Mynd: Kristinn Magnússon

Miðill fullyrðir að auðvelt sé að ná sambandi við látin börn

Ólafur Agnar H. Thoraren­sen býður for­eldrum nýlát­inna barna upp á sam­töl við börnin í gegnum hann.

Mið­ill­inn Ólafur Agnar H. Thoraren­sen sér­hæfir sig í því að bjóða fólki að ná sam­bandi við látna aðstand­endur.

Stundin birtir hér við­tal við Ólaf þar sem hann lýsir störfum sínum. Með því er á engan hátt tekið undir full­yrð­ingar Ólafs, enda hafa vís­inda­rann­sóknir bent til þess að ekki sé unnt að ná sam­bandi við látið fólk. Stundin hafði sam­band við Birtu, lands­sam­tök for­eldra sem hafa misst börn/ung­menni skyndi­lega, sem segja það geta verið síð­asta hálm­strá syrgj­andi for­eldra að leita til mið­ils.

„Fólk sem kemur til mín er mjög oft fólk sem missir barn. Ég fæ það oft­ast til mín fljót­lega eftir að barnið deyr og má segja að þessi hópur sé sá stærsti sem kemur til mín til að fá að vita um barnið sitt, sem er mjög eðli­legt,“ segir Ólafur Agnar.

Hann segir að það gangi mis­jafn­lega að ná sam­bandi við nýlátið fólk. „Lítil börn eru hins vegar fljót að koma; þau eru auð­vitað bara litlir molar og litlir geislar sem koma fljótt aftur. Það er mjög auð­velt að finna þau. Maður getur auð­vitað ekki talað við þau beint en ég get sagt fólk­inu hvernig þau líta út, hvernig þau eru og hvernig þau „akta“ og þá þekkir fólkið þau. Mér er einnig sýnt ef þau eru með ein­hver ein­kenni.

For­eldr­arnir leita auð­vitað til mín til að vita hvort það sé allt í lagi með litla barnið og hvert það fer. Yfir­leitt þegar lítið barn deyr þá kemur ein­hver nákom­inn með það þannig að það er komið í hend­urnar á til dæmis ömmu, afa eða ein­hverjum sem stendur því nálægt og er dáinn og hefur það hjá sér þangað til for­eldrar barns­ins koma til þeirra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár