Mættur Ólafur Ólafsson, aðal­eig­andi Samskips, mættur á Vernd í fylgd eig­in­konu sinnar, Ingi­bjargar Krist­jáns­dóttur. Hann nýtur nú frelsis nema yfir blánótt­ina. Mynd: Heiða Helgadóttir

Kaupþingsmenn brostu við komuna á Vernd: Fangar kæra Fangelsismálastofnun

Létt var yfir Kaup­þings­mönnum þegar þeir komu á Vernd í gær. Afstaða, félag fanga, hefur kært Fang­els­is­mála­stofnun til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, vegna túlk­unar stofn­un­ar­innar á nýjum lögum um fulln­ustu refs­inga. Formaður Afstöðu segir málið snú­ast um mis­munun fanga.

Afstaða, félag fanga, hefur kært Fang­els­is­mála­stofnun til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, vegna túlk­unar stofn­un­ar­innar á nýjum lögum um fulln­ustu refs­inga. Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, for­maður Afstöðu, sagði í sam­tali við Stundina að málið snú­ist um að föngum sé mis­munað þegar um er að ræða að þeir fari á ökkla­band, raf­rænt eft­ir­lit, og losni þannig úr fang­elsi. Mikla athygli vakti í gær þegar efna­hags­brotafang­arnir, Ólafur Ólafsson, Sigurður Ein­ars­son og Magnús Guð­munds­son fengu að fara frá Kvía­bryggju og á fanga­heim­ilið Vernd. Þar með búa þeir við frelsi nema yfir blánótt­ina

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjármálahrunið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár