Mynd: Kristinn Magnússon

Sækja innblástur í fasteignasíður

Tón­list­ar­mað­ur­inn Friðrik Dór Jónsson og Lísa Haf­liða­dóttir sál­fræði­nemi búa í nýupp­gerðri íbúð í Hlíðunum. Stílinn kenna þau í léttum dúr við IKEA en víða má hins vegar finna íslenska hönnun og róm­an­tísk smá­at­riði. Þau hafa bæði mik­inn áhuga á fast­eignum og dreymir um að gera upp gam­alt hús í Hafn­ar­firð­inum.

Haustrign­ingin lemur á glugg­unum og víða hefur verið kveikt á kertum þegar blaða­mann og ljós­mynd­ara ber að garði. Stemn­ingin er í senn nota­leg og afslöppuð. Á gólf­inu í stof­unni liggja fjólu­bláar, gular og grænar blöðrur en nokkrum dögum áður var tveggja ára afmæli einka­dótt­ur­innar haldið. 
Lísa og Friðrik höfðu í nokkur ár leigt íbúð í mið­bænum en keyptu íbúð­ina í Hlíðunum haustið 2013, ein­ungis nokkrum dögum eftir að dóttir þeirra kom í heim­inn. Raunar voru þau mætt á opið hús dag­inn eftir að þau komu heim af spít­al­anum. „Ég man ekki einu sinni eftir því,“ segir Lísa og hlær. Hin marg­um­tal­aða brjósta­þoka hefur verið þar að verki. „Við vorum ekki beint að leita en mamma er mjög virk á fast­eigna­síð­unum, eins og ég reyndar sjálfur, og hún benti okkur á þessa íbúð,“ segir Friðrik.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár