Búið að semja reglugerð sem heimilar slit á félögum sem skila ekki ársreikningi

Fimm ár eru síðan að ákvæði var sett í lög sem heim­il­aði slit á þeim félögum sem skil­uðu ekki árs­reikn­ingi innan 14 mán­aða frá lokum reikn­ings­árs. Það hefur aldrei verið virkt þar sem reglu­gerð skorti. Hún hefur nú verið lögð fram til umsagnar.

Það er ráðuneyti Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur sem samdi drögin að reglugerðinni.
Það er ráðu­neyti Þórdísar Kol­brúnar R. Gylfa­dóttur sem samdi drögin að reglu­gerð­inni. Mynd: Bára Huld Beck

Atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið hefur birt drög að reglu­gerð í sam­ráðs­gátt stjórn­valda sem heim­ilar árs­reikn­inga­skrá skatts­ins að slíta félögum sem hafa ekki skilað árs­reikn­ingum 14 mán­uðum eftir að reikn­ings­ári lýkur.

Ákvæði sem heim­ilar slit á félögum sem sinna ekki lög­bund­inni skila­skyldu á árs­reikn­ingum hefur verið til staðar í lögum frá árinu 2016. Kjarninn greindi nýverið frá því að henni hefði aldrei verið beitt, vegna þess að það ráðu­neyti sem stýrir mála­flokknum,, sá hluti atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins sem heyrir undir Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfa­dóttur, hafi ekki gefið út reglu­gerð sem virkjar það.

Því hefur ákvæðið verið dauður stafur í fimm ár og engu félagi sem virt hefur lögin um skil á árs­reikn­ingi að vettugi hefur fyrir vikið verið slitið.

Drögin verða til umsagnar í sam­ráðs­gátt­inni til 20. sept­em­ber næst­kom­andi. Að óbreyttu mun reglu­gerðin taka sam­stundis gildi að þeim tíma liðnum og því ætti að vera mögu­legt að beita ákvæð­inu sam­stundis gagn­vart þeim félögum sem hafa ekki skilað inn árs­reikn­ingum fyrir árið 2019 og fyrr og strax í byrjun mars á næsta ári gagn­vart þeim sem hafa þá enn ekki skilað reikn­ingum vegna árs­ins 2020.

Hægt að sekta félög um 600 þúsund krónur

Það hefur lengi verið vanda­mál að fá íslensk félög til að skila árs­reikn­ingum inn til Skatts­ins á réttum tíma. Samkvæmt lögum á að skila slíkum átta mán­uðum eftir að reikn­ings­ári lýkur, en í flestum til­fellum rennur sá frestur út 1. sept­em­ber á ári hverju. Árið 2007 höfðu ein­ungis 15,4 pró­sent félaga í land­inu sem áttu að skila inn árs­reikn­ingi gert það á réttum tíma.

[adspot]Árið 2016 voru inn­leidd í lög við­ur­lög við því að skila ekki inn árs­reikn­ingi á réttum tíma. Annars vegar átti að vera hægt að sekta félög um 600 þús­und krónur ef þau skil­uðu ekki innan átta mán­aða og hins vegar átti að vera hægt að slíta þeim ef árs­reikn­ingar hefðu enn ekki borist sex mán­uðum eftir að átta mán­aða frest­ur­inn rann út, eða 14 mán­uðum eftir að reikn­ings­ári lauk.

Fyrir flest félög er 600 þús­und króna sekt ekki erfið viður­eignar og því lá ljóst fyrir að hótun um slit á félagi myndi virka sem meiri hvati til skila en sekt­ar­greiðslan.

Kjarninn spurði Skattinn að því í síð­asta mán­uði hversu oft stofn­unin hefði beitt ákvæð­inu um slit á félagi frá því að það var leitt í lög fyrir fimm árum. Í svari stofn­un­ar­innar kom fram að það hefði aldrei verið gert þar sem ákvæðið væri í raun óvirkt. Ástæðan: ráðu­neytið sem stýrir mála­flokknum hafði aldrei sett reglu­gerð sem virkj­aði það.

Þegar Kjarninn leit­aði skýr­inga hjá ráðu­neyt­inu feng­ust þau svör, í síð­ustu viku, að unnið hefði verið að gerð reglu­gerðar um nokk­urt skeið í sam­starfi við Skattinn og að hún væri á loka­metr­unum. Í svör­unum sem Skatt­ur­inn sendi Kjarn­anum um málið í ágúst kom ekk­ert fram um að hann hefði unnið að gerð reglu­gerðar í sam­starfi við ráðu­neytið.

Fá frest eftir að fresturinn er liðinn

Í drög­unum sem birt voru í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í gær kemur fram að þegar 14 mán­aða frest­ur­inn er lið­inn muni árs­reikn­inga­skrá senda til­kynn­ingu til við­kom­andi félags, þar sem veittur verður fjög­urra vikna frestur til þess að skila árs­reikn­ingi eða eftir atvikum sam­stæðu­reikn­ingi sem upp­fyllir kröfur laga. Ekki verða veittir frek­ari frestir af hálfu árs­reikn­inga­skrár.

[links]Ef þessi loka­frestur er virtur að vettugi mun árs­reikn­inga­skrá senda hér­aðs­dómi beiðni um að félag verði tekið til skipta.

Dómari mun svo meta fram­lagða kröfu og taka ákvörðun um með­ferð hennar. „Ef stjórn félags eða fram­kvæmda­stjóri mætir til fyrstu fyr­ir­töku getur dóm­ari orðið við beiðni félags um allt að tveggja mán­aða frest á með­ferð kröf­unnar[...]Ef full­nægj­andi árs­reikn­ingi og sam­stæðu­reikn­ingi ef við á, er skilað til árs­reikn­inga­skrár eftir að krafa um skipti hefur komið fram en áður en úrskurður um skipti er kveð­inn upp, aft­ur­kallar árs­reikn­inga­skrá kröfu um skipti á félagi. Skilyrði aft­ur­köll­unar kröfu um skipti, er að félag hafi greitt allan kostnað vegna skipta, sem og álagða sekt vegna van­rækslu á réttum skilum árs­reikn­ing.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár