Engillinn sem villtist af leið

Ofbeld­is­menn­irnir brutu sér leið inn í lík­ama Krist­ínar Gerðar Guð­munds­dóttur þar sem þeir sátu eftir og héldu áfram að meiða hana þar til hún gafst upp og svipti sig lífi. Fram að því hafði hún barist bar­áttu hinna sterku, með hug­sjón æsk­unnar að vopni, um að ofbeldið myndi ekki sigra og hún yrði sterk­ari en allt það ljótasta sem fyrir hana kom. Berglind Ósk Guð­munds­dóttir segir sögu systur sinnar, sem verður alltaf hennar Súperman.

Engillinn sem villtist af leið

„Ein nótt enn. 20. apríl.

Skrýtið hversu margt fer í gegnum huga manns og hjarta dag­ana fyrir dauð­ann. En það er ekki hægt að skrifa um það. Um það eru ekki til orð.”

 

Aðfara­nótt 20. apríl arkar Kristín Gerður Guð­munds­dóttir um gólf í íbúð­inni þar sem hún býr á Óðins­götu, í gömlu múr­klæddu timb­ur­húsi, falið í bak­garði í miðbæ Reykja­víkur. Það er myrkur úti en hún getur ekki sofið, er full ang­istar og ótta, skelf­ingu lostin yfir því sem koma skal.

Í sex ár hefur hún verið í bata frá fíkni­efna­neyslu og barist við að skapa sér betra líf. En sama hversu mikið hún reynir, hversu harða bar­áttu hún heyir, er hún alltaf dregin aftur niður í myrkrið. Djöflar for­tíð­ar­innar sleppa tök­unum ekki svo auð­veld­lega. Hún er orðin veik og úrkula vonar.

Kristín Gerður reynir að róa taug­arnar með því að skrifa hugs­anir sínar niður í dag­bók. Í huga hennar eru aðeins þrír val­kostir í þess­ari stöðu og eng­inn þeirra góður; að lifa með geð­veiki, falla aftur í fíkni­efna­neyslu eða deyja. Hún hefur ákveðið að deyja.

Hún ákallar guð og englana, ef þeir eru til, biður þá um að vera hjá sér og passa upp á að hún rati til þeirra, að þeir leyfi henni að fá frið – ást og bros á vör. Hún útskýrir að hún hafi ekki val, hún verði að deyja og biður þá um að hjálpa sér. Henni finnst erfitt að deyja ein, helst hefði hún viljað hafa sína nán­ustu hjá sér, að þeir gætu haldið í hönd hennar og veitt henni styrk. En hún getur ekki beðið um það, þess í stað hefur hún forð­ast sam­skipti við þá síð­ustu daga. Það er of erfitt að halda and­lit­inu gagn­vart þeim og tala við þá þegar henni líður svona, þegar hún ein veit hvað er í vændum. Með sínum hætti hefur hún þó reynt að kveðja.

 

20. apríl rennur upp, klukkan er orðin eitt. „Nú þarf ég að sýna meiri styrk og hug­rekki en ég hef nokkru sinni þurft að gera. Það er nótt.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Vændi

Brynja stundaði vændi á Íslandi: „Algjör skyndihugdetta“
InnlentVændi

Brynja stund­aði vændi á Íslandi: „Algjör skyndi­hug­detta“

„Þar sem ég hafði enga virð­ingu fyrir sjálfri mér og lík­ama mínum datt mér í hug að fyrst ég væri að sofa hjá mönnum á djamm­inu gæti ég alveg eins fengið greitt fyrir það. Þetta var ekki eitt­hvað sem ég lagði mikla hugsun í. Þetta var algjör skyndi­hug­detta,“ segir fyrr­ver­andi vænd­is­kona í Helg­ar­við­tali Mannlífs. Konan, sem við köllum Brynju, lýsir...
Hvað kostar góð rassskelling? Ég á góða spaða og svipur
InnlentVændi

Hvað kostar góð rass­skell­ing? Ég á góða spaða og svipur

Mannlífi lék hugur á að gera óform­lega könn­una á eft­ir­spurn eftir vændi íslenskra kvenna eftir við­tal við Önnu Bentínu Herman­sen hjá Stíga­mótum sem sagði vændi íslenskra kvenna í atvinnu­leysi og Covid hafa stór­auk­ist. Tæplega 40 svör á sól­ar­hring Sett var aug­lýs­ing inn á íslenskan vef­mið­miðil sem margir tengja meðal ann­ars við vænd­is­sölu en ekki ein­vörð­ungu. Aug­lýs­ingin var sett inn fyrir...
Neyð rekur íslenskar konur í vændi. Gífurleg eftirspurn í Covid-faraldri
InnlentVændi

Neyð rekur íslenskar konur í vændi. Gífurleg eft­ir­spurn í Covid-far­aldri

Stígamót hafi fundið fyrir auknu vændi íslenskra kvenna í Covid far­aldr­inum. ,,Okkar konur segja að áreitið sé tals­vert meira frá kaup­endum vændis í kjöl­far Covid. Margar fá lág­marks­fram­færslu í gegnum örorku, félags­þjón­ustu eða atvinnu­leys­is­bætur. Sú upp­hæð nægir ekki til þess að fram­fleyta þeim og þá verður vændi neyð­ar­úr­ræði” segir Anna Bentína Herman­sen ráð­gjafi hjá Stíga­mótum, ,, Atvinnu­leysi hafi aldrei mælst...

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár