Kosningar skili ekki endilega betri stöðu

Margir kostir eru í stöð­unni sem komnir eru upp í kjöl­far stjórn­ar­slita og telur Eva Heiða Önnu­dóttir stjórn­mála­fræð­ingur að ekki sé endi­lega ein­fald­ast að boða til kosn­inga.

Erfitt er að átta sig á stöð­unni sem komin er upp eftir stjórn­ar­slitin. Þetta segir Eva Heiða Önnu­dóttir, nýdoktor við stjórn­mála­fræði­deild við Háskóla Íslands. Betur muni koma í ljós hvað verður þegar for­menn flokk­anna hafa talað saman í dag. Formenn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna hafa hent á milli sín í morgun hvort betra sé að boða til kosn­inga eða mynda nýja rík­is­stjórn.

Eva Heiða telur að nýjar kosn­ingar muni ekki endi­lega skila auð­veld­ari stöðu í íslenskum stjórn­málum. Því miðað við síð­ustu kosn­ingar og nýj­ustu skoð­ana­kann­anir þá yrðu stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður jafn vanda­samar og þær voru í fyrra.

Kosningar 45 daga eftir þingrof

For­sæt­is­ráð­herra fer í reynd með það vald að rjúfa þing en for­set­inn gerir það að beiðni hans. Þingrof hefur fyrst og fremst þau áhrif að boðað er til kosn­inga og þing­störfum lýkur fljót­lega eftir að til­kynn­ingin hefur verið lesin upp eða gefin út.

Í stjórn­ar­skránni kemur fram að áður en 45 dagar eru liðnir frá því að til­kynnt var um þing­rofið skuli boða til kosn­inga. Í for­seta­bréfi um þing­rof kemur því dag­setn­ing kosn­ing­anna fram enda fellur þá saman gild­is­taka þing­rofs og kosn­ing nýs þings. Þetta var hins vegar gert árið 1931 og 1974 til að koma í veg fyrir að Alþingi lýsti van­trausti á stjórn­ina og til að knýja fram kosn­ingar strax.

Í 24. gr. stjórn­ar­skrár­innar kemur fram að for­seti lýð­veld­is­ins geti rofið Alþingi og skuli þá stofnað til nýrra kosn­inga áður en 45 dagar eru liðnir frá því er gert var kunn­ugt um þing­rofið. Enda komi Alþingi saman eigi síðar en tíu vikum eftir að það var rofið. Alþing­is­menn skulu halda umboði sínu til kjör­dags.

Tíminn knappur

For­sæt­is­ráð­herr­ann hefur umboð til stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðna þangað til hann skilar því form­lega til for­seta. Eva Heiða telur að hann gæti reynt að mynda nýja stjórn en ef ekki þá muni hann skila umboð­inu. Eftir það muni for­set­inn ákveða næstu skref eftir að hafa rætt við for­menn ann­arra flokka. Fjórði mögu­leik­inn sé að þing­rof verði en þá verði boðið til nýrra kosn­inga ekki seinna en eftir 45 daga.

[links]Eva Heiða segir að ekk­ert form­legt ferli sé fyrir svona stöðu. „Það kæmi mér ekki á óvart ef for­set­inn myndi vilja ræða við aðra leið­toga,“ segir hún. Ef þing­rof yrði núna kæmu til önnur álita­mál. Flokkar þyrftu tíma til að setja upp lista og safna með­mælum. Þetta eigi ekki ein­ungis við um flokka á þingi heldur hina sem eru fyrir utan þing. Hún bendir á að þetta snú­ist ekki ein­ungis um sann­girni gagn­vart fram­boðum heldur gagn­vart kjós­endum líka.

Mörgum spurn­ingum er enn ósvarað eins og ástandið er núna. Eva Heiða segir að huga þurfi að hvað verði um fjár­lögin. Ef starfs­stjórn taki til starfa þá þurfi hún að afgreiða fjár­lögin sem nú eru til­búin. Í fyrra afgreiddi starfs­stjórn fjár­lög sem hún sjálf kom með en ef starfs­stjórn yrði sam­an­sett af stjórn­ar­and­stöðu þá myndu málin flækj­ast. Staðan sé því alls ekki ein­föld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnarkreppa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár