Bandaríska sendiráðið ásakar Fréttablaðið um að flytja falsfréttir

Sendiráð Banda­ríkj­anna birti stöðu­upp­færslu á Facebook í nótt þar sem það segir Frétta­blaðið flytja fals­fréttir og sýna virð­ing­ar­leysi „með því að nota COVID-19 í póli­tískum til­gangi“. Ástæðan er frétt um meint smit á meðal starfs­manna sendi­ráðs­ins.

Jeffrey Ross Gunter, sendiherra Bandaríkjanna, klippir á borða við nýtt sendiráð Bandaríkjanna hérlendis fyrr í þessum mánuði.
Jeffrey Ross Gunter, sendi­herra Banda­ríkj­anna, klippir á borða við nýtt sendi­ráð Banda­ríkj­anna hér­lendis fyrr í þessum mán­uði. Mynd: U.S Embassy

Banda­ríska sendi­ráðið á Íslandi hefur birt stöðu­upp­færslu á Facebook þar sem það ásakar Frétta­blaðið ábyrgð­ar­lausa blaða­mennsku og fals­frétta­flutn­ing vegna fréttar sem birt­ist á net­út­gáfu blaðs­ins í gær.

Í frétt­inni var sagt að Frétta­blaðið hefði heim­ildir fyrir því að starfs­maður í sendi­ráð­inu hefði greinst með COVID-19 smit í síð­ustu viku, en til stendur að banda­ríska sendi­ráðið flytji í nýtt hús­næði sitt við Engja­teig um helg­ina.

Í frétt mið­ils­ins var rætt við Kristinn Gilsdorf, upp­lýs­inga­full­trúi sendi­ráðs­ins, sem sagð­ist ekki kann­ast við málið.

[adspot]Í stöðu­upp­færslu sendi­ráðs­ins, sem er undir stjórn sendi­herr­ans Jeffrey Ross Gunter, er spurt hvort að fals­fréttir séu komnar til Íslands? (e. Has Fake News Arrived in Iceland?).

Í íslenska hluta færsl­unnar, sem er einnig birt á ensku, segir: „Ameríka náði að vígja nýja sendi­ráðið án COVID-19 smits. Skömmin er núna hjá Frétta­blað­inu fyrir ábyrgð­ar­lausan blaða­mennska. Löngu eftir vígslu kom upp eitt til­felli vegna smits í íslenskum skóla. Smit­tíðnin á Íslandi er með því hæsta í Evrópu. Ömurlegt að Fals-Frétta­blaðið væru svo ófag­mann­legt og sýnir virð­ing­ar­leysi með því að nota COVID-19 í póli­tískum til­gangi. Banda­ríska sendi­ráðið hefur alltaf verið og er örugg­asta athvarfið frá COVID-19 í Reykja­vík.“

Banda­ríski sendi­herr­ann var til umfjöll­unar í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik í sumar þar sem greint var frá því að hann vildi fá vopn­aða líf­verði til að fylgja sér hér­lendis. Hann teldi lífi sínu ógnað. Samkvæmt heim­ildum Kveiks var Gunter auk þess sann­færður um að margir starfs­menn sendi­ráðs­ins væru hluti „djúp­rík­is­ins“, hópi sem Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, vísar oft til og segir vinna gegn sér og stefnu sinni.

Gunter, sem er húð­læknir að mennt, kom til starfa sem sendi­herra hér­lendis í fyrra. Hann var skip­aður af Trump og er dyggur stuðn­ings­maður for­set­ans, sem sæk­ist eftir end­ur­kjöri í for­seta­kosn­ing­unum sem fara fram á þriðju­dag.

Þá vakti stöðu­upp­færsla sendi­herr­ans á Twitter í júlí líka mikla athygli. Þar sagði hann að Íslend­ingar og Banda­ríkja­menn gætu sigr­ast á „ósýni­legu Kína­veirunni“ saman og átti þar við kór­ónu­veiruna sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár