Illugi ákvað að Orka Energy yrði fulltrúi Íslands í samstarfi við Kína

Mennta­mála­ráðu­neyti Illuga Gunn­ars­sonar afhendir gögn um Kínaferð ráð­herr­ans í mars. Kína­ferðin hefur haft miklar afleið­ingar fyrir Illuga í ljósi þátt­töku fyrr­ver­andi vinnu­veit­anda hans, Orku Energy, í ferð­inni. Gögnin sýna meðal ann­ars fram á að það var mennta­mála­ráðu­neytið sem ákvað að Orka Energy yrði full­trúi íslenskra stjórn­valda í sam­starf­inu við kín­versk yfir­völd á sviði jarð­varma.

Illugi ákvað að Orka Energy yrði fulltrúi Íslands í samstarfi við Kína
Frum­kvæðið Illuga Illugi átti frum­kvæði að heim­sókn­inni til Kína í árs­byrjun 2015 en þá sendi hann menn­ing­ar­mála­ráð­herra Kína bréf og bað um hana en ráð­herrr­ann hafði áður orðað mögu­leik­ann á slíkri heim­sókn við Illuga. Mynd: Pressphotos

Illugi Gunn­ars­son mennta­mála­ráð­herra und­ir­rit­aði opin­beran sam­starfs­samn­ing við kín­verska ríkið um jarð­varma­verk­efni þar í landi þar sem Orka Energy Ltd, fyr­ir­tæki sem hann áður starf­aði hjá, var full­trúi Íslands ásamt íslenska rík­is­fyr­ir­tæk­inu Orku­stofnun.

Þetta kemur fram í samn­ingnum um þessa sam­vinnu á sviði jarð­varma­rann­sókna sem mennta­mála­ráðu­neytið hefur sent Stund­inni ásamt öðrum gögnum um skipu­lagn­ingu á opin­berri heim­sókn Illuga Gunn­ars­sonar mennta­mála­ráð­herra til Kína í mars síð­ast­liðnum. Um er að ræða umtals­vert magn gagna sem Stundin mun vinna úr og segja frá á næst­unni. Í gögn­unum kemur fram hvernig opin­ber heim­sókn Illuga Gunn­ars­sonar var ákveðin og skipu­lögð og sam­an­standa gögnin af dag­skrár­drögum, tölvu­póstum, bréfum og öðru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Illugi Gunnarsson og Orka Energy

Fréttir

Sam­starfs­maður íslenska rík­is­ins not­aði þrjú félög í skatta­skjólum

Haukur Harð­ar­son, fjár­festir og stjórn­ar­for­maður Orku Energy, átti að minnsta kosti þrjú félög í skatta­skjólum sem hann not­aði í við­skiptum sínum fyrir og eftir hrun. Stýrir fyr­ir­tæki sem á í sam­starfi við íslenska ríkið í orku­málum í Kína og hefur Haukur nokkrum sinnum fundað með Ólafi Ragnari Gríms­syni, for­seta Íslands, vegna orku­mála. Einsdæmi er að einka­fyr­ir­tæki kom­ist í þá stöðu sem Orka Energy er í í Kína.
PistillIllugi Gunnarsson og Orka Energy

Ingi Freyr Vilhjálmsson

Tvö hlið­stæð spill­ing­ar­mál en bara ein athugun á mútu­broti

Mál utan­rík­is­ráð­herra Sví­þjóðar, Margot Wallström, og mál Illuga Gunn­ars­sonar eru hlið­stæð að ýmsu leyti. Bæði leigðu íbúðir af eink­að­ilum af óljósum ástæðum. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur brugð­ist við í til­felli Wallström en eng­inn eft­ir­lits­að­ili hefur skoðað mál Illuga svo vitað sé. Af hverju stafar þessi munur á milli land­anna?
PistillIllugi Gunnarsson og Orka Energy

Ingi Freyr Vilhjálmsson

Illugi gerir und­ir­menn sína sam­á­byrga

Illugi Gunn­ars­son mennta­mála­ráð­herra gerði und­ir­menn sína í mennta­mála­ráðu­neyt­inu sam­á­byrga við skipu­lagn­ingu á opin­berri heim­sókn til Kína þar sem Orka Energy var í við­skipta­sendi­nefnd hans. Starfs­menn ráðu­neyt­is­ins vissu ekki um við­skipti Illuga og stjórn­ar­for­manns Orku Energy. Einn af und­ir­mönnum Illuga í ráðu­neyti er Ásta Magn­ús­dóttir sem kom að skipu­lagn­ingu ferð­ar­innar til Kína en ómögu­legt hefur verið að ná í hana til að spyrja hana spurn­inga um ferð­ina.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár