Töfrar ítalskrar matarmenningar

Það er ekki hægt að hugsa um Ítalíu án þess að hugsa um mat­ar­menn­ing­una þar og hvernig hún hefur haft áhrif á mat­ar­menn­ingu ann­arra landa víða um heim. Vín, ostar og pasta eru sér­stak­lega mik­il­vægur þáttur í íslenskri mat­ar­menn­ingu, þar sem pasta kemur í mörgum mis­mun­andi útgáfum, sem penne, spag­hetti, lasagna og fleira. Hjá Ítölum er matur ekki aðeins nær­ing heldur stór hluti af líf­inu og í raun eitt af því sem gerir Ítala að Ítala.

Mat­ar­menn­ingu Ítala má rekja til Rómverja til forna. Þistil­hjörtu, baunir, kál, stein­selja, melónur og epli ásamt vínum, ostum og kjöti var algeng fæða hjá Róm­verjum. Þeir þró­uðu síðan upp­skriftir að réttum sem við njótum enn góðs af, eins og til dæmis osta­köku og ommel­ettu. Seinna fóru þeir einnig að nota hrá­efni eins og kart­öflur, tómata, paprikur og maís.

Hvert hérað hefur sinn stíl

Ítalskur matur snýst um svo margt, ekki aðeins spag­hetti og pizzur. Sá matur sem er þekkt­astur undir þeim for­merkjum að vera ítalskur kemur einna helst frá miðju lands­ins. Á norður Ítalíu er hins vegar mikið um fisk, kart­öflur, pylsur, svína­kjöt og mis­mun­andi teg­undir osta. Þar eru pasta­réttir líka algengir, oft með tómötum eða fylltu pasta, sem og polenta og risotto. Í suðri gegna tómatar mik­il­vægu hlut­verki, þar sem þeir eru annað hvort not­aðir ferskir eða í sósu. Rétt­irnir þar inni­halda oft kapers, papriku, ólífur, hvít­lauk, þistil­hjörtu, eggaldin og ricotta. 

Hvert hérað hefur sinn stíl við val á hrá­efnum og eld­un­ar­að­ferðum. Eins getur sama upp­skriftin verið til í gjör­ó­líkum útgáfum frá sama hér­aði. En því hefur engu að síður verið haldið fram að risotto sé best í Mílanó, tor­tell­ini í Bologna og pizzurnar í Naples. Kannski er það ein­földun til að ein­falda ferða­mönnum lífið. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár