Réttir Úr Lauf­skála­rétt í Skaga­firði. Á hverju ári mæta um 3.000 manns í rétt­irnar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Myndir ársins 2015 hjá Stundinni

Fjöl­breytt ljós­mynda­verk­efni Stund­ar­innar á árinu.

Ljós­mynd­arar á vegum Stund­ar­innar hafa lagt upp í mörg lang­tíma­verk­efni á árinu. Meðal ann­ars hefur verið farið í réttir, fylgt eftir flótta­fólki, fylgst með und­ir­bún­ingi útfarar og fleira.

Transkonan sem flúði Líbanon

Takk fyrir, Ísland
Takk fyrir, Ísland Monica, eða Alia Zuhir Dahhan, er trans­kona sem flúði frá Líbaonon til Íslands. Eyþór Árnason ljós­mynd­ari fylgdi henni eftir.

Kveðjustundin

Sá sem leiðir þig inn í nóttina
Sá sem leiðir þig inn í nótt­ina Rúnar Geir­munds­son útfar­ar­stjóri starfar við að búa til kveðju­stund fyrir aðstand­endur lát­inna. Helsta áskorun Rúnars í því að umgang­ast aðstand­endur hins látna en ekki hinn látna sjálfan.

Íslenskir múslimar verða fyrir fordómum

Íslenskir múslimar
Íslenskir múslimar Stundin fjall­aði um íslenska múslima og hatur sem þeir verða fyrir. Nýras­ismi grass­erar í lok­uðum umræðu­hópum. Á með­fylgj­andi mynd sést íslenskur múslimi til­biðja Allah.

Velkomin í bót og betrun á Kvíabryggju

Lífið á Kvíabryggju
Lífið á Kvía­bryggju Aðstæður í fang­els­inu á Kvía­bryggju nærri Grund­ar­firði hafa verið mikið til umræðu á árinu í kjöl­far komu þekktra banka­manna í fang­elsið. Stundin heim­sótti fang­elsið síð­asta vor.
 

Trampólínið í stofunni

Fljúgandi börn í Vesturbænum
Fljúg­andi börn í Vest­ur­bænum María Margrét Jóhanns­dóttir er með trampólín í stof­unni fyrir dætur sínar tvær, Kríu og Natalíu. Stundin kom í inn­lit á heim­ili hennar við Sól­valla­götu.
 

Afi og amma

Afi og amma
Afi og amma Blaða­mað­ur­inn Jón Bjarki Magn­ús­son skrif­aði um afa sinn og ömmu, Trausta Breið­fjörð og Huldu Jóns­dóttur, sem eru hátt í hund­rað ára Stranda­menn.
 

Hlín Einarsdóttir í viðtali

Fyrir fjárkúgunarmálið
Fyrir fjár­kúg­un­ar­málið Fjöl­miðla­konan Hlín Ein­ars­dóttir kom í við­tal hjá Stund­inni síð­asta vor þar sem hún lýsti meðal ann­ars heila­þvætti Votta Jehóva. Þegar við­talið birt­ist hafði hún orðið upp­vís að aðild að fjár­kúgun á hendur for­sæt­is­ráð­herra.

Hamingjan á Hólmavík

Hamingjudagar
Ham­ingju­dagar Linda Jóns­dóttir mætti á ham­ingju­daga á Hólmavík og sýndi hvað hátíðin snýst um.
 

Með hengistól í stofunni

Hengistóll í stofunni
Hengi­stóll í stof­unni Helga Guðrún Frið­riks­dóttir hönn­uður og Orri Finn­boga­son búa í lít­illi íbúð á Vest­ur­göt­unni. Í stof­unni er hengi­stóll, sem sýnir hvernig týpur fólk er. Annars vegar er það fólkið sem fer beint í stól­inn og hins vegar þeir sem þora ekki að setj­ast í hann.
 

„Partýdvergurinn“ Þorgeir

„Ég er partýdvergurinn“
„Ég er partýd­verg­ur­inn“ Þorgeir Gunn­ars­son, stundum kall­aður Toggi dvergur, sagði frá lífs­hlaupi sínu í við­tali við Stundina í sept­em­ber. Hann lifði líf­inu til fulls og kunni að skemmta sér. Þorgeir lést fyrir nokkrum vikum.
 

Ungt par fer úr landi

Landflutningurinn
Land­flutn­ing­ur­inn Stundin fylgdi eftir ungu pari sem flutti úr landi til að láta drauma sína ræt­ast. „Ég held að við komum ekk­ert til baka.“
 

Jón Gnarr kveður forsetadrauminn

Ekki forseti
Ekki for­seti „Ef maður er for­seti þá er maður ekk­ert annað,“ sagði Jón Gnarr í við­tali við Stundina, þar sem hann útskýrði hvers vegna hann hefði ákveðið að vinna hjá 365 frekar en að fara í for­seta­fram­boð.
 

Albönsk fjölskylda fjarlægð

Kveðjustundin
Kveðju­stundin Ungi leik­skóla­dreng­ur­inn Kevi, sem var vísað úr landi með lög­reglu­fylgd, skoðar úrklippu­bók­ina frá leik­skól­anum sínum, sem hann svaf með sér við hlið nótt­ina áður en lög­reglan sótti hann og fjöl­skyldu hans á heim­ili þeirra í Barma­hlíð. Móðir hans, Xhulia, heldur á bók­inni og Klea horfir yfir öxl hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár