Mynd: Pressphotos.biz

Stærstu hneykslismál ríkisstjórnarinnar

Tveir ráð­herrar hafa hrökkl­ast úr emb­ætti vegna hneyksl­is­mála á kjör­tíma­bil­inu.

Á því kjör­tíma­bili sem nú er að ljúka hafa tveir ráð­herrar hrökkl­ast úr rík­is­stjórn vegna hneyksl­is­mála og þriðji ráð­herr­ann ákveðið að hætta afskiptum af stjórn­málum í kjöl­far frétta­flutn­ings af þjónkun hans við fyr­ir­tæki sem hann reynd­ist fjár­hags­lega tengdur. 

Ótal dæmi eru um hags­muna­á­rekstra og sam­krull við­skipta og stjórn­mála­lífs á und­an­förnum þremur árum. Málin hafa hins vegar reynst rík­is­stjórn­inni mis­erfið. Hér verður stiklað á stóru yfir fjögur stærstu hneyksl­is­málin.

Borgun, Bjarni og ríkisaðstoð við Engeyinga

Í nóv­em­ber árið 2014 seldi Lands­bank­inn – banki sem er nær alfarið í eigu rík­is­sjóðs og heyrir þannig með óbeinum hætti undir Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra – eign­ar­hlut sinn í greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Borgun hf í lok­uðu sölu­ferli, án aug­lýs­ingar og langt undir mark­aðsvirði. Einn af kaup­end­unum var Einar Sveins­son, föð­ur­bróðir ráð­herra. 

Við­skiptin vöktu mikla tor­tryggni, en nokkrum vikum eftir söl­una voru 800 millj­ónir króna greiddar út í arð til hlut­hafa Borgunar. Alls hefur félag Einars, sem Benedikt Ein­ars­son sonur hans er stjórn­ar­maður í, fengið um 86 millj­ónir króna í arð vegna hlut­ar­ins í Borgun frá því að salan fór fram. Bæði banka­stjóri og banka­ráð Lands­bank­ans hafa við­ur­kennt að eðli­legra hefði verið að selja eign­ar­hlut bank­ans í Borgun í opnu sölu­ferli.

Þótt ekk­ert bendi til þess að Bjarni Bene­dikts­son hafi sjálfur átt aðkomu að sölu Borgunar hefur málið reynst honum vand­ræða­legt í ljósi fjöl­skyldu­tengsl­anna við einn kaup­and­ann. Þá ber að líta til þess að Borg­un­ar­málið er ekki ein­angrað til­vik heldur hafa þrjú önnur fyr­ir­tæki sem nánir ætt­ingjar Bjarna eiga hlut í, Thorsil, Matorka og Kynn­is­ferðir, fengið fyr­ir­greiðslu eða íviln­anir af ein­hverju tagi frá íslenska rík­inu í stuttri fjár­mála­ráð­herra­tíð Bjarna Bene­dikts­sonar. 

Af málum þeirra þriggja fyr­ir­tækja sem nefnd eru hér að ofan vakti fyr­ir­greiðsla til Matorku mesta athygli. Í byrjun árs­ins 2015 und­ir­rit­aði Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, fjár­fest­ing­ar­samn­ing við Matorku ehf. um styrk upp á 450 millj­ónir króna í formi skattaí­viln­unar vegna fyr­ir­hug­aðrar fisk­eld­is­stöðvar í Grinda­vík. Einar Sveins­son, föð­ur­bróðir Bjarna, er helsti eig­andi Matorku en Benedikt Ein­ars­son hefur setið í stjórn félags­ins.

Rík­is­að­stoðin olli titr­ingi innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þá gagn­rýndu Sam­tök fisk­eld­is­fyr­ir­tækja hana harð­lega og sögðu samn­ing­inn for­dæma­lausan. Ragn­heiður Elín kvaðst, í sam­tali við RÚV, ekki geta svarað því hvort samn­ing­ur­inn ætti sér for­dæmi. „Hver sá sem enn er hald­inn þeirri rang­hug­mynd að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé mark­aðs­sinn­aður flokkur ætti að horfa á Ragn­heiði Elínu reyna að verja rík­is­styrki til fyr­ir­tækis í eigu frænd­fólks Bjarna Ben vegna fjár­fest­ingar sem þau segja að muni ann­ars ekki standa undir sér þótt aðrir standi í svip­uðum rekstri,“ skrif­aði Jón Steins­son, hag­fræð­ingur við Columbia-háskóla í Banda­ríkj­unum. 

Í fyrra lagði Bjarni fram frum­varp um að Banka­sýsla rík­is­ins yrði lögð niður og að hann myndi sjálfur öðl­ast ákvörð­un­ar­vald yfir sölu á eign­ar­hlutum íslenska rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Þegar ljóst var að frum­varpið yrði ekki að lögum skipti Bjarni um stjórn í Banka­sýsl­unni og skip­aði þar menn með bein tengsl við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Fram­sókn­ar­flokk­inn.  

Illugi og hagsmunaáreksturinn við Orku Energy

Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, lenti í kröppum dansi í fyrra eftir að í ljós kom að í árs­lok 2013 hafði hann selt Hauki Harð­ar­syni, stjórn­ar­for­manni Orku Energy sem hann vann fyrir á árunum 2011 og 2012, íbúð sína og fengið að leigja hana af honum. Þrátt fyrir þessi hags­muna­tengsl gekk Illugi erinda Orku Energy í mars 2015 og und­ir­rit­aði sam­starfs­samn­ing við kín­verska ríkið þar sem Orka Energy fékk stöðu „fram­kvæmd­ar­að­ila“ fyrir hönd íslenska rík­is­ins.

Samn­ing­ur­inn var for­dæma­laus sam­kvæmt svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar enda eru það yfir­leitt aðeins rík­is­fyr­ir­tæki eða rík­is­stofn­anir sem fá slíka stöðu í samn­ingum á milli ein­stakra ríkja. Stundin var leið­andi í umfjöllun um málið og greindi frá fleiri fjár­hags­legum tengslum Illuga við Orku Energy. Ráð­herr­ann huns­aði hins vegar fyr­ir­spurnir fjöl­miðla mán­uðum saman. Enn er ótal spurn­ingum um Orku Energy-málið ósvarað, en Illugi ákvað í sumar að segja skilið við stjórn­málin. Þrátt fyrir hags­muna­á­rekstra Illuga og tregðu hans til að upp­lýsa almenn­ing um mála­vöxtu bauðst honum heið­urs­sæti á fram­boðs­lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður. 

Lekamál Hönnu Birnu

Leka­málið má rekja til þess þegar vitnað var í óform­legt minn­is­blað inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins með við­kvæmum per­sónu­upp­lýs­ingum um tvo hæl­is­leit­endur í fjöl­miðlum þann 20. nóv­em­ber 2013. DV fjall­aði strax um trún­að­ar­brest­inn og benti á mót­sagnir í málsvörn ráðu­neyt­is­ins.

Þegar Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, var spurð um málið á Alþingi sagði hún að skjalið væri ekki frá ráðu­neyt­inu komið og gaf jafn­framt í skyn að Rauði kross­inn kynni að hafa lekið upp­lýs­ingum um hæl­is­leit­end­urna. Síðar greindi DV frá því að sams konar skjal væri á mála­skrá í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu, hefði ekki ratað til ann­arra stofn­ana, og að ein­ungis örfáir aðilar hefðu haft aðgang að skjal­inu á þeim tíma sem því var lekið, meðal ann­ars Hanna Birna sjálf og báðir aðstoð­ar­menn hennar. 

Þegar rík­is­sak­sókn­ari mælti fyrir um lög­reglu­rann­sókn á trún­að­ar­broti inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins var komin upp for­dæma­laus staða þar sem lög­reglu var gert að rann­saka ráðu­neyti æðsta yfir­manns lög­gæslu í land­inu.

Eftir að grun­ur­inn beind­ist að aðstoð­ar­mönnum Hönnu Birnu tók hún að skipta sér af störfum lög­reglu og beita Stefán Eiríks­son, þáver­andi lög­reglu­stjóra þrýst­ingi, allt þar til hann sagði starfi sínu lausu. DV greindi frá afskiptum ráð­herra af lög­reglu­rann­sókn­inni þann 29. júlí 2014 sem varð til þess að umboðs­maður Alþingis hóf athugun á mál­inu og fékk helstu atriði frá­sagn­ar­innar stað­fest hjá Stefáni sjálfum.

Gísli Freyr Val­dórs­son, aðstoð­ar­maður ráð­herra, var ákærður vegna lek­ans og dæmdur í skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir brot á þagn­ar­skyldu þann 12. nóv­em­ber 2014. Um viku seinna, akkúrat ári eftir að leka­málið hófst, sagði Hanna Birna af sér ráð­herra­emb­ætti. Í árs­byrjun 2015 komst svo umboðs­maður Alþingis að þeirri nið­ur­stöðu að Hanna Birna hefði brotið lög og mis­beitt valdi sínu með fram­göng­unni gagn­vart lög­reglu­stjór­anum. 

Í fyrra var útbúin eins konar upp­gjörs­skýrsla í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd um atburða­rás leka­máls­ins og mis­vísandi upp­lýs­inga­gjöf ráð­herra til Alþingis. Hanna Birna hafn­aði beiðni for­manns nefnd­ar­innar um að koma og svara spurn­ingum nefnd­ar­manna og meiri­hluti nefnd­ar­innar neit­aði að leggja nafn sitt við skýrsl­una.

Á meðan leka­málið stóð sem hæst tóku stjórn­ar­liðar ein­arða afstöðu með Hönnu Birnu. Margir þeirra komu henni ítrekað til varnar, fóru rangt með stað­reyndir, gerðu lítið úr alvar­leika máls­ins og gagn­rýndu umboðs­mann Alþingis og fjöl­miðla. Bjarni Bene­dikts­son og Sig­mundur Davíð gengu raunar svo langt að skipta upp ráðu­neyti dóms- og inn­an­rík­is­mála að beiðni Hönnu Birnu.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var Hönnu Birnu boðið heið­urs­sæti á fram­boðs­lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík fyrir kom­andi þing­kosn­ingar. Hún hafn­aði boð­inu. 

Þrír ráðherrar í Panamaskjölunum

Upp­ljóstr­anir á grund­velli Panama-skjal­anna um aflands­fé­lög ráð­herra eru ástæða þess að gengið er til kosn­inga í haust en ekki næsta vor.

Uppi varð fótur og fit þegar greint var frá því að Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, eig­in­kona Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, ætti aflands­fé­lag á Bresku Jóm­frúa­eyj­unum að nafni Wintris sem lýst hafði um hálfs millj­arðs króna kröfum í föllnu bank­ana. Kastljós og Reykja­vik Media greindu svo frá því í lok apríl að Sig­mundur Davíð hefði sjálfur átt fimm­tíu pró­senta hlut í félag­inu og selt eign­ar­hlut sinn til Önnu Sig­ur­laugar á 1 doll­ara. Sig­mundur reyndi að ljúga sig út úr mál­inu í sjón­varps­við­tali sem varð heims­frægt á örfáum klukku­stundum. 

Síðar kom í ljós að nöfn tveggja ann­arra ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands var að finna í Panama-skjöl­unum vegna tengsla við aflands­fé­lög. Slíkt félag, Dooley Securities, hafði verið stofnað fyrir Ólöfu Nordal, núver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, og eig­in­mann hennar árið 2006 og þeim fengin pró­kúra til að gera skuld­bind­andi samn­inga fyrir hönd þess. Hefur Ólöf greint frá því að þau hjónin hafi aldrei not­fært sér félagið.

Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, átti hins vegar þriðj­ungs­hlut í aflands­fé­lag­inu Falson & Co á Seychelles-eyjum fyrir hrun og geymdi þar 40 millj­ónir króna vegna íbúða­fjár­fest­inga erlendis. Bjarni gaf skatta­yf­ir­völdum þær upp­lýs­ingar að félagið skráð í Lúx­em­borg og sagði síðar í við­tali að hann hefði ekki vitað betur. 

Falson & Co var aldrei skráð í hags­muna­skrá Alþingis og lá í þagn­ar­gildi á þeim tíma sem Bjarni átti aðkomu að máli er varð­aði kaup skatt­rann­sókn­ar­stjóra á gögnum um aflands­fé­lög Íslend­inga. Í þessum gögnum var meðal ann­ars að finna upp­lýs­ingar um Bjarna sjálfan, við­skipta­fé­laga hans og föður, Benedikt Sveins­son.

Eins og Stundin hefur fjallað ítar­lega um setti ráðu­neyti Bjarna kaupum á gögn­unum skil­yrði sem skatt­rann­sókn­ar­stjóra reynd­ist erfitt að upp­fylla. Fyrir vikið var ekki hægt að hafa eins hraðar hendur og þing­menn og margir innan stjórn­sýsl­unnar hefðu viljað. Bjarni gaf engu að síður rang­lega í skyn í fjöl­miðlum að það væri skatt­rann­sókn­ar­stjóri sem drægi lapp­irnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórnin

Kristján Þór og Þorsteinn Már „nánir  vinir“ í skilningi stjórnsýslulaga
FréttirRíkisstjórnin

Kristján Þór og Þor­steinn Már „nánir vinir“ í skiln­ingi stjórn­sýslu­laga

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hafa ekki viljað svara spurn­ingum um eðli vin­áttu sinnar. Samkvæmt hæf­is­reglum stjórn­sýslu­laga getur „náin vin­átta“ haft áhrif á hæfi ráð­herra og ann­arra opin­berra starfs­manna en í slíkri vin­áttu felst meðal ann­ars að menn umgang­ist í frí­tíma sínum.
Af hverju er spilling frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?
Úttekt

Af hverju er spill­ing frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?

Munur á umræðu og aðgerðum stjórn­valda gegn spill­ingu í Svíþjóð og á Íslandi er hróp­lega mik­ill. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur á síð­ustu tveimur árum hafið rann­sókn á tveimur ráð­herrum vegna spill­ingar. Þessar rann­sóknir byggj­ast samt á veik­ari for­sendum en mörg mál sem komið hafa upp um íslenska ráð­herra á liðnum árum. Þá eru óform­legar reglur um spill­ingu og þol­in­mæði almenn­ings gagn­vart spill­ingu allt ann­ars konar á Íslandi en í Svíþjóð.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár