Mynd: Heiða Helgadóttir

Myndband: Lögreglumenn drógu hælisleitendur út úr kirkju

Prestar veittu írösku hæl­is­leit­end­unum Ali Nasir og Majed skjól í Laug­ar­nes­kirkju í von um að þeir fengju að njóta frið­helgi í sam­ræmi við gamlar venjur um kirkju­grið. Lög­reglan hand­tók þá uppi við alt­arið. Þeir fá ekki efn­is­lega með­ferð vegna hæl­is­um­sóknar sinnar.

Ali Nasir og Majed, hæl­is­leit­endur frá Írak, voru dregnir út úr Laug­ar­nes­kirkju með lög­reglu­valdi í nótt og sendir til Noregs með flug­vél. Menn­irnir ótt­ast að þaðan verði þeir sendir aftur til Íraks, en ríkt hefur stríðs­á­stand í land­inu um ára­bil. Ali er 16 ára gam­all og Majed er þrí­tugur. Þeir hafa dvalið á Íslandi í sjö mán­uði en hæl­is­um­sóknir þeirra verða ekki teknar til efn­is­legrar með­ferðar. 

Ætlið þið ekki að fara?
Ætlið þið ekki að fara? Fulltrúi yfir­valda horfir í augun á öðrum hinna brottreknu, sem víkur sér undan augn­sam­bandi.

Presturinn og lögreglumaðurinn
Prest­ur­inn og lög­reglu­mað­ur­inn Séra Kristín Þórunn Tóm­as­dóttir reynir að höfða til sam­visku lög­reglu­manns­ins sem leiddi aðgerðir á vett­vangi. Hann stendur í varn­ar­stöðu og íhugar stöð­una áður en hann lætur til skarar skríða.

Veitti viðnám
Veitti við­nám Lög­reglan hik­aði ekki við að taka þá með valdi þótt þeir væru í kirkju. Ali, sextán ára, veitti brott­flutn­ingi sínum við­nám í nótt.

Eins og Stundin greindi frá í gær­kvöldi ákváðu þau Toshiki Toma, prestur inn­flytj­enda, og Kristín Þórunn Tóm­as­dóttir, sókn­ar­prestur Laug­ar­nes­kirkju, að opna dyr kirkj­unnar og veita hæl­is­leit­end­unum skjól í nótt. Var þetta gert með vil­yrði bisk­ups­emb­ætt­is­ins og gripið til úrræð­is­ins í von um að lög­regla myndi virða forna siði um kirkju­grið. Þannig er vísað til þess að á öldum áður giltu reglur um kirkjur og helga staði sem tryggðu þeim frið­helgi sem leit­uðu þar skjóls gegn fram­göngu vald­hafa. Óskráðar og óform­legar reglur í þessa veru eru enn virtar upp að vissu marki í sumum Evr­ópu­ríkjum.

Á fimmta tím­anum í nótt hófst stutt athöfn í Laug­ar­nes­kirkju. Kristín Þórunn og Toshiki Toma sögðu nokkur orð og útskýrðu hvers vegna dyr Laug­ar­nes­kirkju hefðu verið opn­aðar. Fram­takið er hugsað sem stuðn­ingur við Ali og Majed en jafn­framt sem til­raun að nota fornar venjur um kirkju­grið sem tæki til að knýja yfir­völd til að „taka ábyrga, efn­is­lega afstöðu til mál­efna ein­stakra hæl­is­leit­enda“ eins og segir í frétta­til­kynn­ingu prest­anna. Hjalti Hugason, pró­fessor í kirkju­sögu, var við­staddur athöfn­ina og flutti stutta tölu um merk­ingu, til­gang og gildi kirkju­griða. 

Leiddur niður kirkjutröppurnar
Leiddur niður kirkju­tröpp­urnar Majed tek­inn niður kirkju­tröpp­urnar til brott­flutn­ings úr landi.

Þegar klukkan sló fimm mættu lög­reglu­menn og starfs­menn Útlend­inga­stofn­unar á vett­vang. Ali og Majed biðu á bak við alt­arið í kirkj­unni. Séra Kristín Þórunn ræddi við full­trúa lög­reglu og reyndi að fá hann ofan af því að fjar­lægja hæl­is­leit­end­urna úr kirkj­unni. Full­trú­inn hrós­aði henni og við­stöddum fyrir fram­takið, en kvaðst þurfa að vinna vinn­una sína. Hann vatt sér upp að Ali og Majed, horfði stíft í augun á þeim síð­ar­nefnda, þeim eldri, og bauð þeim að koma með sér. Þeir véku sér undan augn­sam­bandi. Við svo búið leit full­trú­inn til lög­reglu­mann­anna sem fylgdu honum og kink­aði kolli orða­laust í átt­ina að Ali og Majed. Þannig tákn­aði hann fyr­ir­skipun um vald­beit­ingu.

Ali og Majed voru dregnir út með valdi eftir kirkju­gólf­inu, sama gólf og gengið er eftir þegar pör gifta sig, og sama gólf og gengið er eftir þegar látnir eru bornir til grafar.

Við kirkju­tröpp­urnar tóku tveir lög­reglu­mann­anna sér stöðu og hand­járn­uðu Ali. Þegar vinur hans beygði sig yfir hann og benti lög­reglu­mönn­unum á að Ali væri aðeins sextán ára gam­all sló annar lög­reglu­mann­anna hann í and­litið. Þetta má sjá í með­fylgj­andi mynd­bandi. Síðan ýttu lög­reglu­menn­irnir Ali niður kirkju­tröpp­urnar í hand­járnum og þrýstu honum inn í lög­reglu­bíl þar sem hann brast í grát. 

 

Samtökin No Borders Iceland tjá sig um atburð­inn í yfir­lýs­ingu á Facebook:

 

Hópur sem kallar sig „Ekki fleiri brott­vís­anir“ tekur í sama streng:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið undanfarið ár