Nýtt efni

Heill heimur í íslenskum fornbréfum
Lára Magnúsardóttir, doktor í sagnfræði, byrjaði að leita í Íslenska fornbréfasafninu á námsárunum sínum og hefur ekki hætt því síðan.

Byggðaþróunarverkefni sem horft er til
Þekkingarsetrið Nýheimar var sett á fót árið 2013 á Höfn í Hornafirði og er óhætt að segja að það hafi verið mikilvægur þáttur í samfélaginu fyrir austan síðan þá. Önnur sveitarfélög horfa hýru auga á starfsemina sem vinnur markvisst með ungu fólki og eflir byggðaþróunina á svæðinu.

„Viðbúið“ að Bandaríkin myndu kalla hermenn frá Þýskalandi
Þýski varnarmálaráðherrann segir Evrópu þurfa að taka meiri ábyrgð á eigin börnum. Það hafi verið viðbúið að Bandaríkjaforseti myndi kalla hermenn heim frá Evrópu. Fimm þúsund bandarískir hermenn hafa verið kallaðir heim.

Trump segist ætla að hækka tolla á bíla frá ESB í 25%
Donald Trump boðar tollahækkanir á evrópska bíla og sakar Evrópusambandið um að standa ekki við fyrri viðskiptasamning.

ESB frystir fjármagn til Serbíu vegna breytinga á dómskerfinu
Evrópusambandið hefur stöðvað fjárframlög til Serbíu vegna umdeildra breytinga á dómskerfi landsins. Alls eru 1,58 milljarðar evra eyrnamerktir umsóknarríkinu.

Viðurkennir að það hafi verið mistök að fara ekki í Silfrið
Oddviti Flokks fólksins segir að það hafi verið mistök eftir á að hyggja að þiggja ekki boð í Silfrið á sínum tíma. Það hafi þó verið góðar og gildar ástæður fyrir því.

Píratar undrandi á Góðan daginn-framboðinu: „Mér finnst þetta mjög skrítið“
Það hitnaði kolunum í oddvitasamtali Heimildarinnar þegar það kom í ljós að oddviti Góðan daginn-framboðsins var ráðinn til starfsins. Hann segist ekki vera á launum og gerir ekki athugsemd við að fjársterkur einstaklingur velji fólk á framboðslista.

Olía hækkar um 7% eftir viðvörun Trumps um langt hafnarbann
Útlit er fyrir að hafnarbann Bandaríkjanna á írönskum höfnum gæti staðið mun lengur en áður hefur verið gert ráð fyrir. „Þeir ættu að verða skynsamir fljótlega!“ segir Donald Trump Bandaríkjaforseti um Írani. Olíuverð hefur náð nýjum hæðum.

Forseti Írans segir hafnarbann Bandaríkjanna dæmt til að mistakast
Masoud Pezeshkian, forseti Írans, segir hafnarbann Bandaríkjanna á íranskar hafnir andstætt alþjóðalögum.

Oddvitasamtöl: Góðan daginn, Flokkur fólksins og Píratar
Oddvitasamtöl Heimildarinnar halda áfram í dag, en þá mætast Ingimar Þór Friðriksson fyrir Góðan daginn, Guðmundur Ingi Þóroddsson fyrir Flokk fólksins og Alexandra Briem fyrir Pírata.

Þurfa að fækka starfsmönnum vegna úrsagnar Guðmundar
Flokkur fólksins má hafa færra starfsfólk í vinnu á kostnað Alþingis eftir að Guðmundur Ingi Kristinsson þingmaður gekk úr flokknum. Fjöldi starfsmanna ræðst af þingstyrk hvers flokks og riðlar úrsögnin skiptingu aðstoðarmanna á milli flokka. Framsókn má í staðin bæta við sig.

Okkar borg ætlar ekki að flæma múslima úr landi
Baldur Borgþórsson, annar maður á lista Okkar borgar, segir það ekki stefnu framboðsins að flæma múslima úr landi, en oddvitinn lét þau orð falla að hann vildi gera það.

Verðbólgan lækkar lítillega
Verðbólga mælist nú 5,2 prósent, sem er það sama og hún mældist í janúar og febrúar. Það er lækkun um 0,2 prósentustig á milli mánaða. Verðhækkanir á bensíni og dísil höfðu einna mest áhrif.

Oddvitasamtöl: Miðflokkur, Okkar borg, Samfylking og Sjálfstæðisflokkur
Oddvitasamtöl Heimildarinnar halda áfram í dag, en þá mætast Ari Edwald fyrir Miðflokkinn og Baldur Borgþórsson fyrir Okkar borg í fyrri umferð og Pétur H. Marteinsson fyrir Samfylkinguna og Hildur Björnsdóttir fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

„Er þá atkvæði greitt þér atkvæði greitt Miðflokknum?“
Skotin gengu á milli oddvita Viðreisnar og Framsóknarflokks í Oddvitasamtali Heimildarinnar í Tjarnarbíói í gærkvöldi. Björg Magnúsdóttir tók engu að síður fram að þau Einar Þorsteinsson væru vinir: „Einar er frændi minn.“









