Þórshöfn í Færeyjum Mynd: Shutterstock

Litli maðurinn og hafið: Færeyska byltingin

Færeyska lands­stjórnin stefnir að því að bjóða upp fisk­veiði­heim­ildir, þvert gegn vilja útgerð­ar­manna sem hafa bók­fært veiði­leyfi sín sem eign. Georg L. Petersen, rit­stjóri á fær­eyska blað­inu Dimma­lætt­ing, skrifar um upp­boð á fisk­veiði­heim­ildum í Færeyjum.

Það reynd­ist þraut­inni þyngri fyrir vinnu­nefnd sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Færeyja, Högna Hoydal, að kom­ast að sam­komu­lagi og að gera til­lögu til laga­frum­varps um hvernig haga eigi fær­eyskri útgerð og fisk­veiði­stjórnun í fram­tíð­inni. Nefndin skil­aði 248 síðna áliti.

Formaður nefnd­ar­innar, Johnny í Grótinum, hafði fulla stjórn á efn­inu þegar það var lagt fram í Þórshöfn á dög­unum. „Nýtt og var­an­legt sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­komu­lag fyrir Færeyjar“ er heiti álits nefnd­ar­innar sem hún afhenti ráð­herra við það tæki­færi.

Áður en nefndin hélt til starfa var að miklu leyti búið að binda hana á höndum og fótum – veiði­rétt­indi skyldu seld á opin­berri upp­boðs­sölu.

Sér­fræð­ingar og stjórn­un­ar­á­ætlun skyldu vera grund­völl­ur­inn undir stjórnun veiði­á­lags. Þetta var ekki til umræðu og er nefnt á fleiri stöðum í álit­inu, og sér­stak­lega þar sem nefndin tekur sölu fisk­veiði­heim­ilda á upp­boði til með­ferðar.

„Enn einu sinni skal þess getið að nefnd­inni er skipað að gera til­lögu að upp­boðs­kerfi, og því er hún ekki beðin um mat á hvort upp­boðs­kerfið sé

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kvótinn

FréttirKvótinn

Sagan af vél­stjór­anum í Eyjum sem gagn­rýndi kvóta­kerfið: „Ég var tal­inn óalandi og óferj­andi.“

Stærsta útgerð­ar­fé­lagið í Vest­manna­eyjum, Ísfé­lagið stendur á tíma­mótum eftir að Guðbjörg Matth­í­as­dóttir færði eign­ar­haldið að mestu yfir á syni sína og skráði félagið á markað. Völd útgerð­ar­innar í Eyjum eru mikil og segir fyrr­ver­andi starfs­maður Ísfé­lags­ins, Árni Marz Frið­geirs­son, sögu af því þegar honum var sagt upp vegna greinar sem hann skrif­aði í DV um kvóta­kerfið.
InnlentKvótinn

Fyrrum Alþings­maður vill rót­tækar breyt­ingar: „Búið að rústa mörgum sveit­ar­fé­lögum“

Grétar Mar Jónsson, fyrrum þing­maður Frjáls­lynda flokks­ins, telur að Sam­fylk­ingin geti hjálpað sjó­mönnum. Næst­kom­andi föstu­dag verður hald­inn fundur um stjórn fisk­veiða á Íslandi á Kaffi Catalínu og hefst fund­ur­inn klukkan 17:00. Grétar Mar Jónsson, fyrrum þing­maður Frjáls­lynda flokks­ins, verður einn af frum­mæl­endum fund­ar­ins en ásamt því að hafa verið Alþing­is­maður er Grétar þaul­vanur skip­stjóri. Mannlíf heyrði í Grétari til að...
InnlentKvótinn

Gunnar Smári hjólar í útgerð­irnar og lyg­ina: „Meira og minna einka­vina­vætt til auð­hringja“

Gunnar Smári Egilsson, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands, tekur saman skipt­ingu útflutn­ings­verð­mæta loðnu­kvót­ans í nýjum pistli sínum. Þar fer hann yfir skipt­ingu útflutn­ings­verð­mæt­anna milli útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna sem eiga kvót­ann. Nú stefnir í stóra loðnu­ver­tíð, eftir loðnu­brest síð­ast­liðin tvö ár. Komandi ver­tíð hefur verið metin á 50-70 millj­arða króna í útflutn­ings­verð­mæti, sem eru um 1,5-2,0 pró­sent af lands­fram­leiðsl­unni. Gunnar Smári fer yfir skipt­ing­una:...

Mest lesið undanfarið ár