Mynd: Kristinn Magnússon

Týndi heilu ári þegar hugurinn þoldi ekki meir

Átta ára gömul var hún hætt að gráta og trúa á Guð. Þrett­ánda ald­ursárið er henni horfið. Það var þá sem faðir hennar lok­aði hana af niðri í kjall­ara og mis­þyrmdi í þrjá sól­ar­hringa. Árið 2005 steig Thelma Ásdís­ar­dóttir fram og sagði frá því hvernig faðir hennar gerði hana út í skipu­lögðu barna­vændi. Enn eru að birt­ast henni gamlar og áður grafnar minn­ingar, sem hún segir nú frá í fyrsta sinn.

Þungt loft var í myrkri íbúð­inni, dregið fyrir glugg­ana og þeir þarna, allsnaktir, full­orðnir karlar. Henni fannst þetta allt ógeðs­legt. Hún var bara sjö ára en var með föður sínum, mann­inum sem átti að vernda hana en hafði selt þeim aðgang að henni kyn­ferð­is­lega, í skiptum fyrir fíkni­efni.

Alla nótt­ina átti hún að vera til taks, vera góð og gera það sem þeir vildu - stundum voru það sam­farir og stundum varð ofbeldið meira, en hún varð að vera góð. Annars yrði henni refsað og það grimmi­lega. Refs­ing­arnar sem faðir hennar beitti fólust stundum í hót­unum, ofbeldi eða lengri fyll­er­ístúrum þar sem hann gerði henni ljóst að hún bæri ábyrgð á því. Eða þá með því að drekkja kett­lingum eða drepa páfa­g­auk­inn. „Þá fékk ég alltaf að vita að kett­ling­ur­inn dó vegna þess að ég var ekki nógu góð.“

Sárs­auk­inn var óbæri­legur. Hún varð að lifa þetta af.

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár