Framsókn fundar en þögn hjá forystu Sjálfstæðisflokksins

Formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins telur lík­leg­ast að gengið verði til kosn­inga.

Bjarni Benediktsson
Bjarni Bene­dikts­son Mynd: Birgir Þór

Þing­flokks­fundur fer fram hjá Fram­sókn­ar­flokknum á eftir en að sögn Gunnars Braga Sveins­sonar, þings­manns flokks­ins, hefur ekk­ert verið rætt um stöðu mála á hinu póli­tíska sviði, eftir atburði gær­dags­ins og næt­ur­innar, innan þing­flokks­ins ennþá.

Hann sagði Fram­sókn­ar­menn rólega yfir stöð­unni, enda bein­ist spjótin að rík­is­stjórn­inni og stjórn­ar­flokk­unum.

Ekkert hefur heyrst frá Sjálf­stæð­is­flokknum ennþá, en fundað var linnu­laust í nótt eftir að Björt fram­tíð kom þeim skila­boðum form­lega áleiðis til flokks­ins og Við­reisnar, sam­starfs­flokk­anna í rík­is­stjórn, að Björt fram­tíð ætl­aði sér að slíta sig frá stjórn­ar­sam­starf­inu.

Eins og fram kom í frétta­skýr­ingu sem birt­ist á vef Kjarnans í nótt, þegar titr­ing­ur­inn var sem mestur, þá komu skila­boðin frá Bjartri fram­tíð eins og köld vatns­gusa framan í for­ystu flokks­ins.

Nú þegar hafa þau sjón­ar­mið komið skýrt frá Katrínu Jak­obs­dóttur, for­manni Vinstri grænna, Óttarri Proppé, heil­brigð­is­ráð­herra og þing­manni Bjartrar fram­tíðar, Bene­dikti Jóhann­essyni, for­manni Við­reisnar, Loga Ein­ars­syni, for­manni Sam­fylk­ing­ar­innar, og Birgittu Jóns­dóttur, þing­flokks­for­manni Pírata, að kosn­ingar ættu að vera næst á dag­skrá.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir í sam­tali við mbl.is, að hann telji lík­leg­ast - ekki síst í ljósi þess hvernig til­raunir til rík­is­stjórn­ar­mynd­unar gengu fyrir sig síð­ast - að gengið verði til kosn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnarkreppa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár