viln­anir fyrir nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki sem vildu stunda rann­sóknir og þróun á nýjum vörum. Á mjög skömmum tíma fækk­aði störfum hjá Flögu á Íslandi úr um 100 niður í ekki neitt. Fyr­ir­tækið var í reynd flutt úr landi.

Bankar sugu til sín verkfræðinga

Á þessum tíma, síðla árs 2005, sugu íslensku bank­arnir til sín hæfi­leika­fólk með allskyns sér­hæf­ingu. Þeir voru sér­stak­lega sólgnir í verk­fræð­inga sem nýtt­ust bönk­unum meðal ann­ars afar vel í gerð flók­inna afleiðu­við­skipta. Margir verk­fræð­ing­anna sem starfað höfðu hjá Flögu hefðu getað farið þessa leið og tvö­faldað launin sín.

Sjö úr hópnum, undir for­ystu Svein­bjarnar Hösk­ulds­sonar, fyrrum þró­un­ar­stjóra Flögu, ákváðu að gera það ekki. Hópurinn setti þess í stað á fót fyr­ir­tækið Nox Medical til að þróa næstu kyn­slóð þeirra vara sem not­aðar höfðu verið til að greina svefn og svefn­trufl­anir.

Nox Medical hóf starf­semi árið 2006. Fyrstu árin voru farin á sultar­ól­inni. Frum­kvöðl­arnir sem að fyr­ir­tæk­inu stóðu greiddu sér lítil sem engin laun og fjár­fest­arnir voru fyrst og síð­ast nán­ustu vanda­menn. Þeir lögðu til 45 millj­ónir króna og Tækni­þró­un­ar­sjóður veitti 30 millj­ónir króna í önd­veg­is­styrk. Þessi fjár­mögnun dug­aði til að koma fyr­ir­tæk­inu á legg. Og fjár­fest­ingin hefur skilað sér marg­falt til baka.

Duttu í lukkupottinn

Fyrsta vara Nox Medical, sem hét Nox-T3, kom á markað í byrjun árs 2009. Áður en það gerð­ist hafði fyr­ir­tækið gert stóran dreif­ing­ar­samn­ing við fyr­ir­tæki sem heitir CareFusion. Það var á þeim tíma skráð á banda­rískan hluta­bréfa­markað og var nýverið selt fyrir tólf millj­arða dala. Samn­ing­ur­inn gekk út á að CareFusion myndi dreifa öllum fram­leiðslu­vörum Nox Medical á alla mark­aði. Samn­ing­ur­inn var því sann­kall­aður lukku­pottur.

Og hann gerði það að verkum að Nox Medical skil­aði rekstr­ar­hagn­aði fyrsta árið eftir að fyrsta varan var komin á markað. Velta fyr­ir­tæk­is­ins var þá strax komin upp í á annað hund­rað millj­ónir króna. Þannig hélst hún næstu þrjú árin og árleg arð­semi var á bil­inu 15-20 pró­sent. Þótt Nox Medical væri ekki að stækka þá var rekst­ur­inn í afar góðu standi.

Innan fyr­ir­tæk­is­ins var samt vilji til að sækja meira fram og þróa fleiri vörur. Eftir nokkurn tíma var það mat for­svars­manna Nox Medical að CareFusion væri ekki að efna að öllu leyti sín samn­ings­bundnu lof­orð. Úr varð að samn­ing­unum var sagt upp og Nox Medical samdi þess í stað við við ResMed, fyrrum sam­starfs­að­ila Flögu, sem vildi fara að kaupa fram­sækn­ari svefn­rann­sókn­ar­vörur en þær sem Flaga gat boðið upp á. Og hófst þá mikið og hratt stækk­un­ar­ferli. Teymið var stækkað, vörum fjölgað og Nox Medical varð kjarna­fram­leið­andi á svefn­rann­sókn­ar­vörum fyrir ResMed-dreifi­kerfið.

Þessi vöxtur var ekki fjár­magn­aður með stór­tækum lán­tökum eða stórum hluta­fjár­aukn­ingum. Hann var fjár­magn­aður með veltufé frá rekstr­inum. Byggður upp á eigin reikn­ing. Og Nox Medical fór frá því að vera sjö manna teymi með aðstöðu innan veggja Nýsköp­un­ar­mið­stöðv­ar­innar í Kelda­holti árið 2006 í að vera fyr­ir­tæki með tugi vel mennt­aðra og eft­ir­sókn­ar­verðra starfs­manna nokkrum árum síðar.

Veltan tífaldaðist á skömmum tíma

Pétur Már Hall­dórs­son er fram­kvæmda­stjóri Nox Medical. Hann segir að skipta megi sögu fyr­ir­tæk­is­ins upp í þrjú tíma­bil. Það fyrsta, árin 2007 til 2008 átti sér stað vöru­þróun. Næstu þrjú hófst tekju­öflun með sölu á vörum og stöð­ug­leika var náð. Frá árinu 2012 hefur átt sér stað „grimmur og brattur vaxta­fer­ill,“ eins og og Pétur kallar hann. „Fyr­ir­tækið hefur tífaldað veltu sína á þessu tíma­bili. Það velti um milljón evrum árið 2011 en velti í fyrra nærri tíu millj­ónum evra. Við erum orðin pínu­lítil stór­iðja í sam­hengi hlut­anna. Veltan í íslenskum krónum í fyrra er á bil­inu 1.500 til 1.600 millj­ónir króna.. Við erum samt hvergi hætt. Við erum rétt að byrja. Það eru mikil vaxta­tæki­færi í þessum svefn­bransa. Svefn­grein­ing á erindi víða.“

Hug­mynda­fræðin sem Pétur vinnur með er að þau þrjú atriði sem skipti mestu máli varð­andi vellíðan séu hreyf­ing, nær­ing og svefn. Ef eitt þess­arra atriða er ekki í lagi, þá erum við ekki í lagi. Vitund um að þessir þrír þættir séu sam­hang­andi er alltaf að aukast og í því fel­ast tæki­færin fyrir Nox Medical, sem er á meðal fremstu fyr­ir­tækja í heimi í fram­leiðslu, rann­sóknum og þróun á svefn­grein­ing­ar­tækjum. Að sögn Péturs getur þessi vöxtur allur átt sér stað hér á Íslandi. Hann getur það, en til þess þarf umhverfi fyr­ir­tækja á borð við Nox Medical að verða sam­keppn­is­hæf­ara við það sem ger­ist ann­ars staðar í heim­inum.

Ekki flókið reikningsdæmi

Hann vill byrja á því að telja til það sem vel er gert. Þar skiptir mestu að fram­lög til Tækni­þró­un­ar­sjóðs hafa verið stór­efld. Það skipti lyk­il­máli til þess að þeir sem hafi fram­sæknar hug­myndir um fram­sækin fyr­ir­tæki fari yfir höfuð af stað. Síðan nefnir hann þá ákvörðun stjórn­valda á síð­asta kjör­tíma­bili að hefja end­ur­greiðslu til þeirra sem eyða í rann­sóknir og þróun.

„Á upp­hafs­metr­unum skipti þessi end­ur­greiðsla og styrkirnir frá Tækni­þró­un­ar­sjóði öllu fyrir Nox Medical. Nú er lög­gjöfin þannig að það sem þú fjár­festir í rann­sókn og þróun fyrir allt að 100 millj­ónir króna þá end­ur­greiðir ríkið allt að 20 pró­sent til baka. Í til­felli Nox Medical erum við farin að fjár­festa fyrir 300 millj­ónir króna á ári.“

Fyr­ir­tækið er því komið langt umfram end­ur­greiðslu­há­markið og engin end­ur­greiðsla fæst af tveimur þriðja hluta þess sem Nox Medical eyðir í að rann­saka og þróa nýjar vörur, og þar með stækka umfang rekst­urs síns. Pétur segir þetta eðli­lega ekki vera hvetj­andi til að eyða svona stórum hluta af veltu sinni, um fimmt­ungi, í rann­sóknir og þróun sem skili engri skamm­tímaarð­semi. Ef Nox Medical væri stað­sett til dæmis í Ástralíu, þar sem helsti sam­keppn­is­að­ili fyr­ir­tæk­is­ins er með heim­il­is­festi, væri end­ur­greiðslan 45 pró­sent af öllu sem eytt væri í rann­sóknir og þróun og hámarks­greiðslur eru bundnar við tekjur, ekki fasta upp­hæð.

„Hvar er þá skyn­sam­legt fyrir okkur að fara í upp­bygg­ingu? Því miður er svarið ekk­ert flókið og reikn­ings­dæmið ekki heldur, það er ekki á Íslandi. Við viljum vera hérna en það er mun skyn­sam­ara og hag­kvæmara fyrir okkur að byggja þennan hluta starf­sem­innar, rann­sóknir og þróun, upp í til dæmis Ástralíu.“

Það eru ekki bara fyr­ir­tæki í svefn­geir­anum sem hafa marg­ít­rekað bent á þessa skertu sam­keppn­is­hæfni Íslands við að halda stórum hluta af starf­semi hug­vits­fyr­ir­tækja, sem skapa mörg vel launuð og skap­andi störf, á Íslandi. Þetta er mál­flutn­ingur sem hefur til að mynda oft heyrst varð­andi Össur og CCP, tvö af flagg­skipum íslensks hug­vits­iðn­aðar.

Takmörk fyrir því sem hægt er að gera hér

Pétur segir að langstærsti hluti starfs­manna Nox Medical séu verk­fræð­ingar, um 90 pró­sent af þeim á fimmta tug starfs­manna sem vinna hjá fyr­ir­tæk­inu. Þetta er raf­magns­verk­fræð­ingar, hug­bún­að­ar­verk­fræð­ingar, heil­brigð­is­verk­fræð­ingar. „Það er eng­inn sem stekkur hér inn full­mót­aður á bandið,“ segir Pétur.

Nox Medical er því að skapa dýr og vel borguð sér­fræð­inga­störf á Íslandi og selja vöru sem byggir á íslensku hug­viti fyrir á annan millj­arð króna á ári fyrir gjald­eyri. En Pétur segir að sá tími geti komið, og sé í raun ekki fjarri miðað við hvernig aðstæður eru, að það verði erfitt að manna fyr­ir­tækið hér­lendis. „Það eru tak­mörk fyrir því hvað við erum með mikið af fólki sem er með reynslu á þessu sviði. Sá pottur er eig­in­lega tómur. Við erum því að taka inn fólk þar sem fyrstu mán­uð­irnir og árin eru kennslu­fasi. Það er ekki spurn­ing um að það eru margir úti í hium stóra heima sem væri fengur að fá.“

En sam­keppn­is­staða Íslands á þessu sviði fer versn­andi, til dæmis með styrk­ingu krón­unnar og vegna þeirra erf­ið­leika sem fylgja fjár­magns­höftum. „Það þarf mikið til að rífa sig upp úr sínu umhverfi og flytja til Íslands til að vinna að verk­efnum þegar þeim bjóð­ast önnur störf nær. Þá eru skatta­hvatar, eins og þekkj­ast t.d. í Danmörku og víðar, skyn­sam­legir. Hvatar þar sem sér­fræð­ingar hagn­ast beint með skatta­af­sláttum í til­tek­inn tíma gegn því að flytj­ast til ákveð­inna landa. Þetta er ekki til staðar á Íslandi. Það er skerð­ing á hæfi okkar og getu til að laða hingað sér­fræð­inga.“

Pólitísk spurning

Það hefur í raun legið fyrir lengi að Ísland þarf að auka við útflutn­ings­verð­mæti sín til að geta staðið undir þriggja til fjög­urra pró­senta hag­vexti á ári til lengri tíma, og með því haldið uppi þeim miklu lífs­gæðum sem við búum við í dag í sam­an­burði við önnur lönd. Ferða­manna­iðn­að­ur­inn er að skila stórum tölum inn í það fram­lag en hinar tvær stóru stoð­irnar undir efna­hags­líf­inu, sjáv­ar­út­vegur og orku­bú­skapur, eru báðar tak­mark­aðar auð­lindir sem erfitt er að kreista enda­laust meira úr.

Því blasir við að aukin þátt­taka í því sem kall­ast almennt alþjóða­geir­inn – sala á vöru og þjón­ustu til ann­arra landa – verður að aukast. Breyta verður íslensku hug­viti í vörur sem hægt er að selja. Og á margan hátt gengur þróun þessa geira vel. Íslenskir lista­menn hafa til að mynda náð ótrú­legum árangri og end­ur­greiðslur til kvik­mynda­gerðar hér­lendis hafa byggt upp geira sem veltir tíu millj­örðum króna á ári. Össur, Marel, CCP og fleiri slík fyr­ir­tæki eru öll enn með ein­hverja starf­semi á Íslandi. En hún er því miður alltaf að verða meira og meira til mála­mynda.

Allir virð­ast taka undir þörf­ina á að bæta starfs­um­hverfi slíkra fyr­ir­tækja hér­lendis í orði en ekki á borði. Að mik­il­vægt sé að halda sem stærstum hluta af starf­semi þeirra á Íslandi í stað þess að rann­sóknar- og þró­un­ar­hlut­inn bygg­ist upp í öðrum löndum þar sem hvat­arnir eru mun fleiri. En ef allir vita þetta, af hverju er þá ekk­ert gert?

Pétur segir þetta mjög ein­fald­lega vera póli­tíska spurn­ingu. „Þetta byrjar og endar þar. Ég held að þetta sé tví­þætt. Að ein­hverju leyti er þetta skortur á því að menn setj­ist niður og reikni dæmið til enda. Á þeim end­anum hefur gætt mis­skiln­ings á því að end­ur­greiðsla á rann­sóknum og þróun sé styrkja­kerfi. Þetta sé sér­tæk leið til að styrkja ákveðin atvinnu­veg og menn hafa frekar viljað setja í gang almennar leiðir í skatta­kerf­inu, en ekki sér­tækar aðgerðir sem gagn­ast fáum. En á sama tíma séu menn ekki að skoða hvert verk­efni fyrir sig og hverja aðgerð fyrir sig.“

Þetta segir hann ein­fald­lega vera mis­skiln­ing sem auð­velt sé að leið­rétta ef dæmin séu reiknuð til enda. „Ef ég stofna fyr­ir­tæki og eyði í það 200 millj­ónum krónum á fyrsta árinu þá skila um 100 millj­ónir króna sér aftur til rík­is­ins í formi skatt­tekna og trygg­inga­gjalds. Ef helm­ingur þeirrar upp­hæðar var eyrn­ar­merktur rann­sóknum og þróun fengi ég 20 pró­sent end­ur­greitt, eða 20 millj­ónir króna. Ríkið hefur því nettó hagn­ast um 80 millj­ónir króna vegna þess að ég tók ákvörðun um að byggja upp fyr­ir­tækið hér­lendis. Það væri verið að end­ur­greiða brot af pen­ingum sem eru í dag ekki að skila sér til rík­is­sjóðs. Þetta er svo­kallað „win-win“.“

Á sama tíma og hug­vits­iðn­að­ur­inn glímir við skerta sam­keppn­is­hæfni tíðkast enn að veita þeim stór­iðju­fyr­ir­tækjum sem horfa til þess að byggja upp verk­smiðjur á Íslandi sér­tæka fjár­fest­inga­samn­inga sem fela í sér allskyns skattaí­viln­anir og aðra hvata. Pétri finnst mjög gremju­legt að horfa upp á gerð slíkra samn­inga á sama tíma og hug­vits­iðn­að­inum er ekki sýndur nokkur skiln­ingur hjá stjórn­völdum. „Það er eig­in­lega óskilj­an­legt hvernig menn sjá hags­munum sínum betur borgið þar en að halda þessum öfl­ugu íslensku fyr­ir­tækjum sem stunda umfangs­miklar rann­sóknir og þróun hér­lendis. Það eru svo óhemju­stór tæki­færi til að efla þessa starf­semi á Íslandi. Það verða sam­stundis til mikil jað­ar­á­hrif innan háskól­anna og þeir efl­ast. Þá eykst geta okkar til að fá ungt og hæfi­leik­a­ríkt fólk aftur til lands­ins. Þá eykst fram­leiðni efna­hags­kerf­is­ins auk þess sem fjöl­breytt atvinnu­líf felur í sér margs­konar sam­fé­lags­leg verð­mæti sem eru ekki mæld í pen­ingum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár