Sumum finnst of bjart

Hönn­uð­ur­inn Ingi­björg Hanna Bjarna­dóttir býr í bjartri og per­sónu­legri íbúð í Hlíðunum. Ný hönnun í bland við gamla erfða­gripi setja svip sinn á heim­ilið en það voru hins vegar fyrst og fremst glugg­a­rnir sem heill­uðu hönn­uð­inn.

Sumum finnst of bjart

Bjartir sól­ar­geislar heilsa þegar gengið er inn í stof­una hjá Ingi­björgu Hönnu. Hvít gólfin gera það að verkum að birtan end­ur­kast­ast bæði af gólfi og veggjum. „Sumum finnst þetta alltof bjart, en mér finnst þetta fínt. Þetta er alla­vega mjög gott í skamm­deg­inu,“ segir hún og hlær. Gólfin lét Ingi­björg mála hvít þegar hún flutti inn. „Það voru þrjú mis­mun­andi parket hérna inni og tvö af þeim voru plast­par­ket,“ segir hún, en þessi leið var bæði fljót­legri og ódýr­ari en að skipta um gól­f­efni. 

Heillaðist af gluggunum
Heill­að­ist af glugg­unum „Ég sit mjög mikið hérna í sóf­anum eða í hengistólnum,“ segir Ingi­björg Hanna en hengistól­inn hann­aði hún sjálf. Hún seg­ist hafa heill­ast af glugg­unum og birt­unni þegar hún keypti íbúð­ina.

Ingi­björg flutti inn í íbúð­ina, ásamt tveimur sonum sínum, fyrir einu og hálfu ári síðan. Hún segir það fyrst og fremst hafa verið glugg­a­rnir sem heill­uðu hana, en hún hafi verið að leita sér að bjartri íbúð í þessu hverfi. Ingi­björg seg­ist hafa fallið fyrir Hlíðunum í íslensku sjón­varps­þátt­unum Pressu. „Ég sá allar þessar flottu íbúðir og hugs­aði með mér: „Mig langar í svona íbúð!“,“ segir hún. 

Uppáhalds húsgagnið
Upp­á­halds hús­gagnið „Ef ég yrði að velja upp­á­halds hús­gagn þá væri það þessi sófi. Amma og afi áttu hann, eins og svo margt annað hérna inni,“ segir Ingi­björg Hanna en sófann hann­aði Þorkell G. Guð­munds­son. Mynd­irnar á veggnum eru eftir vin­konur hennar úr Lista­há­skól­anum og syni Ingi­bjargar
Frá ömmu og afa
Frá ömmu og afa Fjölmörg hús­gögn hefur Ingi­björg Hanna fengið í arf frá ömmum sínum og öfum. „Langafi minn og langamma áttu þessa klukku en þau fengu hana í brúð­kaups­gjöf.“

Heimilið er í senn stíl­hreint og per­sónu­legt. Á víð og dreif um íbúð­ina má finna muni eftir Ingi­björgu Hönnu sjálfa; púða, kerta­stjaka, snigla­snaga og að sjálf­sögðu krummann vin­sæla. „Fyrir mér er krumm­inn alltaf herða­tré. Það kom mér því mjög á óvart að sjá að flestir hengja hann út í glugga. Mér 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár