Yfirheyrslum lokið: Hvarfið rannsakað sem sakamál

Yfir­heyrslum yfir þremur skip­verjum af græn­lenska tog­ar­anum Polar Nanoq er lokið. Lögregla þarf að taka ákvörðun fyrir hádegi hvort hún óski eftir gæslu­varð­haldi yfir tveimur þeirra sem voru hand­teknir rétt eftir hádegi í gær.

Yfirheyrslum lokið: Hvarfið rannsakað sem sakamál
Enn leitað að Birnu Birna Brjáns­dóttir hvarf spor­laust aðfara­nótt laug­ar­dags. Þessi mynd var tekin við Hafn­ar­fjarð­ar­höfn í gær­kvöldi rétt áður en Polar Nanoq lagði að höfn.

Yfir­heyrslum er lokið yfir þremur skip­verjum af græn­lenska tog­ar­anum Polar Nanoq en sam­kvæmt Grími Gríms­syni, yfir­lög­reglu­þjóni hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, hefur ekki verið tekin ákvörðun um það hvort óskað verði eftir gæslu­varð­haldi.

Þá ákvörðun þarf lög­reglan að taka fyrir hádegi í dag, að minnsta kosti hvað varðar tvo þeirra hand­teknu. Þeir voru hand­teknir rétt eftir hádegi í gær. Þriðji mað­ur­inn var hand­tek­inn síðar í gær­dag og því getur lög­reglan haft hann í haldi lengur en hina tvo. Lög­reglan getur haldið þeim í tutt­ugu og fjóra klukku­tíma án þess að óska eftir gæslu­varð­haldi. Að þeim tíma liðnum þarf annað hvort að óska eftir gæslu­varð­haldi eða sleppa þeim úr haldi.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar er lík­legt að lög­reglan óski eftir gæslu­varð­haldi en þó liggi ekki fyrir hvort það eigi við um alla þrjá. Tveir af þeim hand­teknu eru frá Græn­landi en ekki er vitað um þjóð­erni þess þriðja en um borð voru skip­verjar frá bæði Færeyjum og Græn­landi. Lög­reglan getur ekki greint frá því sem kom fram við yfir­heyrslur yfir mönn­unum en segir rann­sókn máls­ins miða vel. Rann­sóknin á hvarfi Birnu Brjáns­dóttur sé nú rann­sakað sem saka­mál.

Þá hefur tækni­deild lög­regl­unnar lokið störfum í tog­ar­anum Polar Nanoq sem lagði að höfn í Hafn­ar­firði í gær rétt eftir klukkan ell­efu. Gríð­ar­legur við­bún­aður lög­reglu var við höfn­ina í gær­kvöldi en hún hafði óskað eftir því að almenn­ingur myndi halda sig frá. Ekki virð­ast þau skila­boð hafa skilað sér til allra því tugir einka­bíla voru á svæð­inu. Stór hluti þeirra elti síðan lög­reglu­bif­reiðar niður á Hverf­is­götu sem fluttu þá sem hand­teknir voru til yfir­heyrslu.

Björg­un­ar­sveitir munu halda áfram að leita í birt­ingu í kring um veg­ar­slóða á Strand­ar­heiði. Þá hefur lög­regl­unni borist fjöldi ábend­inga að und­an­förnu og er nú unnið úr þeim.

Allir þeir sem telja sig hafa upplýsingar um hvarf Birnu Brjánsdóttur eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000.

Birna Brjánsdóttir
Birna Brjáns­dóttir Hefur þú upp­lýs­ingar um hvarf Birnu Brjáns­dóttur? Hafðu strax sam­band við lög­reglu.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvarf Birnu Brjánsdóttur

Fréttir

Lögmaður Nikolaj skilur ekki af hverju hann hefur enn stöðu sak­born­ings

Unn­steinn Örn Elvars­son, lög­fræð­ingur Nikolaj Olsen, segir að skjól­stæð­ingur sinn hafi verið him­in­lif­andi þegar hann fékk þær fréttir að hann yrði lát­inn laus úr gæslu­varð­haldi en ein­angr­unin hefur reynt veru­lega á hann. Ekki verður farið fram á far­bann yfir honum en hann hefur verið stað­fastur í frá­sögn sinni, lýst yfir sak­leysi og reynt að upp­lýsa málið eftir bestu getu.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár