Fyrrverandi seðlabanka­stjóri lýsir mögu­legum brotum Samherja á gjaldeyris­hafta­lögunum

Svein Harald Øygård, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri tengir saman upp­ljóstr­anir í Sam­herj­a­skjöl­unum við Seðla­banka­málið og útskýrir að fyrra málið geti varpað ljósi á hið seinna.

Fyrrverandi seðlabanka­stjóri lýsir mögu­legum brotum Samherja á gjaldeyris­hafta­lögunum
Segir Sam­herj­a­skjölin rétt­læta rann­sókn á Samherja Svein Harald Øygard segir að svo virð­ist sem Sam­herj­a­málið í Namibíu rétt­læti rann­sókn Seðla­bank­ans á gjald­eyr­is­við­skiptum Samherja. Mynd: Paal Krokan-Mathisen

Fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri Íslands, Svein Harald Øygård, segir að gögnin í Sam­herj­a­mál­inu um fjár­magns­flutn­inga Samherja í gegnum banka­reikn­inga í norska bank­anum DNB bendi til mögu­legra brota útgerð­ar­fé­lags­ins á gjald­eyr­is­hafta­lög­unum sem sett voru á Íslandi í kjöl­far efna­hags­hruns­ins árið 2008.  Stundin greindi frá upp­lýs­ingum úr Sam­herj­a­skjöl­unum í Namibíu, meðal ann­ars fjár­magns­flutn­ing­unum í DNB, í sam­starfi við Wikileaks, Kveik og Al Jazeera fyrir tæpum tveimur vikum.  

Eins og greint var frá í þessum umfjöll­unum lok­aði DNB bank­inn banka­reikn­ingum sem til­heyrðu félag­inu Cape Cod FS í skatta­skjól­inu Marshall-eyjum, sem Samherji hafði not­aði frá árinu 2011 til að greiða út laun og JPC Ship Mana­gement á Kýpur í maí í fyrra vegna þess ekki lá fyrir hverjir ættu þessi félög. Níu millj­arðar króna frá Samherja höfðu þá farið um reikn­inga Cape Cod FS og til að greiða laun sjó­manna sem unnu hjá Samherja í Afríku, meðal ann­ars í Namibíu. Tekið skal að ekki er vitað hvort Seðla­banki Íslands hafi haft vit­neskju um Cape Cod FS þegar bank­inn rann­sak­aði mál Samherja en við hús­leit­ina árið 2012 hafði Cape Cod verið til sem félag í eitt og hálft ár. 

„Það hefði ekki verið hægt að skálda þennan skít“

Svein Harald talar um þessi tengsl á milli mál­anna tveggja, Sam­herj­a­máls­ins í Namibíu og Seðla­banka­máls­ins, á Facebook-síðu sinni og setur upp­lýs­ingar um banka­reikn­inga Samherja í DNB bank­anum í sam­hengi við rann­sókn Seðla­banka Íslands á meintum brot Samherja á lög­unum um gjald­eyr­is­mál en þetta mál hófst með hús­leit hjá útgerð­inni árið 2012.

Pistill hans hefst á orð­unum „Það hefði ekki verið hægt að skálda  þennan skít,“ og vísar þar til þess að margt í íslenska efna­hags­hrun­inu hafi verið lyg­inni lík­ast líkt og einnig gildi um mál Samherja í Namibíu. 

Kýpur og möguleg brot á skilaskyldu

Svein Harald segir: „Samkvæmt fréttum áttu sér stað greiðslur frá reikn­ingum Samherja í DNB til Kýpur og til Marshall-eyja sem og til namibískra ráða­manna [….] Áhuga­vert er að fyrir nærri ára­tug síðan spurðu margir sig spurn­inga um hvernig þessir banka­reikn­ingar á Kýpur voru not­aðir.“

Seðla­banka­stjór­inn fyrr­ver­andi útskýrir svo hvernig hann telji að Samherji hafi mögu­lega notað eign­ar­halds­fé­lög sín á Kýpur til að brjóta gegn skila­skyldu þeirri á gjald­eyri sem var í gildi á Íslandi eftir hrunið 2008. 

Skila­skyldan fól í sér að íslensk fyr­ir­tæki og ein­stak­lingar með lög­heim­ili á Íslandi áttu að skila þeim gjald­eyri sem þeir fengu til Íslands, sama hvar svo sem milli­færsl­urnar áttu sér stað. Ef þetta var ekki gert fól það í sér mögu­legt brot á skila­skyld­unni. 

Eins og greint var frá í Stund­inni voru bæði Þor­steinn Már Bald­vins­son og Steinunn Helga Guð­munds­dóttir, fyrr­ver­andi eig­in­kona hans, sektuð vegna brota á skila­skyldu en þau fengu um 2 millj­arða króna milli­færða inn á reikn­inga sína í DNB frá eign­ar­halds­fé­lögum Samherja á Kýpur. Brotin og sekt­irnar voru svo aft­ur­kall­aðar vegna mis­taka sem gerð voru við setn­ingu reglna um gjald­eyr­is­mál. 

Um skil­skyld­una og önnur ákvæði gjald­eyr­is­hafta­lag­anna segir seðla­banka­stjór­inn fyrr­ver­andi: „Ísland setti gjald­eyr­is­höft eftir hrunið 2008. Íslenska krónan var að hruni komin og olli þetta Íslandi og Íslend­ingum miklum skaða, þar sem margir voru með erlend lán á bak­inu. Þess vegna voru sett lög sem bönn­uðu skipti á íslenskum krónum yfir í erlendar myntir í fjár­fest­inga­til­gangi. Að sama skapi voru íslenskir útflytj­endur skuld­bundnir til að skila erlendum gjald­eyri sínum til Íslands.“ 

Var sektaðurÞor­steinn Már Bald­vins­son var sektaður fyrir að skila ekki gjald­eyri til lands­ins eftir hrunið 2008 en Sam­herj­a­skjölin sýna milli­færslur inn á per­sónu­legan banka­reikn­ing hans í norska bank­anum DNB upp á mörg hund­ruð millj­ónir króna. Sektin var svo aft­ur­kölluð vegna mis­taka við laga­setn­ingu.

Svona var hægt að brjóta lögin

Svein Harald segir svo í Facebook-inn­leggi sínu að ein leið til að brjóta gjald­eyr­is­hafta­lögin hafi verið að koma hagn­aði fyrir erlendis, til dæmis með milli­verð­lagn­ingu á fiski. Milli­verð­lagn­ing er þegar til dæmis íslenskt útgerð­ar­fé­lag, sem bæði selur og kaupir fisk útgerð­ar­innar, velur að haga við­skipt­unum þannig að sölu­verð fisks­ins úr landi er umtals­vert lægra en sölu­verð fisks­ins erlendis með það fyrir augum að láta hagn­að­inn af inn­byrðis við­skiptum útgerð­ar­innar mynd­ast erlendis. „Ein leið til að fara fram­hjá gjald­eyr­is­hafta­lög­unum, gæti meðal ann­ars verið að koma hagn­aði af við­skiptum með fisk fyrir á Kýpur í gegnum „milli­verð­lagn­ingu“. Þetta gæti meðal ann­ars falið í sér að selja fisk til félags á Kýpur fyrir lágt verð og svo að láta félagið á Kýpur selja fisk­inn til næsta kaup­anda á miklu hærra verði. Hagn­að­ur­inn myndi þá verða eftir á Kýpur og „fræði­lega“ myndi fyr­ir­tækið bæði losna við skatta og ná að kom­ast fram­hjá gjald­eyr­is­hafta­lög­unum.“

Var RÚV að „búa til glæp“?

Seðla­banka­málið hófst á því að frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Kastljós í Rík­is­sjón­varp­inu kann­aði og birti fréttir um við­skipti Samherja með karfa, sam­kvæmt því sem útgerð­ar­fé­lagið hefur sjálft sagt um upp­haf máls­ins í einu af erindum sínum með málið. „Þann 20. febr­úar 2012 kom frétta­maður Kast­ljóss, Helgi Seljan, á fund í gjald­eyr­is­eft­ir­lit­inu. Bar hann undir starfs­menn þess upp­lýs­ingar sem hann hafði og vörð­uðu verð­lagn­ingu karfa hjá Samherja í tengslum við útflutn­ing félags­ins til dótt­ur­fé­laga sinna. Seðla­bank­inn hefur haldið því fram að þetta hafi markað upp­haf mála­rekst­urs bank­ans á hendur Samherja.“

Inntakið í því sem Kast­ljósið rann­sak­aði og birti umfjöllun um árið 2012 var að Samherji hefði selt karfa frá Íslandi á und­ir­verði til þýsks dótt­ur­fé­lags. Þannig hafi Samherji getað búið sér til meiri hagnað í útlöndum, en að með réttu hefði hagn­að­ur­inn átt að mynd­ast á Íslandi ef fisk­ur­inn hefði verið seldur á mark­aðsvirði frá Íslandi. Þetta er auð­vitað sú aðferð við að skapa hagnað erlendis sem Svein Harald ræðir í inn­leggi sínu þegar hann tengir þessi tvö mál saman með þessum hætti. 

Rétt áður en upp­lýs­ingar um Sam­herj­a­skjölin birt­ust sak­aði Þor­steinn Már RÚV um að hafa búið Seðla­banka­málið til.  „Er eðli­legt að rík­is­fjöl­mið­ill sé að reyna að búa til glæp með með stofnun sem á að vera mesta virð­ing­ar­stofnun lands­ins?,“ sagði hann í við­tali á Bylgj­unni. 

 „Félagið varð við­skipta­vinur í kjöl­far þess að sett voru gjald­eyr­is­höft á Íslandi“

Miðað við mat Sveins Øygård, og þær upp­lýs­ingar sem fram koma í Sam­herj­a­skjöl­unum, er málið aðeins flókn­ara en svo. 

Reikningar stofnaðir út af gjaldeyrishaftalögunum

Eitt af því sem áhuga­vert við við­skipti Samherja við DNB bank­ann er að Samherji hóf notkun á skatta­skjóls­fé­lag­inu Cape Cod FS til að greiða út laun sjó­manna í árs­byrjun 2011 eftir setn­ingu gjald­eyr­is­hafta­lag­anna á Íslandi. 

Eins og Stundin greindi frá fyrir tveimur vikum kom það fram í áhættu­mati sem unnið var innan DNB NOR um við­skipti JPC Shipmana­gement áður en ákveðið var að loka ætti á við­skipti félags­ins hjá DNB NOR að félagið hafi byrjað að eiga í við­skiptum við norska bank­ann árið 2013 út af gjald­eyr­is­hafta­lög­unum á Íslandi. Samherji hafði þá þegar notað dótt­ur­fé­lag þess í nokkur ár enda var starfs­maður útgerð­ar­innar á Kanarí­eyjum með umráða­rétt yfir banka­reikn­ingi félags­ins allt frá árinu 2010. Orðrétt segir um þetta í skýrslu norska bank­ans: „JPC Ship Mana­gement (á Kýpur) Ltd. [bank­inn taldi JPC Ship Mana­gement vera móð­ur­fé­lag] hefur verið við­skipta­vinur LCI, sem nú til­heyrir Ocean Industries Global Seafood Oslo. Félagið varð við­skipta­vinur í kjöl­far þess að sett voru gjald­eyr­is­höft á Íslandi í kjöl­far banka­hruns­ins árið 2008.“

Spurn­ingin sem eftir stendur er hvort þessir banka­reikn­ingar og þessi við­skipti Samherja í gegnum skatta­skjólið hafi átt sér stað gagn­gert út af gjald­eyr­is­hafta­lög­unum og þá hvort þessi við­skipti hafi falið í sér brot á þeim lögum. 

Varpa nýju ljósi á Seðlabankamálið 

Seðla­banka­stjór­inn fyrr­ver­andi ræðir svo um hvernig þessar upp­lýs­ingar úr Sam­herj­a­skjöl­unum geta varpað nýju ljósi á Seðla­banka­málið sem hófst með hús­leit­inni árið 2012.

Þannig virð­ist seðla­banka­stjór­inn vera að ýja að því mögu­lega þurfi að skoða allt Seðla­banka­málið, með­ferð þess í kerf­inu og fyrir dóm­stólum á Íslandi, í ljósi þeirra upp­lýs­inga sem fram koma í Sam­herj­a­skjöl­unum um fjár­magns­flutn­inga og við­skipti Samherja erlendis. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár