Flýja alræði Pútíns

Hættu­legt er að vera stjórn­ar­and­stæð­ingur í Rúss­landi. Lög á lög ofan til höf­uðs mann­rétt­indum. Risi á brauð­fótum.

Ég hef fengið svo margar hót­anir í gegnum fés­bók­ina og netið að ég veit ekki hvort þær eru allar í alvöru eða ekki. Ég hef birt þetta allt. En ástandið er þannig núna að allir þeir sem segja eitt­hvað á móti Pútín og stefnu hans, eru í hættu.“ 

Þetta segir Zhanna Nemtsova, dóttir stjórn­ar­and­stæð­ings­ins Boris Nemtsov, sem var skot­inn til bana í mið­borg Moskvu í lok febr­úar á þessu ári. Hann var einn virt­asti stjórn­mála­maður Rúss­lands og leið­togi Lýð­ræð­is­flokks Rúss­lands.

Zhanna Nemtsova er farin frá Rúss­landi, í sjálf­skip­aða útlegð, til að bjarga eigin skinni. Lög­fræð­ingur hennar til­kynnti þetta fyrir skömmu. Í við­tali sem frétta­rit­ari sænska rík­is­út­varps­ins átti við hana fyrir skömmu vildi hún ekki gefa upp hvar hún væri stödd. Hún er því í felum. Fleiri félagar í Lýð­ræð­is­flokknum hafa orðið fyrir ofsóknum eftir morðið á Boris Nemtsov, leitað hefur verið á heim­ilum þeirra án ástæðu, vega­bréf þeirra verið gerð upp­tæk og þessu hafa fylgt allskyns hót­anir. Þeir sem hafa fram­kvæmt þetta hafa yfir­leitt verið óþekkj­an­legir, verið með lamb­hús­hettu á höfði.

Eins og áróðursvél nasista

Flokks­menn og fylg­is­menn Boris Nemtsov hafa staðið vakt­ina dag og nótt á þeirri brú í mið­borg Moskvu, hvaðan sést til Kremlar, mið­punkts valds­ins í Rúss­landi. En þangað hafa einnig komið í skjóli myrk­urs, grímu­klæddir menn og hent og rifið blóm sem fylg­is­menn Nemtsov hafa komið með. Ljós­myndir eru rifnar og hlutir á borð við ljós­ker eyði­lagðir. Hótunum hefur 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár