Er ÍFF „gult“ stéttarfélag?

ÍFF, sem er stétt­ar­fé­lag áhafn­ar­með­lima flug­fé­lags­ins PLAY, hefur legið undir ásök­unum fyrir að vera svo­kallað „gult“ stétt­ar­fé­lag sem gengur frekar erinda atvinnu­rek­enda heldur en starfs­manna. Á hverju eru þessar ásak­anir byggðar?

Friðrik Már Ottesen, varaformaður ÍFF, Drífa Snædal, forseti ASÍ, og Vignir Örn Guðnason, formaður ÍFF
Friðrik Már Ottesen, vara­for­maður ÍFF, Drífa Snædal, for­seti ASÍ, og Vignir Örn Guðnason, for­maður ÍFF Mynd: Samsett

Flug­freyjur og flug­þjónar sem starfa hjá flug­fé­lag­inu PLAY hafa engan full­trúa í stjórn eigin stétt­ar­fé­lags, ÍFF, auk þess sem kjara­samn­ingur félags­ins við PLAY var gerður án aðkomu þeirra. ASÍ segir ÍFF bera þess merki um að vera „gult“ stétt­ar­fé­lag, en ÍFF segir þó flug­freyjur og flug­þjóna munu eign­ast full­trúa í stjórn þess í kjöl­far aðal­fundar þess seinna í mán­uð­inum.

Meinað um inngöngu í norræn samtök stéttarfélaga

ASÍ greindi frá því í gær að ÍFF hafi verið neitað um inn­göngu í Norræna flutn­inga­manna­sam­bandið, sem er sam­band stétt­ar­fé­laga í flug­greinum á Norð­ur­löndum. Íslensku stétt­ar­fé­lögin sem eiga aðild að sam­band­inu (Flug­freyju­fé­lag Íslands, Félag íslenskra atvinnu­flug­manna og Flug­virkja­fé­lag Íslands) lögð­ust gegn því að aðild ÍFF yrði end­ur­nýjuð, þar sem kjara­samn­ingur félags­ins fyrir hönd flug­freyja og flug­þjóna hjá PLAY var gerður án aðkomu þeirra.

Í sam­tali við Kjarnann segir Snorri Már Skúlason, upp­lýs­inga­full­trúi ASÍ, að ÍFF virð­ist vera svo­kallað „gult“ stétt­ar­fé­lag sem gengur erinda atvinnu­rek­enda. Því til stuðn­ings nefnir hann að kjara­samn­ing­ur­inn við PLAY hafi verið und­ir­rit­aður á skrif­stofu fyr­ir­tæk­is­ins.

Hafa fundað tvisvar á síðustu tveimur árum

Kjarninn hafði sam­band við ÍFF til að fá frek­ari upp­lýs­ingar um félagið og fékk svör frá Vigni Erni Guðn­a­syni, for­manni þess, ásamt Friðriki Má Ottesen, vara­for­manni félags­ins. Samkvæmt þeim eru félags­menn nú 81 tals­ins, en þeir eru ýmist flug­menn, flug­freyjur og flug­þjónar.

Vignir og Friðrik segja félagið hafa haldið tvo fundi á und­an­förnum tveimur árum – annan í sept­em­ber 2019 og hinn í mars 2021 – en bæta við að starf­semin hafi verið í algjöru lág­marki á þessum tíma sökum far­ald­urs­ins og lægðar í flug­sam­göngum.

Engin fulltrúi í stjórn, en þó trúnaðarmenn

Aðspurðir hvort félags­menn ÍFF komu að gerð kjara­samn­ing­ana svör­uðu þeir að stjórn ÍFF hafi farið fyrir samn­inga­nefnd flug­manna. Hins vegar voru fyrrum flug­liðar WOW air, sem áður gegndu trún­að­ar­störfum fyrir önnur stétt­ar­fé­lög, með samn­ings­um­boð fyrir hönd flug­freyja og flug­þjóna PLAY.

[links]Þessir ein­stak­lingar voru hvorki með­limir ÍFF né starfs­menn PLAY á þessum tíma, en fengu samn­ings­um­boðið sitt frá stjórn ÍFF. Enn hafa flug­þjónar og flug­freyjur sem starfa hjá PLAY engan full­trúa í stjórn ÍFF, en félagið segir þó að starfs­stéttin eigi full­trúa í sér­stakri sam­starfs­nefnd á vegum stétt­ar­fé­lags­ins, sem var skipuð við upp­haf flug­rekst­urs.

Sam­starfs­nefnd flug­freyja og flug­þjóna fundar mán­að­ar­lega með vinnu­veit­enda, en í henni eiga full­trúar þeirra að gæta hags­muna félags­manna og starfa sem trún­að­ar­menn. Stjórn ÍFF bætir svo við að hún hafi boðað til aðal­fundar þann 24. nóv­em­ber næst­kom­andi. Á þeim fundi muni ann­ars vegar flug­menn og hins vegar flug­freyjur og flug­þjónar eign­ast full­trúa í stjórn.

Segir samningana gerða í góðri trú

Stjórn ÍFF hefur opin­ber­lega hafnað ásök­unum um að vera „gult“ stétt­ar­fé­lag, en í yfir­lýs­ingu frá því í maí segir hún að þær séu sær­andi og móðgun við það sem stétt­ar­fé­lagið stendur fyrir.

Stjórnin steig einnig fram með annarri yfir­lýs­ingu sem birt var á vef Vísis í kjöl­far umræðu um lög­mæti kjara­samn­inga félags­ins. Þar segir hún að samn­ing­arnir hafi verið gerðir í góðri trú af lög­lega kos­inni stjórn og full­trúum þeirra, á þeim tíma sem fá störf voru að finna í flug­rekstri hér­lendis. Stjórnin greindi þó frá að ekki allir þeir sem skrif­uðu undir samn­ing­ana séu í vinnu hjá PLAY.

Stéttarfélög sem ganga erinda atvinnurekenda

Sagn­fræð­ing­ur­inn Sigurður Pét­urs­son fór yfir skil­grein­ingu og sögu „gulra“ stétt­ar­fé­laga í hlað­varps­þætti á vegum ASÍ fyrr í sumar. Samkvæmt Sigurði er hug­takið komið frá verk­smiðju­deilu í Frakk­landi upp úr 1890, þar sem verk­falls­brjótar settu gulan pappír í rúð­urnar á verk­smiðj­unni til að það sæist ekki inn í hana.

„Gul“ stétt­ar­fé­lög eru skil­greind sem stétt­ar­fé­lög sem ganga erinda atvinnu­rek­enda í stað félags­manna sinna. Sigurður segir slík félög yfir­leitt bera sömu ein­kennin; þau grípi ekki til verk­falla og standi aldrei í sam­stöðu með öðrum stétt­ar­fé­lögum.

„Hér á landi þekkt­ist fyr­ir­bærið í upp­hafi 20. ald­ar­innar þegar verka­lýðs­fé­lög voru að hasla sér völl,“ segir Sigurður, en bætir við að þau hafi horfið þegar vinnu­lög­gjöfin var sett fram árið 1938. Upp úr 1990 hafi svo aftur byrjað að bera á að atvinnu­rek­endur reyndu að búa til sam­bæri­leg stétt­ar­fé­lög, en sam­kvæmt Sigurði hafa þau ekki orðið neitt vanda­mál fyrr en núna í flug­rekstr­inum. Sigurður segir ÍFF bera „öll þess merki“ um að vera „gult“ stétt­ar­fé­lag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár