Mynd: Kristinn Magnússon

Fordómaleysi og vinátta

Mesti fjöl­menn­ing­ar­leik­skóli lands­ins er Leik­skól­inn Ösp í Breið­holti. Börnin leika sér saman óháð þjóð­erni, trú og húð­lit.

Við fyrstu sýn virð­ist Leik­skól­inn Ösp í Breið­holti vera eins og hver annar leik­skóli. Á hverjum degi mæta um sex­tíu börn í skól­ann, spennt fyrir því að læra nýja hluti og leika sér með jafn­ingjum. Leik­skól­inn Ösp sker sig hins vegar frá öðrum leik­skólum að einu leyti - átta­tíu pró­sent nem­enda talar annað tungu­mál en íslensku og um 36 pró­sent starfs­manna eru af erlendu bergi brotnir. Börn og starfs­menn við skól­ann eru af alls 16 þjóð­ernum, en tvennt bindur þau saman í dag­legu starfi - for­dóma­leysi og vin­átta.

Princess Mía og Jasmin
Princess Mía og Jasmin Nafn: Princess Mía Aldur: 5 ára Upp­runa­land: Fil­ipps­eyjar Upp­á­halds matur: Kart­öflumús og fiskur Nafn: Jasmin Aldur: 5 ára Upp­runa­land: Ísland Upp­á­halds matur: Spag­hettí og slaufupasta Skemmti­leg­ast að gera saman: Leika í mömmó og barbí.

Fábio og Adrian
Fábio og Adrian Nafn: Fábio Aldur: 5 ára Upp­runa­land: Portúgal /Ísland Upp­á­halds matur: Fisk, ham­borg­ara og allt Nafn: Adrian Aldur: 5 ára Upp­runa­land: Pólland Upp­á­halds matur: Pizza Skemmti­leg­ast að gera saman: Leika í krókó­díla­leik

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár