Níu fjölmiðlar utan höfuðborgarsvæðisins fengu tíu milljónir í styrki

Tvö ráðu­neyti veita lands­byggð­ar­fjöl­miðlum sér­staka styrki. Þeir eru liður í aðgerðum byggða­á­ætl­unar um efl­ingu fjöl­miðl­unar í hér­aði. Þeim miðlum sem fengu styrki fækk­aði um tvo milli ára.

Það eru ráðuneyti Lilju Alfreðsdóttur og Sigurðar Inga Jóhannssonar sem greiða út styrkina.
Það eru ráðu­neyti Lilju Alfreðs­dóttur og Sigurðar Inga Jóhanns­sonar sem greiða út styrk­ina. Mynd: RÚV

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyti til­kynnti í lok síð­ustu viku að það hefði úthlutað styrkjum til níu einka­rek­inna stað­bund­inna fjöl­miðla utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Þetta er í annað sinn sem styrkj­unum er úthlutað en Lilja D. Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, ákvað hinn 1. sept­em­ber í fyrra að veita stað­bundnum fjöl­miðlum utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins styrk úr byggða­á­ætlun. Samkvæmt henni var gert ráð fyrir að veita árlega fimm millj­ónum króna til að efla stað­bundna fjöl­miðla, sam­tals 25 millj­ónum krónur á fimm árum.

Síðan þá hefur sú upp­hæð verið hækkuð með því að sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið hefur einnig lagt til styrkt­arfé. Í ár var upp­hæðin sem úthlutað var til að mynda tvö­falt það sem hún var í fyrra, alls tíu millj­ónir króna.

Þiggjendum fækkaði um tvo

Ellefu sóttu um styrk­ina en tveir umsækj­enda upp­fylltu ekki skil­yrði úthlut­unar. Þeir níu sem það gerðu skiptu því með sér tíu millj­ónum króna með þeim hætti að átta fengu 1.150.344 krónur í sinn hlut en einn fékk 797.250 krónur.

[adspot]Í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins segir að mark­mið styrkj­anna sé að efla starf­semi fjöl­miðl­anna sem gegna mik­il­vægu hlut­verki„ við að tryggja aðgengi almenn­ings að upp­lýs­ingum um menn­ingar- og sam­fé­lags­mál og styðja með þeim hætti við lýð­ræð­is­þátt­töku og menn­ing­ar­starf.“ Auk þess séu styrkirnir liður í aðgerðum byggða­á­ætl­unar um efl­ingu fjöl­miðl­unar í hér­aði.

Helm­ingur styrkj­anna, fimm millj­ónir króna, kom af þeim fjár­munum sem mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið hefur til umráða og hinn helm­ing­ur­inn kom frá sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­inu.

Í fyrra fengu ell­efu fjöl­miðlar styrka­greiðsl­urnar þegar þeim var deilt út, og fækka þeim því um tvo.

Úthlutun styrkja 2021:

  • Akureyri.net (Eigin herra ehf.) 797.250 kr.
  • Aust­ur­frétt (Útgáfu­fé­lag Aust­ur­lands ehf.) 1.150.344 kr.
  • Eyjar.net (ET miðlar ehf.) 1.150.344 kr.
  • Jökull (Stein­prent ehf.) 1.150.344 kr.
  • Skessu­horn (Skessu­horn ehf.) 1.150.344 kr.
  • Strandir.is (Sýslið verk­stöð ehf.) 1.150.344 kr.
  • Tígull (Let­ur­stofan sf.) 1.150.344 kr.
  • Viku­blaðið (Útgáfu­fé­lagið ehf.) 1.150.344 kr.
  • Eyja­fréttir (Eyjasýn ehf.) 1.150.344 kr.

Einkareknir miðlar skipta með sér 400 milljónum árlega

Rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla hefur verið mikið í umræð­unni árum sam­an, enda hefur það orðið erf­ið­ara með hverju árinu. Í júní var greint frá því að frá árinu 2013 og fram til síð­ustu ára­mót hafi þeim sem starfa á fjöl­miðlum fækkað um úr 2.238 í 731. Frá árinu 2018 hefur þeim fækkað um 45 pró­sent.

[links]Þessi veik­ing á fjöl­miðlum spilar inn í það að Ísland hefur hríð­fallið í vísi­tölu Blaða­manna án landamæra, sem mæla fjöl­miðla­frelsi í heim­in­um. Ísland situr nú í 16. sæti á þeim lista en hin Norð­ur­lönd­in, þar sem umtals­vert er stutt við fjöl­miðla, raða sér í fjögur efstu sæt­in.

Eina almenna aðgerðin sem gripið hefur verið til vegna þessa er inn­leið­ing styrkja til einka­rek­inna fjöl­miðla, fyrst sem hluta af kór­ónu­veiru­far­ald­urs­að­gerðum stjórn­valda í fyrra, og svo með sam­þykkt laga sem greiða fyrir því að tæp­lega 400 millj­ónum króna verði skipt á milli allra einka­rek­inna fjöl­miðla árlega. Um er að ræða end­ur­greiðslu á hluta af rit­stjórn­ar­kostn­aði og fer þorri upp­hæð­ar­inn­ar, næstum tvær af hverjum þremur krón­ur, til þriggja stærstu fjöl­miðla­fyr­ir­tækja lands­ins. Lög um þær styrkja­greiðslur gilda út næsta ár.

Til við­bótar hefur svo verið gripið til greiðslu áður­nefndra sér­tækra styrkja til fjöl­miðla á lands­byggð­inni.

Kjarn­inn er á meðal þeirra fjöl­miðla sem þiggja rekstr­ar­styrki úr rík­is­sjóði og fékk 14,4 millj­ónir króna við síð­ustu úthlut­un. Þau fyr­ir­tæki sem hér eru til umfjöll­unar eru sam­keppn­is­að­ilar Kjarn­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjölmiðar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár