Katrín Baldursdóttir og Símon Vestarr efst hjá Sósíalistaflokknum í Reykjavík suður

Listi Sós­í­alista­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður hefur verið kynntur. „Þetta er fjöl­breyttur listi og kraft­mik­ill. Fólk sem vill breyta sam­fé­lag­inu þannig að allir hafi tæki­færi til blómstra, hafi öruggt og gott hús­næði og góð laun,“ segir odd­vit­inn.

Katrín Baldursdóttir og Símon Vestarr
Katrín Bald­urs­dóttir og Símon Vestarr Mynd: Sósíalistaflokkurinn

Katrín Bald­urs­dóttir, atvinnu­lífs­fræð­ingur, blaða­maður og kenn­ari, skipar fyrsta sæti á lista Sós­í­alista­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður. Hún hefur starf­aði í flokknum frá upp­hafi og setið í fram­kvæmda­stjórn flokks­ins. Í til­kynn­ingu frá Sós­í­alista­flokknum segir að hún hafi búið um skeið í Berlín og stundað þar fram­halds­nám í alþjóða­stjórn­málum. Hún lauk masters­námi í atvinnu­lífs­fræðum árið 2012, meist­ara­rit­gerð hennar fjall­aði um verka­lýðs­hreyf­ing­una en hún starf­aði um tíma fyrir stétt­ar­fé­lög.

„Þetta er fjöl­breyttur listi og kraft­mik­ill. Fólk sem vill breyta sam­fé­lag­inu þannig að allir hafi tæki­færi til blómstra, hafi öruggt og gott hús­næði og góð laun. Það þarf að útrýma fátækt og það strax. Burt með alla kúgun og ofbeldi bæði gagn­vart fólki og nátt­úru og inn með kær­leika, sam­kennd, sam­vinnu og mann­helgi,“ er haft eftir Katrínu í til­kynn­ing­unni.

Raðað var á lista flokks­ins af hópi félaga í Sós­í­alista­flokknum sem var slembival­inn. Í til­kynn­ing­unni segir að nið­ur­staða slembil­val­inna hópa gefi í flestum til­fellum skýr­ari mynd af vilja gras­rótar en kosn­ing eða próf­kjör.

Næstur á lista flokks­ins í kjör­dæm­inu er Símon Vestarr, bók­mennta­fræð­ingur, kenn­ari og tón­list­ar­maður og í þriðja sæti er María Lilja Þrast­ar­dóttir Kemp, aktí­visti, skríbent og laga­nemi.

Svona er listi Sósíalistaflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður:

1. Katrín Bald­urs­dóttir, atvinnu­lífs­fræð­ingur

2. Símon Vestarr Hjalta­son, kenn­ari

3. María Lilja Þrast­ar­dóttir Kemp, laga­nemi

4. Jón Kristinn Cortez, tón­list­ar­maður

5. Ása Lind Finn­boga­dóttir, fram­halds­skóla­kenn­ari

6. Jón Óskar Haf­steins­son, mynd­list­ar­maður

7. Sigrún Unn­steins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri

8. Halldóra Jóhanna Haf­steins­dóttir, frí­stunda­leið­bein­andi

9. Bára Hall­dórs­dóttir, öryrki

10. Bárður Ragnar Jónsson, þýð­andi

11. Ellen Krist­jáns­dóttir, tón­list­ar­maður

12. Björn Reynir Hall­dórs­son, sagn­fræð­ingur

13. Krummi Uggason, náms­maður

14. María Sig­urð­ar­dóttir, leik­stjóri

15. Tamila Gámez Garcell, kenn­ari

16. Elísabet Ein­ars­dóttir, öryrki

17. Krist­jana Krist­jáns­dóttir, leik­skóla­kenn­ari

18. Daníel Örn Arn­ars­son, vara­borg­ar­full­trúi

19. Mikolaj Cymcyk, náms­maður

20. Sigurjón Baldur Haf­steins­son, pró­fessor

21. María Gunn­laugs­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur og öryrki

22. Andri Sig­urðs­son, hönn­uður

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár