Mynd: Heiða Helgadóttir

Ævintýraheimur í Laugardalnum

Allie Doersch ólst upp í Colorado og gekk í lista­há­skóla í Flórída þar sem hún lærði mynd­skreyt­ingar og kynnt­ist eig­in­manni sínum, Guðjóni Erni Lárus­syni. Nú hefur hún búið á Íslandi í tvö ár, vinnur sem teikn­ari hjá Össuri, syngur með pönk­hljóm­sveit­inni Tófu og var að klára mynd­skreyt­ingar við barna­bók. Hún segir myrkrið og hvítu vegg­ina á Íslandi hafa verið þrúg­andi í fyrstu en það hefur hún leyst með því að skapa lit­ríkan ævin­týra­heim í tveggja her­bergja íbúð í Laug­ar­dalnum.

Að koma inn í kjall­ara­í­búð hjón­anna Allie Doersch og Guðjóns Arnar Lár­us­sonar í Laug­ar­dalnum er eins og að ganga inn í ævin­týra­heim. Þótt íbúðin sé lítil er hver krókur og kimi nýttur undir óvenju­legt skraut og lit­ríkar myndir sem að sögn Allie var hennar leið til að vinna gegn myrkr­inu og þeim sið Íslend­inga að hafa alla veggi hvíta. Auk þess sem hún full­yrðir að hver ein­asti hlutur hafi til­finn­inga­legt gildi fyrir sig. „Allt hérna inni end­ur­speglar líf mitt,“ segir hún. „Sumum finnst þetta flott en aðrir kunna ekki að meta það,“ bætir hún við og hlær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár