Hótaði að kveikja í sér: „Mér líður eins og öllum sé sama um mig“

Íranskur maður sem sæk­ist eftir vernd á Íslandi er hættur að borða og drekka. Örfáir lög­menn sinna rétt­ar­gæslu fyrir alla hæl­is­leit­endur á Íslandi eftir að samn­ingur inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við Rauða kross­inn tók gildi.

Hótaði að kveikja í sér: „Mér líður eins og öllum sé sama um mig“

„Það er komið fram við mig eins og ég sé dauður en ekki lif­andi,“ segir maður sem hellti yfir sig grill­vökva og hót­aði að kveikja í sér fyrir utan höf­uð­stöðvar Rauða kross­ins í síð­ustu viku. Hann kom til Íslands í mars síð­ast­liðnum og sótti um hæli. Nú dvelur hann á Land­spít­al­anum þar sem hann fær sál­ræna aðhlynn­ingu. 

Maðurinn skelfur og er með nístandi höf­uð­verk. Á mið­viku­dag­inn ákvað hann að hætta að borða og drekka. „Ég sé enga ástæðu til að lifa lengur, mér líður eins og öllum sé sama um mig og eng­inn vilji hjálpa mér. Þá er kannski betra að vera bara dauður.“

„Ég sé enga ástæðu til að lifa lengur“ 

Hann er íranskur að upp­runa og hefur hrak­ist milli Evr­ópu­ríkja und­an­farin sex ár; átt við­komu í Tyrk­landi, Grikk­landi, Ítalíu, Kýpur og Svíþjóð. Hann seg­ist verða fyrir stöð­ugu áreiti og hót­unum af hendi íranskra stjórn­valda sem saki hann um njósnir. Þetta rekur hann til þess að hann er krist­innar trúar og tók þátt í mót­mælum í heima­land­inu á yngri árum.

Trú­bræður hans í Íran sæta ofsóknum. Af 80 millj­ónum íbúa er aðeins hálft pró­sent kristið. Í skýrslu frá 2013 er haft eftir Ahmed Shaheed, sér­stökum tals­manni Sam­ein­uðu þjóð­anna um mann­rétt­inda­mál í Íran, að þar séu kristnir menn sóttir til saka og fang­els­aðir á hæpnum for­sendum, til að mynda með vísan til þess að trú­ar­iðkun þeirra ógni þjóðar­ör­yggi. Hafa kristnir Íranir flykkst úr landi und­an­farin ár.

Umdeildur samningur veikti réttargæsluna
Umdeildur samn­ingur veikti rétt­ar­gæsl­una Samn­ingur inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við Rauða kross­inn í ráð­herra­tíð Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur var gagn­rýndur harð­lega, meðal ann­ars af lög­fræð­ing­unum Ragnari Aðal­steins­syni, Helgu Völu Helga­dóttur og Kristrúnu Elsu Harð­ar­dóttur. Lýsti Ragnar, einn virt­asti mann­rétt­inda­lög­maður Íslands, nýja samn­ingnum með eft­ir­far­andi hætti í við­tali við Reykja­vík viku­blað: „Formið verður með öðrum hætti en það hefur verið hingað til. Þetta verður stofn­ana­bundið, eins og ég óttað­ist og það gerir hæl­is­leit­endum auð­vitað miklu erf­ið­ara að fá þá aðstoð sem þeir þurfa á að halda.“ Ragnar benti einnig á að nær allir hæl­is­leit­endur væru öreigar, svo þessar breyt­ingar yrðu til þess að lög­menn þyrftu að taka mál þeirra að sér á sinn kostnað þegar hæl­is­leit­andi vildi skipta um lög­mann. Allir pen­ing­arnir sem ráð­stafað væri til rétt­ar­gæslu myndu nú renna til Rauða kross­ins. Kristrún Elsa, sem er fyrrum starfs­maður Útlend­inga­stofn­unar, tók í sama streng. Í við­tali við Morg­un­blaðið benti hún á að hags­muna­á­rekstur gæti orðið þegar ein­stak­lingur sem starfar alfarið við rétt­ar­að­stoð við hæl­is­leit­endur fengi greitt fyrir störf sín frá Inn­an­ríki­ráðu­neyt­inu. Eins furð­aði hún sig á því að Rauði Krossinn hefði sam­þykkt að dregið yrði úr þjón­ustu við hæl­is­leit­endur með þessum hætti. Hermann Ottósson, sem sést á mynd ásamt Hönnu Birnu hér að ofan, hefur gegnt starfi fram­kvæmda­stjóra Rauða kross­ins und­an­farin ár. Í gær til­kynnti hann stjórn Rauða kross­ins að hann vildi láta af störfum.

Á fimmtu­dag­inn í síð­ustu viku, þann 27. ágúst, var mað­ur­inn orð­inn úrkula vonar. Mál hans hafði taf­ist og biðin eftir fyrsta svari yfir­valda var komin langt umfram 90 daga við­mið­un­ar­tíma máls­með­ferðar. Hann vildi ná tali af rétt­ar­gæslu­manni sínum, en eftir að tekið var upp nýtt fyr­ir­komu­lag rétt­ar­gæslu­mála hæl­is­leit­enda hafa aðeins tveir til þrír lög­fræð­ingar Rauða kross­ins unnið við að gæta hags­muna þeirra hér­lendis.

Maðurinn gerði árang­urs­lausa til­raun til að ná sam­bandi við annan af rétt­ar­gæslu­mönn­unum, þann sem honum hafði verið úthlutað. Nokkru síðar bár­ust smá­skila­boð frá lög­fræð­ingnum: „Dear xxxx I am out of Iceland unt­ill 9 sept­em­ber. Please call my colleague xxxxxxxxx, 5704000. She is hand­ling your case while I am away.“ 

Ang­istar­til­finn­ing greip mann­inn. Hann ræddi við hinn lög­fræð­ing­inn sem sagð­ist mundu reyna að aðstoða hann. Maðurinn bjóst við að heyra frá honum aftur dag­inn eftir en úr því varð ekki. „Mér leið eins og öllum væri sama um mig,“ segir hann. „Ég fór að húsa­kynnum Rauða kross­ins og ætl­aði að kveikja í mér – ekki inni í hús­inu heldur fyrir utan – en lög­reglan yfir­bug­aði mig.“ Í kjöl­farið var hann vistaður á geðsviði Land­spít­al­ans og þar dvelur hann enn. Hann sótt­ist sjálfur eftir því af fyrra bragði að fá að segja sögu sína.

Vinur manns­ins réttir honum vatns­glas og hvetur hann til að fá sér sopa. Að öðrum kosti muni hann hvað og hverju örmagn­ast og hætta að geta hreyft sig. Hæl­is­leit­and­inn horfir á glasið, tekur það svo upp og hellir vatn­inu út um glugg­ann. 

Bætt við 4. sept­em­ber kl. 19:30: 
Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Rauða kross­inum hafa sjálf­boða­liðar og starfs­fólk sam­tak­anna verið í reglu­legu sam­bandi við mann­inn allt frá því hann kom til Íslands. Þá er Stund­inni tjáð að mað­ur­inn hafi verið lát­inn vita fyr­ir­fram að lög­maður hans færi í sum­ar­frí og annar rétt­ar­gæslu­maður gæti tekið við mál­inu. Auk þess hafi Rauði kross­inn reynt að ná sam­bandi við mann­inn sím­leiðis dag­inn áður en hann hót­aði að kveikja í sér fyrir utan húsa­kynni Rauða kross­ins þann 28. ágúst. Starfs­maður Rauða kross­ins segir í sam­tali við Stundina að sjálf­boða­liðar og starfs­menn sam­tak­anna hafi hitt mann­inn dag­lega á Land­spít­al­anum frá því að hann var vistaður þar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár