Sex í sama svefnpokanum

Bókin lýsir fyrstu ferð manna yfir Vatna­jökul. Bretinn William Lord Watts leiddi för. Leið­ang­urs­menn þurftu að glíma við ófærð og kulda.

Sex í sama svefnpokanum
Vatna­jök­ull Frá því William Lord Watts fór yfir Vatna­jökul hafa margir lagt leið sína á sömu slóðir, Mynd: Shutterstock

Norður yfir Vatna­jökul er ein af allra bestu ferða­sögum sem skráðar hafa verið um ferðir á Íslandi. Bókin fjallar um fyrsta leið­ang­ur­inn sem far­inn var yfir Vatna­jökul. Það var árið 1875 þegar William Lord Watts lagði í þessa hættu­legu ferð, þvert yfir jökul­inn og hálendið ásamt íslenskum  aðstoð­ar­mönnum. Bókin kom fyrst út á ensku, ári eftir ferð­ina, og hét þá Across the Vatna Jökull. Árið 1962 kom hún síðan út í frá­bærri þýð­ingu Jóns Eyþórs­sonar. Í lit­ríkum text­anum er lýst bæði landi og fólki með þeim hætti að les­and­inn er kom­inn langt aftur í aldir að berj­ast um íslenska nátt­úru á veg­leysum og um óbyggðir, þvert yfir hálendi Íslands, fram og til baka. Bókin er fyrir löngu ill­fá­an­leg og því tíma­bært að gefa hana aftur út.  Þessi seinni útgáfa er undir merki útgáf­unnar Eld­jök­uls. Það er fjalla­garp­ur­inn Gerður Stein­þórs­dóttir sem skrifar nýjan for­mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár