Hægrisinnaðasta ríkisstjórn lýðveldissögunnar er á teikniborðinu

Bjarni Bene­dikts­son og Benedikt Jóhann­es­son hafa rætt saman og Björt fram­tíð tekur ágæt­lega í hug­mynd um hægri stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Viðreisn. Talsmenn atvinnu­lífs­ins eru áber­andi í fram­varð­ar­sveit Við­reisnar.

Hægrisinnaðasta ríkisstjórn lýðveldissögunnar er á teikniborðinu
Skoða sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokki Óttar Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, með Benedikt Jóhann­essyni, for­manni Við­reisnar, á kosn­inga­nótt. Mynd: Pressphotos

Nánast hrein hægri stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Við­reisnar með hjálp Bjartrar fram­tíðar er á teikni­borð­inu.

Bjarni Bene­dikts­son ræddi við Óttar Proppé, for­mann Bjartrar fram­tíðar, í síma í gær og for­yrsta Bjartrar fram­tíðar virð­ist hlynnt við­ræð­unum.

Líklegt er að um verði að ræða hægrisinn­uð­ustu rík­is­stjórn lýð­veld­is­sög­unnar, þar sem Viðreisn er lengra til hægri en hinn hefð­bundni sam­starfs­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn. Fyrri rík­is­stjórnir hafa flestar verið sam­settar af Sjálf­stæð­is­flokki með Fram­sókn­ar­flokki eða vinstri flokki, fyrir utan und­an­tekn­ingar eins og minni­hluta­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins í nokkra mán­uði um 1950, og vinstri stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna 2009 til 2013.

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, sagði í gær­kvöldi að „menn [væru] að hitt­ast í fjöl­miðlum og njósna hvað hinir eru að hugsa“. „Þetta er allt fyrir opnum tjöldum og gegn­sæið rosa­legt,“ sagði Benedikt. Síðar neit­aði hann að svara hvort hann hefði rætt við Bjarna Bene­dikts­son. „Ég er á þeirri skoðun að stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður eigi ekki að eiga sér stað á síðum blað­anna. Við verðum að vanda til verka.“

Atvinnulífsstjórn

Líklegt er að tals­menn atvinnu­lífs­ins yrðu áber­andi í hægri stjórn­inni og að lögð verði áhersla á að gæta að hag fyr­ir­tækja, en stunda aðhald í rík­is­út­gjöldum og umsvifum hins opin­bera. Þá er einka­væð­ing og einka­rekstur lík­legri í slíkri rík­is­stjórn, til dæmis í heil­brigðis- og mennta­kerf­inu. Áhersla á skatta­lækk­anir, ekki síst á fyr­ir­tæki, er lík­legri í slíkri rík­is­stjórn en nokk­urri annarri.

Þor­gerður KatrínVar mennta­mála­ráð­herra í rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Sjálf­stæð­is­flokks.

Gera má ráð fyrir því að Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, fyrr­ver­andi ráð­herra Sjálftæð­is­flokks­ins og for­stöðu­maður hjá Samtökum atvinnu­lífs­ins, verði ráð­herra, og svo Þor­steinn Víglunds­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins. Þor­steinn vakti athygli þegar hann varð málsvari þess að almenn­ingur fengi sem minnstar launa­hækk­anir, svo forð­ast mætti verð­bólgu. Hann var­aði við því í fyrra að launa­hækk­anir mættu ekki verða meira en 3 til 4 pró­sent. „Við erum ein­fald­lega komin á enda­stöð,“ sagði hann. „Við erum að gera miklu meira en að hringja við­vör­un­ar­bjöllum. Við erum í raun og veru í krísu­á­standi. Við höfum vax­andi áhyggjur af raun­gengi íslensku krón­unnar á mæli­kvarða launa, það er hvernig launa­kostn­aður fyr­ir­tækja hér er að hækka í sam­an­burði við nágranna­lönd okkar.“

„Það færð­ist tölu­verður ótti yfir kjós­endur varð­andi hreina nýja vinstri­st­jórn“

Þor­steinn sagði við úrslit kosn­ing­anna að meg­in­nið­ur­staða þeirra hefði verið að kjós­endur höfn­uðu vinstri stjórn. „Það blasir nátt­úru­lega við að þjóðin var að hafna hug­myndum um vinstri­st­jórn og það hafði tölu­verð áhrif á kosn­ing­arnar. Við fundum það á síð­ustu vik­unni að það færð­ist tölu­verður ótti yfir kjós­endur varð­andi hreina nýja vinstri­st­jórn.  Ég held að það séu nú megin skila­boðin sem megi lesa út úr þessum kosn­ingum.“

Helstu sig­ur­veg­arar kosn­ing­anna um helg­ina voru Viðreisn, sem fékk sjö nýja þing­menn, Píratar, sem fengu sex nýja, Vinstri grænir þrjá nýja og Sjálf­stæði­flokk­ur­inn tvo nýja.

Aðrir lík­legir ráð­herrar eru Hanna Katrín Frið­riks­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri hjá Icepharma, og Jón Steindór Valdi­mars­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins, ásamt Benedikt Jóhann­essyni, fjár­festi, útgef­anda og for­manni Við­reisnar.

Horft til BjarnaSjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 29% atkvæða í Alþing­is­kosn­ing­unum og komst í lyk­il­stöðu.

Stefna flokkanna fellur vel saman

Slík rík­is­stjórn væri tæp, með aðeins 32 þing­menn gegn 31 þing­manni stjórn­ar­and­stöðu, með sama meiri­hluta og Nýsköp­un­ar­stjórnin 1944 til 1947 og Við­reisn­ar­stjórnin 1963 til 1971, sem sam­sett var af hægri og vinstri flokki, Sjálf­stæðis- og Aþýðu­flokki. Allir flokk­arnir þrír eru í kringum miðju eða hægra megin við hana í efna­hags­legu til­liti. Helsti ágrein­ing­ur­inn gæti legið í sjáv­ar­út­vegs­málum, þar sem Viðreisn hafði talað fyrir upp­boði á afla­heim­ildum, en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn staðið gegn því. Auk þess hafa Viðreisn og Björt fram­tíð talað fyrir umbótum á styrkja­kerfi í land­bún­aði og aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið.

Þor­steinn Víglunds­son hjá Viðreisn sagði í við­tali eftir kosn­ing­arnar að ná þyrfti „sátt“ í sjáv­ar­út­vegs­málum og land­bún­að­ar­málum og svo lausn í Evr­ópu­málum. Bjarni Bene­dikts­son hefur sagt, eins og fyrir síð­ustu kosn­ingar á undan, að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu sé óum­flýj­an­leg. Viðreisn var stofnuð vegna óánægju með að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sveik lof­orð um slíka þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu á síð­asta kjör­tíma­bili.

Þá falla stefnur Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar ágæt­lega saman. Í þeirri rík­is­stjórn hefur eng­inn úti­lokað sam­starf við annan, ólíkt flestum öðrum mögu­legum rík­is­stjórn­ar­sam­störfum.

Stefna Bjartrar fram­tíðar er auk þess nægi­lega opin til þess að rúma mis­mun­andi sam­starf. Flokk­ur­inn vill þannig upp­boð afla­heim­ilda eða end­ur­skoðun núver­andi kerfis, en aðrir flokkar, utan Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks, studdu upp­boð afla­heim­ilda. „Það þarf að gera með gagn­gerri end­ur­skoðun núver­andi veiði­gjalda­kerfis eða upp­boði á afla­heim­ildum með skil­yrðum sem tryggja m.a. nægi­legan var­an­leika og rekstr­ar­ör­yggi hjá þeim sem gera út og stunda fisk­vinnslu og koma í veg fyrir of mikla sam­þjöppun og tryggja raun­veru­lega og virka sam­keppni um afla­heim­ildir.“

Viðreisn vill að „tekið verði upp mark­aðstengt auð­linda­gjald í sjáv­ar­út­vegi.“

Óttar Proppé útskýrir samstarfsmöguleikann

Óttar útskýrði á Bylgj­unni í morgun hvernig tæpur meiri­hluti gæti verið jákvæð staða. „Við upp­lifðum það á þessu kjör­tíma­bili sem var að líða að rík­is­stjórnin hafði mjög sterkan meiri­hluta og hafði til­hneig­ingu til að gera hlut­ina dálítið ein og án þess að vinna með öðrum flokkum í stjórn­ar­and­stöð­unni.“ Hann tók fram að svona hefði ekki verið um öll mál.

Þá lýsti Óttar því að þótt Björt fram­tíð væri langt frá Sjálf­stæð­is­flokknum í afstöðu sner­ust stjórn­mál einmitt um að ná saman.

„Mál­efna­lega var svo mjög langt á milli okkar og sjálf­stæð­is­manna, en það er sagt að póli­tík á að vera list hins ómögu­lega þannig hún á að vera list mögu­leika manna til að ræða sig saman um flókin mál­efni þó þeir séu kannski ekki sam­mála til að byrja með.“

Forsetinn hittir formennina

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son, mun eiga fundi í dag með öllum for­mönnum flokka sem náðu full­trúa inn á Alþingi. Hann hittir þá í stærð­ar­röð, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá for­seta­emb­ætt­inu.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði við Morg­un­blaðið í morgun að hann hefði rætt við „nokkra flokks­for­menn“ og að ekk­ert væri lík­legra umfram annað. Hins vegar taldi hann stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður ekki þurfa að taka langan tíma. „Ég er bara sann­færður um að það þurfi ekk­ert að taka mjög lang­an tíma þó það þurfi ein­hvern með­göngu­tíma.“ 

Aðspurður sagð­ist Bjarni ekki úti­loka sam­starf við Vinstri græna, en þriðja flokk þyrfti til að mynda slíka rík­is­stjórn. „Það eru margir kostir í stöð­unni,“ sagði hann. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár