Guðmundur og Birna Eik leiða lista Sósíalistaflokksins í Suðurkjördæmi

Sós­í­alista­flokkur Íslands hefur nú birt þrjá af sex fram­boðs­listum flokks­ins fyrir kom­andi kosn­ingar. Odd­vit­inn í Suð­ur­kjör­dæmi segir að hið „órétt­láta sam­fé­lag sem öfga­kap­ít­al­ismi nýfrjáls­hyggj­unnar hefur troðið upp á almenn­ing“ riði til falls.

Efstu frambjóðendur Sósíalistaflokksins í Suðurkjördæmi.
Efstu fram­bjóð­endur Sós­í­alista­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi. Mynd: Samsett

Guð­mundur Auð­uns­son stjórn­mála­hag­fræð­ingur skipar fyrsta sæti á lista Sós­í­alista­flokks Íslands í Suð­ur­kjör­dæmi fyrir kom­andi kosn­ingar, en list­inn var opin­ber­aður í morgun. Hann hefur starfað í fram­kvæmda­stjórn flokks­ins í tvö ár. Guð­mundur lauk fram­halds­námi í alþjóða­hag­fræði og alþjóða­stjórn­mála­fræði í Banda­ríkj­unum en hefur lengst af búið í London.

Í öðru sæti er Birna Eik Bene­dikts­dóttir fram­halds­skóla­kenn­ari og sex barna móðir. Hún er ættuð af suð­ur­landsund­ir­lend­inu og að vestan. Birna hefur starfað innan flokks­ins frá stofnun hans með ýmsum hætti og situr nú í fram­kvæmda­stjórn hans. Birna flutt­ist til Dan­merkur 18 ára gömul en sneri heim til Íslands með börn og buru fyrir fimm árum og býr nú á Selfossi.

[links]Sós­í­alista­flokk­ur­inn, sem býður nú fram til Alþingis í fyrsta sinn, hefur þar með kynnt þrjá af sex fram­boðs­listum sínum. Í lok síð­ustu viku var list­inn í Suð­vest­ur­kjör­dæmi opin­ber­aður og á þriðju­dag listi flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður.

Fyrir liggur að Gunnar Smári Egilsson, stofn­andi flokks­ins og for­maður fram­kvæmda­stjórnar hans, ætlar að gefa kost á sér á lista fyrir kom­andi kosn­ingar, en hann er ekki á þeim þremur sem hafa þegar birst. Líklegt verður að telja verði stað hann Sós­í­alista­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður.

Öllum list­unum er stillt um af slembivöldum hópi meðal félaga flokks­ins.

[adspot]Í til­kynn­ingu sem send var út vegna list­ans í Suð­ur­kjör­dæmi segir Guð­mundur, odd­viti flokks­ins í kjör­dæm­inu, að honum þyki Ísland standa á tíma­mótum. „Hið órétt­láta sam­fé­lag sem öfga­kap­ít­al­ismi nýfrjáls­hyggj­unnar hefur troðið upp á almenn­ing riðar til falls. Samt halda auð­valds­flokk­arnir áfram með þá stefnu sína að einka­væða eignir almenn­ings og almanna­þjón­ust­una og ætla að halda því áfram þvert á vilja þorra almenn­ings. Við getum stoppað þetta.“

Listi Sósíalistaflokksins í Suðurkjördæmi

  1. Guð­mundur Auð­uns­son, stjórn­mála­hag­fræð­ingur
  2. Birna Eik Bene­diks­dóttir, fram­halds­skóla­kenn­ari
  3. Ástþór Jón Ragn­heið­ar­son, þjálf­ari og vara­for­maður ASÍ-UNG
  4. Arna Þórdís Árna­dóttir, verk­efna­stjóri
  5. Unnur Rán Reyn­is­dóttir, hárgsnyrti­meist­ari og -kenn­ari
  6. Þór­bergur Torfason, sjó­maður
  7. Einar Már Atlason, sölu­maður
  8. Þórdís Bjarn­leifs­dóttir, nemi
  9. Arn­grímur Jónsson, sjó­maður
  10. Guð­mundur Eyjólfur Jóelsson, bif­reiða­stjóri
  11. Bjartey Her­manns­dóttir, mót­töku­rit­ari
  12. Pawel Adam Lopatka, land­vörður
  13. Sigurður Erlends Guð­bjarg­ar­son, raf­í­þrótta­þjálf­ari
  14. Þórdís Guð­bjarts­dóttir, öryrki
  15. Kári Jónsson, verka­maður
  16. Bergljót Dav­íðs­dóttir, blaða­maður
  17. Elínborg Stein­unn­ar­dóttir, öryrki
  18. Stefán Helgi Helgason, atvinnu­rek­andi
  19. Finn­björg Guð­munds­dóttir, eft­ir­launa­kona
  20. Viðar Stein­ars­son, bóndi
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár