Mynd: Kristinn Magnússon

Á heimili safnarans

Þuríður Blær Jóhanns­dóttir, leik­kona og rapp­ari í Reykja­vík­ur­dætrum tekur á móti blaða­manni á heim­ili móður sinnar, Ilmar ­Árna­dóttur á Bræðra­borg­ar­stíg í gamla Vest­ur­bænum. „Ég bý í svo lít­illi íbúð með kærast­anum mínum að þar eru bara mik­il­væg­ustu hlut­irnir en hérna eru ennþá allir skemmti­legu hlut­irnir“.

Íbúð móður hennar er engri lík, með myndum og munum upp um alla veggi sem hver segir sína sögu.

Fata
Fata Ég fer stundum á mjög slæman túr þannig að ég ligg bara í rúm­inu og æli. Þá er gott að eiga fötu. Líka ef maður er mjög þunnur. Það versta sem ég veit er að liggja med haus­inn ofaní kló­setti þegar mér liður illa. Ég hata líka að æla og geri það ekki nema í allra sið­ustu lög. Þannig að ég gæti ekki lifað án þess ad eiga ælu­fötu.

Hauskúpa
Hauskúpa Einu sinni fékk ég þrá­hyggju fyrir hrekkja­vöku­dóti. Ég horfði stans­laust á Tales from the Crypt og ég á ennþá fullan skáp af köngu­lóm og haus­kúpum.

Sóleyjarkvæði
Sól­eyj­ar­kvæði Ég hef elskað þessa plötu frá þvi að ég var barn. Ég er fyrst núna að átta mig á þvi af hverju hún hefur svona mikil áhrif á mig. Þessi plata sam­einar tvö helstu áhuga­málin mín; Leiklist og rapp. Kvæðið er eftir Jóhannes úr Kötlum og brag­ar­hátt­ur­inn er svo flottur og hann er með skemmti­legar til­vís­anir í íslenska menn­ingu. Svo er farið með kvæðið á plöt­unni eins og leik­rit og leik­radd­irnar eru svo frá­bærar. Arnar Jónsson er auð­vitað á plöt­unni ásamt öðrum frá­bærum leik­urum.

„Mamma er safn­ari, hún safnar öllu. Við eigum til dæmis 200 sól­gler­augu og 20 skrúf­járn. Sem er frá­bært og getur verið mjög hent­ugt, en ég er hins vegar ekki mikil efn­is­hyggju­mann­eskja. Ég elska fólk og þykir vænt um minn­ingar en tengi þær ekki endi­lega við hlut­ina í kringum mig, enda týni 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár