Eyþór Arnalds: „Ósæmilegt að segja að Samherji sé einhvers konar mútufélag“

Eyþór Arnalds, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks og stærsti eig­andi Morg­un­blaðs­ins, greip til varna fyrir Samherja í útvarps­þætti. Fyr­ir­tækið hefur afskrifað að hluta 225 milljón króna selj­anda­lán sem það veitti honum til kaupa á hlut þess í Morg­un­blað­inu.

Eyþór Arnalds: „Ósæmilegt að segja að Samherji sé einhvers konar mútufélag“
Eyþór Arnalds og Davíð Oddsson Eyþór fékk selj­anda­lán frá Samherja til að kaupa hlut fyr­ir­tæk­is­ins í Morg­un­blað­inu. Mynd: Mbl/Eggert Jóhannesson

„Maðurinn sem hér situr hefur ítrekað sýnt að hann vill ekki leggja spil sín á borðið,“ sagði Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Pírata, um Eyþór Arnalds, borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þegar þau ræddu saman í þætt­inum Bítið á Bylgj­unni í morgun. Til tals voru kaup Eyþórs á hlut Samherja í Morg­un­blað­inu með selj­anda­láni frá fyr­ir­tæk­inu sem hefur verið afskrifað að stórum hluta, eins og Stundin hefur greint frá.

„Þetta mál snýst ekk­ert endi­lega um það með hvaða hætti Samherji, þetta fyr­ir­tæki sem hefur nú verið stað­fest að greiði mútur til stjórn­mála­manna hafi í huga að nýta Eyþór,“ sagði Dóra Björt. „Það er hags­muna­á­rekstur fal­inn í því að taka við gjöfum, hund­ruðum millj­óna frá stórum fjár­hags­legum aðila. Það er nú aðal­at­riðið. Þess vegna er það þannig að jafn­vel þótt menn hafi verið í full­kom­lega lög­legum við­skiptum þurfa þeir að svara fyrir þau þegar þeir fara í stjórn­málin. Vegna þess að það er mik­il­vægt að almenn­ingur geti full­vissað sig um að þeir séu eigin herra og ekki með leynda sér­hags­muni.“

Eign­ar­halds­fé­lag Eyþórs sem á hluta­bréf í Morg­un­blað­inu er á end­anum fjár­magnað af Kýp­ur­fé­lagi Samherja, Esju Seafood, sem er mið­punkt­ur­inn í mútu­greiðslum og fjár­magns­flutn­ingum Sam­herj­a­sam­stæð­unnar erlendis, sem Stundin hefur greint frá ásamt RÚV, Wikileaks og Al Jazeera. Eyþór fékk 225 milljón króna kúlu­lán frá Samherja fyrir kaupum á hlutnum sem að miklu leyti hefur verið afskrifað.

„Það er alltaf óheppi­legt að stjórn­mála­menn séu mikið í fjöl­miðlum,“ sagði Eyþór í þætt­inum. „Það var Pírati sem átti í Stund­inni og Sam­fylk­ing­ar­þing­maður sem átti í Kjarn­anum. Össur Skarp­héð­ins­son var rit­stjóri tveggja blaða á meðan hann sat á þingi. En ég sagði strax og ég fór í póli­tík­ina að ég mundi draga mig úr þessu. Fór úr stjórn og hef ekki haft afskipti af þessu. Ég tel betra að hafa fjar­lægð á milli.“

Vísar Eyþór þarna til þess að Smári McCarthy, þing­maður Pírata, hafi átt 2 pró­senta hlut í Stund­inni þegar hann var kos­inn á þing árið 2016. Seldi hann hlut sinn í kjöl­far þess.

Eyþór situr enn í stjórn fyr­ir­tækja með net dótt­ur­fé­laga, þrátt fyrir lof­orð hans fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar 2018 um að draga sig úr við­skipta­líf­inu. Félag Eyþórs, Ramses II ehf., er stærsti ein­staki eig­andi Morg­un­blaðs­ins með rúm­lega 20 pró­senta hlut. Hann hefur ekki svarað ítrek­uðum fyr­ir­spurnum Stund­ar­innar vegna máls­ins.

Dóra Björt sagði að hana grun­aði að sann­leik­ur­inn í mál­inu væri svartur af því að Eyþór hefur ekki svarað af hvaða ástæðum lánið frá Samherja var afskrifað. Hún sagði Eyþór vera marg­saga í mál­inu og ekki koma heið­ar­lega fram.

„Þetta eru líka pen­ingar fengnir frá fyr­ir­tæki sem hefur bein­línis það hlut­verk að múta stjórn­mála­mönnum“

„Þetta er mjög vont mál allt saman og það er rosa­lega vont þegar stjórn­mála­maður hefur svo bein tengsl við svo stóran hags­muna­að­ila í okkar sam­fé­lagi,“ sagði Dóra Björt. „Nú kemur svo í ljós að það er ekki nóg með að hann er algjör­lega háður þarna mjög stórum hags­muna­að­ila. Þetta eru líka pen­ingar fengnir frá fyr­ir­tæki sem hefur bein­línis það hlut­verk að múta stjórn­mála­mönnum.“

Eyþór sagði Dóru Björt rugla honum saman sem per­sónu og félag­inu sem hann á. „Í öðru lagi finnst mér nú ósæmi­legt að segja að Samherji sé ein­hvers konar mútu­fé­lag, eins og mér heyr­ist hún vera að segja,“ sagði hann. „Það að Samherji hafi fengið fjár­mögnun frá öðru félagi sem er í ein­hverjum rekstri síðan og svo fram­vegis gerir ekki Samherja að ein­hvers konar félagi eins og hún lýsir. Við­skiptin voru á milli Samherja og félags í minni eigu.“

Eyþór sagð­ist ekki vera sá eini í borg­ar­stjórn sem á fjár­hags­legra hags­muna að gæta utan starfs síns sem borg­ar­full­trúi og bætti því við að selj­anda­lán væru algeng í áhættu­sömum við­skiptum. „Ef við eigum að fara í nýjar spurn­ingar gagn­vart mér þá á sama að gilda um aðra finnst mér. Þannig að ég segi eigum við ekki bara að klára þessar reglur sem var sam­þykkt fyrir ári síðan að gera, Dóra, um að auka upp­lýs­inga­gjöf­ina og láta það gilda um alla, en ekki fara í dylgjur gagn­vart mér og öðrum fyr­ir­tækjum.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár