Kærunefnd útlendingamála kvað upp 138 úrskurði á átta mánuðum

„Nefndin hefur haldið sjó og vel það,“ segir for­maður kæru­nefnd­ar­innar í sam­tali við Stundina. Málum fjölg­aði skyndi­lega í lok sept­em­ber og hefur nefndin fengið þrjá nýja starfs­menn til liðs við sig.

Kærunefnd útlendingamála kvað upp 138 úrskurði á átta mánuðum
Stundin fjall­aði um mál hæl­is­leit­and­ans Felix í apríl. Hér er hann ásamt félögum sínum, en mynd teng­ist frétt ekki beint.

Frá því að kæru­nefnd útlend­inga­mála tók til starfa í lok jan­úar hefur hún kveðið upp 138 úrskurði og lokið 15 málum með öðrum hætti. Á tíma­bil­inu 1. mars til 24. sept­em­ber fækk­aði málum í vinnslu um 34 pró­sent og með­al­aldur slíkra mála lækk­aði um 42 pró­sent. Alls fóru 153 mál farið af borði nefnd­ar­innar. 

Þetta eru upp­lýs­ingar sem Stundin fékk frá kæru­nefnd­inni í seinni hluta sept­em­ber­mán­aðar. Eins og fram kom í frétt þann 9. sept­em­ber síð­ast­lið­inn er fjallað um reynsl­una af hinni nýstofn­uðu kæru­nefnd í grein­ar­gerð fjár­laga­frum­varps­ins fyrir árið 2016. 

Greint er frá því að fram­lög til hæl­is­mála verði aukin um 175 millj­ónir króna, meðal ann­ars vegna „vand­kvæða kæru­nefndar í útlend­inga­málum við að upp­fylla áform um þann máls­hraða sem að var stefnt með stofnun hennar“. Þá er vísað til þess að komið hafi upp „tíma­bundnir erf­ið­leikar í máls­með­ferð hæl­is­leit­enda sem veldur því að bið­tími hæl­is­leit­enda eftir nið­ur­stöðu hefur lengst á ný“. 

Hjörtur Bragi Sverrisson
Hjörtur Bragi Sverr­is­son er for­maður kæru­nefndar útlend­inga­mála. Áður starf­aði hann sem fram­kvæmda­stjóri mann­rétt­inda­deildar ÖSE í Kosovo

Lægri meðalaldur mála

Samkvæmt töl­fræði­legum upp­lýs­ingum sem Stundin fékk frá nefnd­inni hefur hins vegar tals­verður árangur náðst frá því að nefndin tók til starfa. 112 mál voru á borði nefnd­ar­innar þegar hún gat byrjað að úrskurða, en flest þeirra höfðu verið fram­send frá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu. Þann 24. sept­em­ber voru 74 mál í vinnslu hjá nefnd­inni. Um síð­ustu ára­mót var með­al­aldur mála í vinnslu 296 dagar. Þann 24. sept­em­ber var með­al­aldur mála 171 dagur. 

„Af þessum tölum má sjá að nefndin hefur haldið sjó og vel það. Það þakka ég fyrst og fremst harð­dug­legum sam­verka­mönnum mínum og utan­að­kom­andi nefnd­ar­mönnum sem hafa lagt á sig miklu meiri vinnu en gefið var til kynna þegar þeir voru skip­aðir,“ segir Hjörtur Bragi Sverr­is­son, for­maður nefnd­ar­innar, í sam­tali við Stundina. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár