Geðraskanir: Kostnaðurinn af aðhaldinu

Íslend­ingar eiga met í lyfja­notkun en aðgengi að sál­fræð­ingum er tak­markað. Kostn­að­ur­inn af geð­rösk­unum er tal­inn vera minnst 24 millj­arðar á ári. Engu að síður eru sam­tök eins og Hugarafl, sem vinna að bata fólks með geð­rask­anir, í upp­námi vegna óvissu um fjár­fram­lög.

Geðraskanir: Kostnaðurinn af aðhaldinu
Þjón­ustan í upp­námi Ef fram fer sem horfir verður Eiríkur að finna sér annað starf í haust. Á sama tíma og úrræði á borð við Hugarafl er í upp­námi vegna skertra styrkja frá rík­inu hefur van­líðan ung­menna farið vax­andi og sjálfs­vígs­sím­tölum í Hjálp­ar­sím­ann 1717 fjölgað ár frá ári. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Það þarf nátt­úr­lega ein­hverja geð­veiki til þess að sjá ekki hvað þetta er frá­bært land sem við búum á,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son í ára­móta­upp­gjörs­þætt­inum Krydd­síld á Stöð 2 á gaml­árs­dag og benti jafn­framt á að lífs­gæði væru mikil hér á landi á nán­ast hvaða mæli­kvarða sem er. Líkur eru hins vegar á að þeir sem raun­veru­lega glími við geð­veiki sjái einmitt ekki hversu frá­bært það er að búa á Íslandi, því stað­reyndin er sú að Íslend­ingar eru heims­meist­arar í notkun þung­lynd­is­lyfja, mikil aukn­ing hefur orðið í notkun svefn­lyfja meðal barna á síð­ustu árum og örorka vegna geð­rask­ana fer vax­andi meðal ungs fólks.

Hjálp­ar­sími Rauða kross­ins tekur á móti rúm­lega einu og hálfu sjálfs­vígs­sím­tali á dag og þá hefur rík­is­stjórn Bjarna skorið niður styrki til sam­tak­anna Hug­arafls um 80 pró­sent, en sam­tökin sér­hæfa sig í end­ur­hæf­ingu og vald­efl­ingu þeirra sem glíma við geð­heil­brigð­is­vanda­mál.

Óljóst hvenær loforð um niðurgreidda sálfræðiþjónustu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu