Fjár­sterkir aðilar Eig­enda­hópur Heima­valla sam­anstendur meðal ann­ars af ein­stak­lingum sem hafa vel grætt á kvóta, rík­is­að­stoð í land­bún­aði og verð­bréfa­við­skiptum. Mynd: Shutterstock

Kvótapeningar og ríkisaðstoð að baki einu sterkasta fasteignafélagi landsins

Fast­eigna­fé­lagið Heima­vellir á yfir 900 íbúðir í leigu á öllu land­inu. Tveir af stærstu eig­endum félags­ins hafa hagn­ast umtals­vert á fisk­veiði­kvóta og rík­is­styrkjum í land­bún­aði. Þá var einn af stærri eig­endum félags­ins lyk­il­vitni í „Stím-mál­inu“ svo­kall­aða.

Íbúða­lána­sjóður hefur að und­an­förnu selt mörg hund­ruð íbúðir á land­inu öllu og eru kaup­endur í flestum til­fellum fyr­ir­tæki sem ætla að ein­beita sér að leigu­mark­aði. Fyr­ir­tækið sem hefur verið hvað atkvæða­mest í umræddum fast­eigna­kaupum er fast­eigna­fé­lagið Heima­vellir en það hefur keypt jafnt og þétt af Íbúða­lána­sjóði frá því það var stofnað í jan­úar árið 2014. Eigendur félags­ins eru sagðir 52 tals­ins en tveir af stærstu eig­endum félags­ins eiga það sam­eig­in­legt að hafa hagn­ast á sölu fisk­veiði­kvóta og notið rík­is­að­stoðar í land­bún­aði. Þá á félag í skatta­skjóli um 6,9% hlut í Heima­völlum og einn eig­and­inn spil­aði lyk­il­hlut­verk í „Stím-mál­inu“ svo­kall­aða þar sem fyrr­ver­andi for­stjóri Glitnis, Lárus Welding, var dæmdur í fimm ára fang­elsi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár