Fjórar konur á meðal fimm efstu í könnun Samfylkingar – Oddvita í Reykjavík hafnað

Fari upp­still­ing­ar­nefnd Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík eftir nið­ur­stöðu könn­unar sem gerð var á meðal félags­manna munu konur leiða bæði Reykja­vík­ur­kjör­dæmin. Ágúst Ólafur Ágústs­son varð ekki á meðal fimm efstu í könn­un­inni.

Helga Vala Helga­dóttir þing­maður, Kristrún Frosta­dóttir, aðal­hag­fræð­ingur Kviku banka, Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir þing­maður, Jóhann Páll Jóhanns­son, fyrr­ver­andi blaða­maður og núver­andi starfs­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, og Ragna Sig­urð­ar­dóttir, for­seti ungra jafn­að­ar­manna, lentu í fimm efstu sæt­unum í skoð­ana­könnun sem haldin var á meðal félaga í Sam­fylk­ing­unni í Reykja­vík í síð­asta mán­uði. Þetta er full­yrt í Frétta­blað­inu í dag en nið­ur­stöður könn­un­ar­innar eiga ekki að vera opin­berar heldur ein­ungis aðgengi­legar upp­still­ing­ar­nefnd.

Skoð­ana­könn­un­inni er ætlað að veita upp­still­ing­ar­nefnd flokks­ins, sem í sitja 17 manns, sýn á vilja flokks­manna í höf­uð­borg­inni þegar hún raðar á lista fyrir næstu kosn­ingar. Nefndin er þó ekki bundin af nið­ur­stöð­unni.

Samkvæmt þessu mun Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður og núver­andi odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður, að öllum lík­indum ekki vera í sæti á lista flokks­ins sem ætti mögu­leika á að koma honum á þing. Jóhanna Vigdís Guð­munds­dóttir, sem var í öðru sæti á lista flokks­ins í Reykja­vík suður fyrir rúmum fjórum árum, nær heldur ekki inn á lista yfir fimm efstu menn. Það gera rit­höf­und­ur­inn Einar Kárason og Eva H. Bald­urs­dóttir, lög­maður og jóga­kenn­ari, sem sátu í þriðja sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar í sitt­hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu 2017, ekki heldur.

[adspot]Rósa Björk, sem var kjörin á þing fyrir Vinstri græn í síð­ustu kosn­ingum en skipti yfir í Sam­fylk­ing­una í des­em­ber síð­ast­liðnum, hefur ekki úti­lokað að bjóða sig fram í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, Kraganum svo­kall­aða, þar sem hún leiddi lista Vinstri grænna 2017. Til þess að hún leiddi þar þyrfti Guð­mundur Andri Thorsson að víkja og sætta sig við sæti neðar á lista. Gangi þau áform eftir ættu Helga Vala og Kristrún að leiða sitt hvort Reykja­vík­ur­kjör­dæmið, verði farið eftir nið­ur­stöðu skoð­ana­könn­un­ar­innar, og Jóhann Páll og Ragna að vera í öðru sæti í sitt hvor þeirra.

Sem stendur er Sam­fylk­ingin með einn þing­mann í hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu og einn þing­mann í Suð­vest­ur­kjör­dæmi.

[links]Í nýlegri umfjöllun Kjarnans, sem byggði á nið­ur­stöðu tveggja kann­ana MMR sem gerðar voru um mán­aða­mótin októ­ber/nóv­em­ber, mæld­ist fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 18,4 pró­sent. Fylgi á þeim slóðum myndi skila flokknum 4-5 þing­sætum í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur. Ef hann vinnur kosn­inga­sigur í borg­inni gætu þau orðið sex. Líkleg upp­skera í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, miðað við stöðu mála í könn­unum um þessar mundir, yrðu tvö þing­sæti.

Í sömu umfjöllun kom fram að Sam­fylk­ingin væri á miklu skriði hjá yngstu kjós­end­unum og konum. Í könnun sem MMR birti dag­inn fyrir kosn­ing­arnar 2016 mæld­ist Sam­fylk­ingin með eitt pró­sent fylgi í ald­urs­hópnum 18 til 29 ára. Í haust var Sam­fylk­ingin með 19,3 pró­sent fylgi hjá þeim ald­urs­flokki. Þá kom fram í umfjöll­un­inni að Sam­fylk­ingin nyti stuðn­ings 21,4 pró­sent kvenna en ein­ungis 11,9 pró­sent karla.

Fyrir liggur að Logi Ein­ars­son, for­maður flokks­ins, muni leiða í Norð­aust­ur­kjör­dæmi en óljóst er hvernig málum verður háttað í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, þar sem þing­mað­ur­inn Guðjón Brjáns­son leiddi síð­ast, og í Suð­ur­kjör­dæmi, þar sem Oddný Harð­ar­dóttir er sitj­andi odd­viti. Heim­ildir Kjarnans herma að vilji sé hjá mörgum áhrifa­mönnum innan flokks að gera breyt­ingar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og sækja fastar fylgi í þétt­býl­ari sveit­ar­fé­lög innan þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár