Við ysta haf Elíasbet Pét­urs­dóttir, Bettý, er inni­lokuð mán­uðum saman á Ingj­alds­sandi. Hún er þar ein stóran hluta árs­ins. Mynd: Róbert Reynisson

Reynt að úthrópa mig sem geðveika

Elísabet Anna Pét­urs­dóttir, 59 ára, býr ein á Ingj­alds­sandi stóran hluta árs­ins. Hún var klöguð til barna­vernd­ar­nefndar sem vildi taka dreng­inn hennar. Baráttan stóð við fólk sem þótt­ist bera hag hennar fyrir brjósti. Hún gift­ist og skildi og kom drengnum sínum á legg. Hún er konan sem gengur ein yfir vest­firska heiði um hávetur.

„Skila­boðin frá yfir­völdum eru þau að fólk eigi ekki að búa afskekkt. Helst eiga allir að vera sem næst mið­bænum þar sem vald­haf­arnir eru með skrif­stofur sínar. En ég gef ekk­ert eftir og vil búa á Ingj­alds­sandi þar sem heim­ili mitt er og rætur mínar liggja,“ segir Elísabet Anna Pét­urs­dóttir, bóndi á Sæbóli 2 á Ingj­alds­sandi.

Við komum akandi úr Dýra­firði um Gerð­hamra­dal eftir vegi sem sem hentar betur tor­færu­tækjum en venju­legum bílum. Ekki er að sjá að veg­ur­inn hafi verið heflaður vikum saman.  Eftir að hafa klöngr­ast eftir hlykkj­óttum veg­inum um holur og grýti náum við hæsta punkti heið­ar­innar.

Skyndi­lega opn­ast blóm­legur dalur með iða­grænum túnum 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár