Þuríður Blær Jóhannsdóttir, leikkona og rappari í Reykjavíkurdætrum tekur á móti blaðamanni á heimili móður sinnar, Ilmar Árnadóttur á Bræðraborgarstíg í gamla Vesturbænum. „Ég bý í svo lítilli íbúð með kærastanum mínum að þar eru bara mikilvægustu hlutirnir en hérna eru ennþá allir skemmtilegu hlutirnir“.
Íbúð móður hennar er engri lík, með myndum og munum upp um alla veggi sem hver segir sína sögu.
Fata Ég fer stundum á mjög slæman túr þannig að ég ligg bara í rúminu og æli. Þá er gott að eiga fötu. Líka ef maður er mjög þunnur. Það versta sem ég veit er að liggja med hausinn ofaní klósetti þegar mér liður illa. Ég hata líka að æla og geri það ekki nema í allra siðustu lög. Þannig að ég gæti ekki lifað án þess ad eiga ælufötu.
Mynd: Kristinn Magnússon
HauskúpaEinu sinni fékk ég þráhyggju fyrir hrekkjavökudóti. Ég horfði stanslaust á Tales from the Crypt og ég á ennþá fullan skáp af köngulóm og hauskúpum.
Mynd: Kristinn Magnússon
SóleyjarkvæðiÉg hef elskað þessa plötu frá þvi að ég var barn. Ég er fyrst núna að átta mig á þvi af hverju hún hefur svona mikil áhrif á mig. Þessi plata sameinar tvö helstu áhugamálin mín; Leiklist og rapp. Kvæðið er eftir Jóhannes úr Kötlum og bragarhátturinn er svo flottur og hann er með skemmtilegar tilvísanir í íslenska menningu. Svo er farið með kvæðið á plötunni eins og leikrit og leikraddirnar eru svo frábærar. Arnar Jónsson er auðvitað á plötunni ásamt öðrum frábærum leikurum.
Mynd: Kristinn Magnússon
„Mamma er safnari, hún safnar öllu. Við eigum til dæmis 200 sólgleraugu og 20 skrúfjárn. Sem er frábært og getur verið mjög hentugt, en ég er hins vegar ekki mikil efnishyggjumanneskja. Ég elska fólk og þykir vænt um minningar en tengi þær ekki endilega við hlutina í kringum mig, enda týni
Almenningur hefur viðhaldið Stundinni og Kjarnanum með áskriftum og styrkjum síðan 2013. Með því að kaupa áskrift að Heimildinni styrkir þú sjálfstæða rannsóknarblaðamennsku.
Athugasemdir