María Pétursdóttir og Þór Saari leiða sósíalista í Suðvesturkjördæmi

María hefur starfað innan Sós­í­alista­flokks­ins í fjögur ár sem for­maður Mál­efna­stjórnar. Raðað er á lista flokks­ins af hópi flokks­fé­laga sem hefur verið slembival­inn.

Þessir frambjóðendur skipa sjö efstu sæti Sósíalistaflokksins í Suðvesturkjördæmi.
Þessir fram­bjóð­endur skipa sjö efstu sæti Sós­í­alista­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Mynd: Sósíalistaflokkurinn

María Pét­urs­dóttir skipar fyrsta sæti á lista Sós­í­alista­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Hún er mynd­list­ar­maður, öryrki og aðgerð­ar­sinni sem starfað hefur innan Sós­í­alista­flokks­ins síð­ustu fjögur árin sem for­maður Mál­efna­stjórnar. Þá hafði María umsjón með þátt­unum Öryrkja­ráð­inu á Sam­stöð­inni á síð­asta ári. Þar að auki starfar María að mál­efna­starfi hjá Öryrkja­banda­lagi Íslands en hún er aðal­full­trúi MS félags­ins innan ÖBÍ. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá flokknum en listi flokks­ins flokks­ins í kjör­dæm­inu er nú til­bú­inn.

„Listinn er nátt­úr­lega eins og fólkið í Sós­í­alista­flokknum, hópur af bar­átt­uglöðu fólki sem vill breyta sam­fé­lag­inu, gera það betra,“ er haft eftir Maríu í til­kynn­ing­unni.

Í öðru sæti list­ans er Þór Saari hag­fræð­ingur. Þór hefur áður setið á þingi fyrir Borg­ara­hreyf­ing­una, árin 2009 til 2013. Síðan þá hefur Þór meðal ann­ars starfað fyrir OECD og átt sæti í banka­ráði Seðla­banka Íslands.

Raðað er á lista Sós­í­alista­flokks­ins af sér­stökum hópi flokks­fé­laga sem hefur verið slembival­inn.

„Reynslan hefur sýnt að nið­ur­staða slembival­inna hópa gefur í flestum til­fellum skýr­ari mynd af vilja gras­rótar en kosn­ing eða próf­kjör. Þetta sama lag var haft við val flokks­ins á listum fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar 2018 og verður notað við val á lista flokks­ins fyrir þing­kosn­ing­arnar í haust og fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar næsta vor,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Svona lítur listi Sós­í­alista­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi út:

María Pét­urs­dóttir, mynd­lista­kona/öryrki

Þór Saari, hag­fræð­ingur

Agnieszka Sokolowska, bóka­vörður

Luciano Dutra, þýð­andi

Ester Bíbí Ásgeirs­dóttir, tón­list­ar­maður og kvik­mynda­gerð­ar­kona

Hörður Svav­ars­son, leik­skóla­stjóri

Nanna Hlín Hall­dórs­dóttir, nýdoktor

Sæþór Benjamín Randals­son, mat­ráður

Ingi­björg Ýr Jóhanns­dóttir, rann­sókn­ar­lög­reglu­maður og stjórn­sýslu­fræð­ingur

Tómas Ponzi, garð­yrkju­bóndi

Sara Stef. Hild­ar­dóttir, upp­lýs­inga­fræð­ingur

Agni Freyr Arnarson Kuzminov, náms­maður

Zuzanna Elvira Korpak, náms­maður

Sigurður H. Ein­ars­son, vél­virki

Silja Rún Högna­dóttir, mynd­list­ar­nemi

Alexey Matveev, skóla­liði

Elísabet Freyja Úlf­ars­dóttir, náms­maður

Arn­laugur Samúel Arn­þórs­son, garð­yrkju­maður

Kolbrún Valv­es­dóttir, starfs­maður i heima­þjón­ustu

Baldvin Björg­vins­son, fram­halds­skóla­kenn­ari

Elsa Björk Harð­ar­dóttir, grunn­skóla­kenn­ari og öryrki

Jón Hallur Har­alds­son, for­rit­ari

Bryn­hildur Yrsa Valkyrja Guð­munds­dóttir, leik­skóla­kenn­ari

Gísli Pálsson, mann­fræði­pró­fessor

Erling Smith, tækni­fræð­ingur og öryrki

Sylviane Lecoultre, iðju­þjálfi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár