Mengun við verk­smiðj­una Ekki er vitað fyrir víst hvaða efni United Silicon blés út í and­rúms­loftið þó svo for­svars­menn þess full­yrða að um sé að ræða hættu­laust kís­il­ryk.

United Silicon í gjörgæslu eftirlitsstofnana

Kís­il­málm­verk­smiðja United Silicon hefur ítrekað verið staðin að því að fara á svig við útgefið starfs­leyfi fyr­ir­tæk­is­ins í Helguvík. Ólögleg losun efna í and­rúms­loftið, ömur­legar vinnu­að­stæður starfs­manna og gríð­ar­leg mengun í umhverfi verk­smiðj­unnar eru á meðal þess sem eft­ir­lits­stofn­anir fylgj­ast nú með og ætla að skoða nánar.

Kís­il­málm­verk­smiðja United Silicon í Helguvík hefur ítrekað farið á svig við starfs­leyfi og ekki til­kynnt um óhöpp og atvik sem hafa átt sér stað eins og lög og reglur gera ráð fyrir. Þetta kemur fram í bæði opin­berum eft­ir­lits­skýrslum og í tölvu­póst­sam­skiptum á milli stjórn­enda United Silicon og Umhverf­is­stofn­unar sem Stundin hefur undir höndum. Í þeim kemur meðal ann­ars fram að Umhverf­is­stofnun hafi skráð frá­vik frá starfs­leyfi í hverri ein­ustu eft­ir­lits­heim­sókn sem farin hefur verið í verk­smiðju United Silicon frá því þær hófust með fyr­ir­vara­lausu eft­ir­liti þann 17. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Samkvæmt Umhverf­is­stofnun er frá­vik fram­kvæmd sem telst ekki í sam­ræmi við kröfur sem settar eru fram í starfs­leyfi, lögum og reglu­gerðum. Tólf slík frá­vik hafa verið skráð í umræddum eft­ir­lits­heim­sóknum en þá eru skrán­ingar á frá­vikum hjá öðrum eft­ir­lits­stofn­unum ótaldar.

Stundin hefur á und­an­förnum mán­uðum ítar­lega fjallað um kís­il­málm­verk­smiðju United Silicon í Helguvík, aðdrag­and­ann að bygg­ingu hennar, fram­kvæmdir við bygg­ingu verk­smiðj­unnar og við­skipta­sögu eig­and­ans, Magnúsar Garð­ars­sonar. Í síð­ustu umfjöllun Stund­ar­innar voru birt mynd­skeið sem starfs­menn sögðu sýna ólög­lega losun á vara­sömum efnum utan verk­smiðj­unnar. Þetta hafi verið gert í skjóli nætur og að þess­ari aðferð væri beitt í trássi við starfs­leyfi United Silicon.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Áhrif kísilvers United Silicon

Arion um sjálfbærnistefnu sína og kísilverið: „Bankinn tekur þá ábyrgð mjög alvarlega“
FréttirÁhrif kísilvers United Silicon

Arion um sjálf­bærni­stefnu sína og kís­il­verið: „Bankinn tekur þá ábyrgð mjög alvar­lega“

Arion banki er með­vit­aður um þá ábyrgð sem hvílir á bank­anum varð­andi mögu­lega end­ur­opnun kís­il­vers­ins í Helguvík. Kís­il­ver­inu var lokað vegna meng­unar árið 2017. Stefna bank­ans í umhverf­is­málum hefur tekið breyt­ingum á liðnum árum og svarar bank­inn meðal ann­ars spurn­ingum um hvernig þessa stefna rímar við end­ur­opnun meng­andi kís­il­vers.
Guðbrandur þurfti púst til að hjálpa sér við að anda út af kísilverksmiðjunni
ViðskiptiÁhrif kísilvers United Silicon

Guð­brandur þurfti púst til að hjálpa sér við að anda út af kís­il­verk­smiðj­unni

Arion banki hyggst opna aftur kís­il­verk­smiðj­una í Helguvík sem hefur verið lokuð í tæpt ár. Allir bæj­ar­full­trúar í Reykja­nesbæ hafa lýst sig and­víga opn­un­inni og 350 athuga­semdir bár­ust frá íbúum í bænum. Guð­brandur Ein­ars­son', bæj­ar­full­trúi og þing­maður VIð­reisnar, lýsir áhrifum verk­smiðj­unnar á heilsu­far sitt og útskýrir hvers vegna má ekki opna hana aftur.
Stjórnmálamenn töluðu upp United Silicon og fögnuðu ákaft: „Við erum búin að bíða lengi“
FréttirÁhrif kísilvers United Silicon

Stjórn­mála­menn töl­uðu upp United Silicon og fögn­uðu ákaft: „Við erum búin að bíða lengi“

„Þetta er mjög stór stund,“ sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þá for­sæt­is­ráð­herra, þegar fyrsta skóflustungan var tekin að verk­smiðju United Silicon, sem fór í gjald­þrot í dag eftir að hafa marg­brotið starfs­leyfi og mein­tan fjár­drátt for­stjór­ans. Bæj­ar­stjór­inn í Reykja­nesbæ gagn­rýndi úrtöluraddir. „Við erum búin að bíða lengi,“ sagði iðn­að­ar­ráð­herra.
Dularfullur barón keypti í kísilveri og seldi virkjanaréttindi
Fréttir

Dul­ar­fullur barón keypti í kís­il­veri og seldi virkj­ana­rétt­indi

Ítalskur barón, Felix Von Longo-Lieb­en­stein, hefur verið virkur í jarða­kaupum á Íslandi frá síð­ustu alda­mótum en hefur náð að halda sér utan kast­ljóss fjöl­miðla. Hann var einn af hlut­höf­unum í kís­il­fyr­ir­tæk­inu United Silicon og seldi dótt­ur­fé­lagi HS Orku vatns­rétt­indi út af virkjun á Ströndum. Illa gengur að fá upp­lýs­ingar um bar­ón­inn.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár