Grímsey rís úr sæ Grímsey­ingar von­ast eftir því að bank­inn og/eða ríkið sýni mildi. Mynd: Völundur Jónsson

Gulleyjan sekkur undan skuldum

Þrátt fyrir að Grímsey­ingar séu umvafðir verð­mætri fisk­veiði­auð­lind eru blikur á lofti. Vegna sölu á kvóta frá eyj­unum horfir svo að Gríms­ey­ingum verði ekki heim­ilt að nýta sér bjarg­ræðið.

Stundum lenda sam­fé­lög í hættu vegna þess að fólkið vill flytja í burtu. Stundum rísa heilu bæirnir á örskots­stundu en falla svo síðar nán­ast á einni nóttu. Eitt fræg­asta dæmið er Klondike í Banda­ríkj­unum, sem byggð­ist upp í kringum gull­gröft. Þegar gullið þvarr og æðinu lauk fluttu íbú­arnir í burtu. Eftir stóð drauga­bær og kunna sömu örlög að bíða byggðar í Grímsey. Saga Klondike er þó and­stæða sögu Gríms­eyjar vegna þess að gull Grímsey­inga er enn innan seil­ingar og nóg til af því. Gull Grímsey­inga felst í gjöf­ulum torfum af fiski, stein­snar frá Gríms­eyj­ar­höfn. Stóra spurn­ingin er hvort Grímsey­ing­arnir, sem vilja róa áfram, muni hafa betur í rimm­unni við kvóta­kerfið og Íslands­banka. 

Vart er um annað talað meðal eyja­skeggja sjálfra þessa dag­ana en fram­tíð byggðar í eynni. Ekki eru ein­göngu miklir hags­munir í spil­inu heldur einnig miklar til­finn­ingar. Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem krísa kemur upp …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár