Seðlabankinn seldi sex prósent hlut í Kaupþingi til vogunarsjóðs

Langstærsta óselda eign Kaupþings er 87 prósent hlutur í Arion banka.
Langstærsta óselda eign Kaup­þings er 87 pró­sent hlutur í Arion banka. Mynd: Arion banki

Taconic Capital, vog­un­ar­sjóður sem er langstærsti eig­andi eign­ar­halds­fé­lags­ins Kaup­þings, hefur keypt rúm­lega sex pró­senta hlut Eigna­safns Seðla­banka Íslands (ESÍ) í Kaup­þingi á verði sem áætlað er um 15 millj­arðar króna. Um er að ræða kaup á bæði eign­ar­hlutum og kröfum sem ESÍ átti í Kaup­þingi. ESÍ hafði fram­selt bréf sín til Seðla­bank­ans í síð­asta mán­uði og það var Seðla­bank­inn sem lét erlendan fjár­fest­ing­ar­banka koma bréf­unum í sölu­ferli.

Heild­ar­eignir Kaup­þings um mitt þetta ár voru metnar á 475 millj­arða króna. Langstærsta óselda eign Kaup­þings er 87 pró­sent hlutur í Arion banka, við­skipta­banka sem starfar að mestu á íslenskum mark­aði og var end­ur­reistur af íslenska rík­inu með íslenskum inn­stæð­um. Frá þessu er greint í DV í dag.

Þar segir að Taconic Capital hafi á und­an­förnum mán­uðum reglu­lega komið á fram­færi áhuga sínum um að kaupa hlut Seðla­bank­ans í Kaup­þingi. Samhliða hefur sjóð­ur­inn verið að auka hlut sinn veru­lega með upp­kaupum á hlutum ann­arra. Þann 1. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn áttu þrír sjóðir Taconic Capital um 33 pró­sent hlut í Kaup­þingi og því er hlutur vog­un­ar­sjóðs­ins að minnsta kosti orð­inn 39 pró­sent eftir kaupin.

Með söl­unni er Seðla­banki Íslands að selja óbeinan eign­ar­hlut sinn í íslenskum banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár